Fréttablaðið - 24.02.2017, Síða 20
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Hugmyndafræðin er sprottin úr myndlistar-verkum mínum en þar geng ég alltaf fyrst út frá efninu og læt eðli þess móta og forma verkið,“
segir Helga aðspurð út í nýju línuna sem
unnin er úr brassi og ferskvatnsperlum.
„Í myndlistinni og skartgripahönnuninni
vinn ég fyrst og fremst með efni og virkni
þess. Sú hugsun og vinnubrögð sem ég
hef tileinkað mér í myndlistinni nýtist
mér í allri sköpun. Ég hef ákveðið að
leyfa þessu að flæða inn í hvort annað í
stað þess að aðgreina og setja í hólf eins
og manni er oft tamt. Ég lít svo á að öll
sköpun næri aðra sköpun,“ útskýrir
Helga Sif.
„Ég vinn skartið með einfaldleika að
leiðarljósi og það er fyrst og fremst sjálf
keðjan sem er upphafið að mótun og
endanlegu formi skartsins. Ég vil helst
komast upp með að nota sem fæst hrá-
efni og láta þau sem ég nota hverju sinni
njóta sín sem best,“ segir hún.
Helga Sif sækir innblástur í textíl-
hefðir, bæði í myndlist sinni og í skart-
gripahönnun. „Já, innblásturinn kemur
í gegnum textílhandverk af ýmsum toga
en einnig náttúrunni. Og síðan má ekki
gleyma byggingavörubúðum, smiðjum
og smíðaverkstæðum,“ segir Helga sem
fær greinilega innblásturinn úr öllum
áttum.
Helga Sif er með skartið sitt til sölu í
versluninni Hlín Reykdal Stúdíó og þar
verður hún með innsetningu á Hönnun-
arMars. „Þá ætla ég að vinna verk í versl-
unarrýmið þannig að ég mun láta mynd-
listina og skartið flæða saman í eitthvað
skemmtilegt.“ gudnyhronn@365.is
Lætur efnivið ráða ferðinni
Helga Sif Guðmundsdóttir myndhöggvari færði út kvíarnar árið 2014 og hóf að hanna
skartgripi. Nýverið sendi hún frá sér skartgripalínu sem er náskyld myndlist hennar.
Helga Sif lærði í bæði LHÍ og í Konstfack-listaakademíunni í Stokkhólmi.
Ég lít svo á að öll
sköpun næri aðra
sköpun.
Hjartans þakkir fyrir samúð ykkar
og hlýjan hug vegna fráfalls okkar
elskaða
Helga Jóhannssonar
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
taugadeildar og MND teymis LSH í
Fossvogi og þeim fjölmörgu öðrum sem
sinntu Helga í veikindum hans og aðstoðuðu með
margvíslegum hætti.
Hjördís Margrét Bjarnason og fjölskylda.
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
Jónas Ingi Árnason
rafeindavirki,
Hjallalundi 20, Akureyri,
lést föstudaginn 17. febrúar
á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Útförin fer
fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
2. mars kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að
láta Sjúkrahús Akureyrar njóta þess.
Jóhannes Árnason Sólveig Þóra Jónsdóttir
Sigurður Kristinsson
Árni Viðar og Ævar Ingi Jóhannessynir
Björg Unnur, Kolbrún og Rúna Kristín Sigurðardætur
og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Kristinn Siggeirsson
Hörgslandi á Síðu,
andaðist á hjúkrunar- og
dvalarheimilinu Klausturhólum
sunnudaginn 19. febrúar sl. Útförin fer fram
frá Prestsbakkakirkju laugardaginn 25. febrúar kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Prestsbakkakirkju á Síðu.
Rnr: 0317-26-000520. Kt. 520269-5769.
Ólafía Jakobsdóttir
Jakob Kristinsson
Sigurður Kristinsson Anna Harðardóttir
Soffía Kristinsdóttir Rúnar Þór Bjarnþórsson
Gunnlaugur Kristinsson Þórdís Högnadóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Helga Ingibjörg Helgadóttir
áður til heimilis að
Fannborg 8, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 15. febrúar.
Útför hennar fer fram í Kópavogskirkju,
föstudaginn 3. mars kl. 15.00.
Einar Axel Kristinsson Elsa Hafsteinsdóttir
Jón Ómar Svansson
Svanfríður Ósk Svansdóttir Hallgrímur Hallgrímsson
Helga Kristín Einarsdóttir Friðgeir Daði Bjarnason
og ömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts
og útfarar elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Magneu Gestrúnar
Gestsdóttur
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á
hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir einstaka
umönnun og hlýtt viðmót.
Eygerður Guðbrandsdóttir Jóhannes Sturlaugsson
Gestur Guðbrandsson Þórdís Sæmundsdóttir
barnabörn og langömmubarn.
Ástkær eiginkona mín, móðir mín,
tengdamóðir og amma,
Heiðrún Hulda
Guðmundsdóttir
Klukkuvöllum 1, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldu
sinnar sunnudaginn 19. febrúar.
Jarðsett verður frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
3. mars klukkan 15.00.
Björn Matthíasson
Sólborg Gígja Guðmundsd. Kjartan Þorvaldsson
Guðrún Hulda Sigurðardóttir Hermann Örn Sigurðarson
Heiðrún Hanna Kjartansd. Úlfur Orri Kjartansson
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar og afi,
Ingólfur Karl Sigurðsson
bakari og matreiðslumaður,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
14. febrúar. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að hans ósk. Þökkum sýndan
samhug og veittan stuðning.
Maja, Sóley, Guðný og Karitas
Lilja Sigurðardóttir
lést þann 11. febrúar sl.
Jarðarförin hefur farið fram.
Sigurður Loftsson og fjölskylda
Sigurður Jónsson
Gyða Sigurðardóttir og fjölskylda
Sigurður Sigurðsson og fjölskylda
Þorsteinn Sigurðsson og fjölskylda
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Laufey Sólmundsdóttir
hjúkrunarheimilinu Mörk,
áður Einimel 12, Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn
19. febrúar. Útför hennar fer fram frá
Neskirkju þriðjudaginn 28. febrúar kl. 13.00.
Magnús Björn Jónsson Kristín V. Á. Sveinsdóttir
Ellert Már Jónsson Hildur Ríkarðsdóttir
Ágúst Már Jónsson Guðný Þorvarðardóttir
Sólmundur Már Jónsson Halla Margrét Jóhannesdóttir
Björn Már Jónsson Melkorka Gunnarsdóttir
Guðrún Rós Jónsdóttir Jochen Kattoll
barnabörn og barnabarnabörn.
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f Ö S T U D a G U r20 T í m a m ó T ∙ f r É T T a b L a ð i ð
tímamót
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-5
5
9
4
1
D
1
3
-5
4
5
8
1
D
1
3
-5
3
1
C
1
D
1
3
-5
1
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K