Fréttablaðið - 24.02.2017, Blaðsíða 22
„Það hlýtur að mega rekja
flestar góðar og jákvæð
ar umsagnir í erlendum miðlum
um íslenska matargerð, um hvað
Reyjavík er æðisleg og veitinga
staðirnir smart og flottir og kokk
arnir klárir, til Food and Fun.
Allavega að talsverðu leyti,“ segir
Siggi Hall, matreiðslumeistari og
framkvæmdastjóri matarhátíðar
innar Food and Fun, en hún brest
ur á með látum í Reykjavík mið
vikudaginn 1. mars.
Hátíðin var sett á laggirnar árið
2002 og fer hún nú fram í sextánda
sinn.
„Food and Fun var sameiginlegt
átak sem farið var í af Iceland
air, Iceland Naturally, íslenskum
landbúnaði og Reykjavíkurborg en
markaðssetning á íslenska lamba
kjötinu stóð þá sem hæst í Banda
ríkjunum og með góðum árangri.
Okkur fannst að það mætti kynna
Ísland á fjölbreyttari hátt, ekki
bara sem fjöll og firnindi heldur
kynna íslenskan mat, tónlist og
lífsstíl. Við ákváðum því að gera
matarfestival á Íslandi á svipuðum
nótum og verið var að gera með ís
lenska tónlist á Iceland Airwaves.
Ég var fenginn til að búa þennan
viðburð til ásamt Baldvini Jóns
syni og Magnúsi Stephensen frá
Icelandair, ég varð framkvæmda
stjóri árið 2004 og hef verið það
síðan,“ segir Siggi.
„Fyrst voru fengnir jafnmarg
ir kokkar frá Bandaríkjunum og
Evrópu til að fara í samstarf með
íslenskum veitingastöðum. Kokk
arnir unnu með íslenskt hráefni
og bjuggu til matseðla og allt var
á einu verði. Planið var að gera úr
þessu skemmtilega viku og það
tókst. Hátíðin sló í gegn og hefur
í raun slegið í gegn á hverju ein
asta ári. Hún hefur að sjálfsögðu
þróast gegnum árin en heldur þó
nokkuð sama formi. Hún hefur
stækkað en fjöldi veitingastaða í
Reykjavík hefur aukist gríðarlega
á síðustu árum. Þegar við vorum
að byrja vorum við í vandræðum
með að fylla í öll pláss en nú verð
um við að vísa frá. Food and Fun
er orðið að föstum lið í þjóðlífinu,
bara eins og þjóðhátíð og Þorláks
messa,“ segir Siggi.
Laðar gesti að
Food and Fun hefur frá upphafi
farið fram í byrjun mars. Til
gangur tímasetningarinnar var
að teygja úr ferðamannatímanum
og fá fólk til að heimsækja landið
þó kuldalegt geti verið um að lit
ast á þessum tíma árs. Í dag er þó
varla hægt að tala um jaðartíma
í ferðamannaiðnaðinum, túristar
streyma til Íslands allan ársins
hring. Siggi segir Food and Fun
eiga að hluta til heiðurinn af því.
Ekki bara vegna umfjöllunar um
hátíðina í Reykjavík í erlendum
miðlum, Food and Fun hefur einn
ig farið í víking út.
„Við höfum ekki bara verið með
Food and Fun hér heima held
ur höfum við sett upp viðburða
kynningar undir merkjum Food
and Fun og Íslands víða um heim,
meðal annars í stórborgum eins og
New York og Washington, Boston,
St. Pétursborg og París. Við höfum
einnig slegið upp Food and Fun
undir íslenskum merkjum í Finn
landi, á Spáni og víðar. Þá fara ís
lenskir kokkar út og vinna með
veitingahúsum á þessum stöðum.
Þetta hefur tekist afar vel. Food
and Fun í Finnlandi er til dæmis
að verða ein vinsælasta matarhá
tíð Finnlands,“ segir Siggi.
engir hrútspungar
í sparifötum
„Íslensk matargerð er fyrst og
fremst nútímaleg. Það er ekki
verið að tala um að færa hrúts
punga og þennan gamla íslenska
mat í nútímabúning, heldur er
verið að búa til fína og flotta rétti
úr þessu frábæra hráefni sem Ís
land hefur alið af sér,“ útskýrir
Siggi inntur eftir því hvað sé sér
stakt við íslenska matargerð.
„Ísland er fyrst og fremst
matvælaframleiðsluland, ein af
stærri fiskveiðiþjóðum í heimi
og með landbúnað sem er engu
líkur. Lambakjötið okkar, þó það
hljómi eins og klisja, er mjög sér
stakt kjöt fyrir það hvernig féð
er alið og hvernig það fóðrar sig
sjálft og frjálst. Fiskurinn er
ferskur og svo held ég að marg
ir átti sig hreinlega ekki á hversu
vönduð grænmetisframleiðsla
fer hér fram. Hér er komin fram
fjórða kynslóð af tómatræktend
um, bara eins og vínframleiðend
ur í Frakklandi. Hér er ræktað
við hreint vatn í hreinu lofti sem
skilar sér í matinn. Svo eigum
við alla þessa frábæru kokka
sem hafa lært um allan heim og
færa kunnáttuna heim svo veit
ingastaðirnir blómstra. Íslensk
matreiðsla er að svo mörgu leyti
öðruvísi en til dæmis dönsk eða
sænsk matreiðsla. Það er einhver
sérstakur tónn í henni, bara eins
og við þekkjum í íslenskri tón
list.“
frægð á food and fun
Siggi segir Food and Fun hafa
skotið mörgum matreiðslumönnum
upp á stjörnuhimininn í bransan
um. Hann nefnir hinn danska René
Redzepi, eiganda veitingastaðarins
Noma, en hann státar af tveimur
Michelinstjörnum.
„René kom óþekktur og tók þátt
í Food and Fun á sínum tíma, sló
í gegn og fór í sín fyrstu blaða
viðtöl í framhaldi af því. Gunnar
Karl Gíslason, kenndur við Dill,
er nú þekktasti kokkur okkar Ís
lendinga með nýfengna Michelin
stjörnu upp á vasann. Hann opnaði
veitingastað í New York og verð ég
ekki að leyfa mér að segja að sam
bönd hans og kynni gegnum Food
and Fun hafi örugglega hjálpað
til,“ segir Siggi Hall glettinn.
Hann lofar glæsilegri matar
hátíð sem enginn megi missa af.
„Það hefur aldrei verið sterkara
teymi af kokkum á Food and Fun
en í ár. Þetta verður stórkostlegt.“
Planið var að gera
úr þessu
skemmtilega viku og það
tókst. Hátíðin sló í gegn
og hefur í raun slegið í
gegn á hverju einasta ári.
Hún hefur að sjálfsögðu
þróast gegnum árin en
heldur þó nokkuð sama
formi. Hún hefur stækk-
að en fjöldi veitingastaða
í Reykjavík hefur aukist
gríðarlega á síðustu
árum. Siggi Hall
Siggi Hall lofar frábærri skemmtun og matarupplifun á Food and Fun.
„Lambakjötið okkar, þó það hljómi eins og klisja, er mjög sérstakt kjöt fyrir það hvernig féð er alið og hvernig það fóðrar sig
sjálft og frjálst.“ myndir /Sigurjón ragnar
Íslensk matreiðsla er að svo mörgu leyti öðruvísi en til dæmis dönsk eða sænsk.
ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Íslensk matargerð
er fyrst og fremst
nútímaleg. Það er ekki
verið að tala um að færa
hrútspunga og þennan
gamla íslenska mat í
nútímabúning, heldur er
verið búa til fína og flotta
rétti úr þessu frábæra
hráefni sem Ísland hefur
alið af sér. Siggi Hall
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér i i
Veitingastaðir, kaffi hús
ísbúðir & booztbarir velja
Vitamix blandara
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f Ö S T U D a G U r2 f ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X Xf ó l k ∙ i ∙ l í f S S T í l l
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-6
9
5
4
1
D
1
3
-6
8
1
8
1
D
1
3
-6
6
D
C
1
D
1
3
-6
5
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K