Fréttablaðið - 24.02.2017, Blaðsíða 32
„Ég segi alltaf „less is more“. Við
erum að nota of mikið af kremum
sem eiga öll að hafa ólíka virkni.
Venjuleg starfsemi húðarinnar á
að geta séð um að næra húðina
en við eigum að hjálpa til þegar
upp á vantar. Til þess að fá fal
lega förðun er þó grundvallar
atriði að næra húðina vel,“ segir
Kristín Stefánsdóttir, förðunar
meistari hjá NN Make Up Studio
í Garðabæ.
Í köldu veðri
þurfi sérstak
lega að huga vel
að næringu húð
arinnar og þá
skipti máli að
nota krem sem
hentar húðgerð
inni.
„Góð regla er
að fá sýnishorn
af kremum til
að prófa en fjár
festa ekki strax í heilli krukku
sem reynist svo ekki vel. Það
þýðir heldur ekki að kaupa eitt
hvað sem vinkonan mælti með því
það er alls ekki víst að það sama
henti þinni húðgerð. Sniðugast er
að panta tíma hjá fagaðila, fara í
andlitsbað og láta dekra við húð
ina og fá leiðbeiningar um gott
krem og prufur. Þegar rétt krem
er fundið á svo að nota það bæði
kvölds og morgna.“
Einföld kvöldrútína
„Á kvöldin ætti að hreinsa and
litið með hreinsikremi sem nær
bæði augnmálningunni og farð
anum af. Ég nota sjálf aldrei
bómull til að strjúka farðann þar
sem hún þurrkar húðina. Betra
er að nota þvottapoka, fjárfesta
bara í sæmilegum bunka og nota
einn fyrir hvert kvöld. Nota ætti
kalt vatn til að skrúbba andlit
ið. Ef fólk freistast til að nota
einnota hreinsiklúta, til dæmis
á ferðalögum, ætti að þvo and
litið vel með köldu vatni á eftir.
Efnin úr klútunum þurrka húð
ina og þau þarf að skola af. Loks
ætti að bera krem á hreint and
litið fyrir nóttina. Þeir sem vilja
nota augnkrem ættu að geyma
það í ísskápnum, bera það svo á
að kvöldi til að minnka þrota og
bólgur,“ útskýrir Kristín.
Hún ráðleggur einnig að nota
farða á hverjum degi. Hrein húð
sé berskjölduð fyrir kulda og
bakteríum.
„Krem fara inn í húðina á
nokkrum mínútum og eftir það
er húðin óvarin. Með léttum
farða nær húðin að halda inni
raka og verjast utanaðkomandi
áreiti og þannig minnka einn
ig líkurnar á að þurrkublettir
myndist og æðaslit.“
Léttari förðun í sumar
Sterkir og bjartir varalitir og
léttari augnförðun verður áber
andi í sumar að sögn Kristín
ar. Mattir varalitir munu halda
vinsældum sínum og jafnvel ein
hverjir dökku tónanna sem hafa
verið áberandi í vetur eins og
fjólublár. „Á augun verður það
bara maskari og eyelinerlína
jafnvel í lit,“ segir Kristín. „Til
okkar í NN Make Up Studio er
alltaf hægt að koma og fá ráð
gjöf varðandi förðun og húðum
hirðu.“
Hrein húð er óvarin fyrir kulda
Góð húðumhirða eru grunnurinn að fallegri förðun að sögn Kristínar Stefánsdóttur förðunarmeistara. Best sé að koma sér upp einfaldri hreins-
irútínu á kvöldin og fara aldrei út úr húsi án farða. Þannig sé húðin varin fyrir kulda og bakteríum. Hún segir óþarfa að flækja hlutina um of.
Með hækkandi sól verður förðunin léttari. Kristín segir sterka og bjarta varaliti verða áberandi í vor og sumar. Mattir varalitir
halda vinsældum sínum eitthvað áfram. Minni áhersla verður á augnförðun, einungis maskari og augnblýantur.
Kristín
Stefánsdóttir
Krem fara inn í húð-
ina á nokkrum mínútum
og eftir það er húðin
óvarin. Með léttum farða
nær húðin að halda inni
raka og verjast utanað-
komandi áreiti.
Kristín Stefánsdóttir
Kristín mælir með þvottapokum í stað
bómullarskífa til að hreinsa farða af
andlitinu. Bómullin þurrki húðina.
Scholl fótatækið:
Fjarlægir harða húð
á auðveldan hátt.
Naglatækið: Neglurnar verða
skínandi fallegar. Hentar bæði á
neglur á höndum og fótum.
„Hörð húð er eitt algengasta
fótavandamál sem fólk glím
ir við. Hörð húð getur valdið
óþægindum og með tímanum
valdið miklum sársauka ef ekk
ert er gert til að fjarlægja hana.
Regluleg fótaumhirða dregur úr
myndun á harðri húð og kemur í
veg fyrir að fæturnir verði fyrir
óþægindum,“ segir Magðalena
S. Kristjánsdóttir, vörumerkja
stjóri hjá Halldóri Jónssyni, en
heildsalan hefur umboð fyrir
frábærar vörur frá Scholl sem
auðvelda fótaumhirðu.
„Velvet smooth línan frá
Scholl býður upp á nokkur tæki.
Fyrst má nefna rafknúna fóta
þjöl sem fjarlægir harða húð á
fótunum með þægilegum og ör
uggum snúningshaus. Tækið er
auðvelt í notkun og án mikill
ar fyrirhafnar getur þú fengið
silkimjúka fætur heima í stofu,“
segir Magðalena. Hún bendir
einnig á Velvet smooth Wet and
dry sem má nota á vota og þurra
fætur. „Tækið er vatnshelt og því
mögulegt að fjarlægja harða húð
þegar maður er í sturtu. Tækið
er endurhlaðanlegt og þráðlaust.“
Í Velvet smooth línunni er
einnig að finna rafknúna nagla
þjöl fyrir fætur og hendur. „Með
rafknúnu naglaþjölinni geturðu
annast fingur og táneglur með
auðveldum hætti. Með tækinu
fylgja þrír mismunandi haus
ar sem slípa, pússa og fægja og
gera neglurnar skínandi falleg
ar,“ útskýrir Magðalena. Hún
segir að fyrir hámarksárangur
sé best að bera nærandi nagla
olíu á neglurnar sem byggi á ein
stakri formúlu með sjö olíum,
sætri möndluolíu, hörfræolíu,
apríkósukjarnaolíu, avókadó
olíu, arganolíu, sheahnetuolíu
og sólblómaolíu auk Evítamína.
„Þessi einstaka blanda styrkir
neglur og naglabönd og eykur
raka.“
Scholl Velvet smooth tækin fást í
apótekum, Elko, Fjarðarkaupum,
Hagkaup og Krónunni.
Wet and dry: Má nota á vota fætur.
Tvær mismunandi hraðastillingar.
Velvet smooth línan frá Scholl
Velvet smooth tækin frá Scholl auðvelda umhirðu fóta.
HEilSa og FEgurð Kynningarblað
24. febrúar 20176
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-3
C
E
4
1
D
1
3
-3
B
A
8
1
D
1
3
-3
A
6
C
1
D
1
3
-3
9
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K