Fréttablaðið - 24.02.2017, Page 38
heilsa og fegurð Kynningarblað
24. febrúar 201712
Enn bætast við sannanir fyrir því að skamm-
tímafasta geti stuðlað að varanlegu þyngd-
artapi. Og í rauninni þarf ekki að fasta alveg
heldur er nóg að fækka hitaeiningum niður
í kringum 750 á „föstu“dögunum. Fleiri og
lengri föstur gera hins vegar ekki endilega
hlutfallslega jafnmikið gagn. Samkvæmt rann-
sókn sem gerð var við rannsóknarstofu í lang-
lífi við Suður-Kaliforníu háskóla eiga þeir
sem fylgja föstumataræði, sem byggir mest
á ómettaðri fitu fimm daga í mánuði, von á
að missa í kringum kíló á mánuði án þess að
gera nokkrar aðrar breytingar á sínum lífsstíl.
En þar með er ekki öll sagan sögð því blóð-
rannsóknir sýna fram á lægri kólesterólgildi í
blóði, lægri blóðþrýsting og minni líkamsfitu
hjá þeim sem fylgdu mataræðinu miðað við
samanburðarhópinn. Þau sýndu einnig minni
bólgumyndun í líkamanum sem er talin tengj-
ast krabbameini og hjartasjúkdómum og betri
stjórn á blóðsykri sem er stór áhættuþáttur í
sykursýki, en samanburðarhópur. Þessi rann-
sókn bætist þar með í hóp þeirra rannsókna
sem staðfesta gildi föstu í áttina að auknu
heilbrigði og langlífi.
Rannsóknin birtist í tímaritinu Science Transla-
tional Medicine. http://stm.sciencemag.org/
content/9/377/eaai8700
Föstur gera gagn
Andvökunæt-
ur skila slæm-
um degi.
Góður nætur-
svefn er und-
irstaða góðrar
heilsu. Dr. Erla
Björnsdóttir
mun fjalla um mikilvægi svefns
fyrir andlega og líkamlega heilsu á
Borgarbókasafni Menningarhúsi í
Spönginni mánudaginn 27. febrúar.
Fyrirlesturinn ber yfirskriftina Betri
svefn – grunnstoð heilsu og fjallar
Erla meðal annars um algengustu
svefnvandamálin og fer yfir góðar
svefnvenjur. Erla hefur haldið nám-
skeið og fræðslufyrirlestra um
svefnvandamál og er með doktors-
próf í svefnrannsóknum frá lækna-
deild HÍ í samstarfi við Háskólann
í Pennsylvaníu. Hún hefur sérhæft
sig í hugrænni atferlismeðferð við
svefnleysi (HAM-S) og sinnt þeirri
meðferð undanfarin ár. Rannsóknir
Erlu fjalla um samband svefnleys-
is, andlegrar heilsu og kæfisvefns
og hafa vísindagreinar eftir hana
birst í virtustu fræðiritum heims á
sviði svefnrannsókna. Erla starf-
ar hjá Sálfræðiráðgjöfinni þar sem
hún sinnir m.a. meðferð við svefn-
leysi. Um þessar mundir er Erla að
skrifa bók um svefn sem ætluð er
almenningi.
fyrirlesturinn hefst kukkan 17.15 og er
aðgangur ókeypis.
Betri svefn
1. Leggstu á bakið og beygðu hnén
en iljar eiga að vera á gólfi. Lyftu
mjöðmunum upp en láttu hand-
leggi liggja samhliða búknum.
Réttu vel úr hægri fætinum í um
10 sekúndur. Skiptu svo um fót
og gerðu eins, samtals tíu sinn-
um.
2. Sestu með fætur beint fram.
Snúðu efri hluta líkamans til
hægri og settu báðar hend-
ur í gólf við læri. Teygðu vel á í
10 sekúndur. Snúðu þér svo til
vinstri og endurtaktu æfinguna í
10 skipti.
3. Stattu með beint bak og hæfi-
legt bil á milli fótanna. Beygðu
þig aðeins í hnjánum, beygðu þig
rólega fram og taktu með báðum
höndum utan um kálfana. Haltu
þér í þessari stöðu í eina til tvær
mínútur. Réttu hægt og rólega úr
þér. Beygðu þig betur í hnjánum
ef staðan er óþægileg.
4. Sestu á gólfið og með iljarnar
saman og hnén beygð í sitthvora
áttina. Taktu utan um fæturna,
beygðu þig vel fram og haltu
stöðunni í um eina mínútu. Réttu
rólega úr þér og gerðu æfinguna
10 sinnum.
5. Stattu í báða fætur. Dragðu
hægri fótinn að búknum og haltu
honum þannig í um hálfa mínútu.
Réttu úr fætinum og gerðu eins
með vinstri fæti. Endurtaktu æf-
inguna í nokkur skipti.
Æfingar gegn
stirðleika
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-6
9
5
4
1
D
1
3
-6
8
1
8
1
D
1
3
-6
6
D
C
1
D
1
3
-6
5
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K