Fréttablaðið - 24.02.2017, Side 44
| SMÁAUGLÝSINGAR | 24. febrúar 2017 FÖSTUDAGUR12
Sandgerðisbót,
hreinsistöð fráveitu
– Tillaga að deiliskipulagsbreytingu
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar samþykkti 21. febrúar
2017 að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu skv. 1.
mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Sandgerðisbót og
umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana
nr. 105/2006.
Svæðið sem breytingum tekur nær til lóðar fyrir hreinsi-
stöð fráveitu sem er nr. 33 við Óseyri. Tillagan gerir m.a.
ráð fyrir stækkun lóðar og breytingum á byggingarreitum.
Göngustígur innan lóðarinnar meðfram grjótgarði er felldur
niður.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu
mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar,
Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulagsstofnun frá 24. febrúar
til 7. apríl 2017, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér
tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig
birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is/
skipulagsdeild undir: Auglýstar tillögur.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl.
16:00 föstudaginn 7. apríl 2017 og skal athugasemdum skilað
skriflega til skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu
9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is)
þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur
fram.
Sviðsstjóri skipulagssviðs
VIÐ MAT Á HÆFI UMSÆKJENDA LÍTUR VALNEFNDIN
MEÐAL ANNARS TIL EFTIRFARANDI ATRIÐA:
• Fjárhagslegt sjálfstæði, reynsla og þekking eða nám
sem nýtist í starfi.
• Traust og gott orðspor.
• Þekking á starfsemi fjármálafyrirtækja.
• Reynsla af stjórnun, rekstri og stefnumótun.
• Sérþekking á sviði áhættustefnu s.s. markaðs- og lánsáhættu.
• Sérþekking á sviði innra eftirlits og reikningsskila.
• Sérþekking á sviði lögfræði.
UMSÆKJENDUR ÞURFA JAFNFRAMT AÐ
UPPFYLLA EFTIRFARANDI SKILYRÐI:
• Vera lögráða og hafa ekki á síðustu fimm árum
verið úrskurðaðir gjaldþrota.
• Hafa ekki í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm
á síðustu tíu árum fyrir refsiverðan verknað.
• Uppfylla kröfur um óhæði, þ.e. þeim er ekki heimilt að vera
starfsmenn eða stjórnarmenn hjá þeim sem fara með yfirráð
yfir öðrum viðskiptabönkum eða sparisjóðum, eru ekki
starfsmenn eða stjórnarmenn hjá öðrum viðskiptabönkum
og sparisjóðum eða dótturfélögum þeirra, eru ekki makar
stjórnarmanna eða framkvæmdastjóra nokkurra framan-
greindra aðila eða skyldir þeim í beinan legg eða fyrsta legg
til hliðar. Það sama gildir ef viðkomandi sinnir reglubundið
hagsmunagæslu eða ráðgjafastörfum fyrir framangreinda
aðila eða hefur meirihluta tekna sinna af viðskiptum við þá.
Stjórnarmenn og starfsmenn fjármálafyrirtækis mega ekki
eiga sæti í stjórnum annars eftirlitsskylds aðila eða aðila sem
eru í nánum tengslum við hann.
Bankasýslan fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum samkvæmt lögum nr. 88/2009 um Bankasýslu ríkisins.
Fer stofnunin með 100,0% eignarhlut í Íslandsbanka hf., 98,2% eignarhlut í Landsbankanum hf., 49,5% eignarhlut í
Sparisjóði Austurlands hf. og 13,0% eignarhlut í Arion banka hf.
Stjórn Bankasýslu ríkisins skipar sérstaka valnefnd, sbr. 7. gr. laga nr. 88/2009, sem tilnefnir aðila fyrir hönd ríkisins í stjórnir
fjármálafyrirtækja. Bankasýsla ríkisins óskar formlega eftir tilnefningum valnefndar um stjórnarmenn fyrir stjórnarkjör í
hlutaðeigandi fjármálafyrirtækjum.
Samkvæmt ákvæði 7. gr. laga nr. 88/2009 styðst valnefnd við starfsreglur við mat á hæfni, menntun og reynslu einstaklinga sem til
greina koma til setu í stjórnum fjármálafyrirtækja fyrir hönd ríkisins. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á heimasíðu Bankasýslu ríkisins.
Við val á einstaklingum sem tilnefndir eru í stjórnir fjármálafyrirtækja tekur valnefndin mið af yfirsýn, þekkingu og reynslu
viðkomandi í tengslum við fyrirtækjarekstur og starfsháttum fjármálafyrirtækja. Valnefndin skal leitast við að tryggja að í
bankaráðum og stjórnum fyrirtækja sitji sem næst jafnmargar konur og karlar.
Ennfremur er vakin athygli á 29 gr. a. laga nr. 161/2002 um
fjármála fyrirtæki sem varðar mögulega hagsmunaárekstra
í tengslum við lánveitingar.
Stjórnarmenn fjármálafyrirtækja þurfa að gangast undir og
standast hæfis mat Fjármálaeftirlitsins.
Bankasýsla ríkisins leitar að einstaklingum
til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum.
Bankasýsla ríkisins er sérstök
ríkisstofnun með sjálfstæða
stjórn sem heyrir undir
fjármála- og efnahagsráðherra
og fer með eignarhluti ríkisins í
fjármálafyrirtækjum í samræmi
við lög, góða stjórnsýslu- og
viðskiptahætti og eigendastefnu
ríkisins á hverjum tíma.
Áhugasamir einstaklingar sem telja
sig uppfylla framangreind skilyrði eru
hvattir til að senda ferilskrár ásamt
upplýsingum um ofangreind atriði til
valnefndar Bankasýslu ríkisins á netfangið
valnefnd@bankasysla.is. Óskað er eftir
að ferilskrár og umbeðnar upplýsingar
berist eigi síðar en 3. mars nk. Þeir
einstaklingar, sem sent hafa ferilsskrár sínar
eða boðið sig fram til stjórnarsetu með
öðrum hætti fyrir 1. september 2016, eru
beðnir um að endurnýja áhuga sinn með
pósti til valnefndar ef þeir gefa áfram kost á
sér til setu í stjórnum fjármálafyrirtækja.
Nánari upplýsingar veitir Jón G. Jónsson,
forstjóri Bankasýslu ríkisins, sími 550-1700.
atvinna
tilkynningar
Til hvers að auglýsa ?
Ef þú auglýsir sjálf-/ur eftir starfsmanni eyðir þú verulegum tíma
í úrvinnslu innsendra umsókna.
Okkar styrkur er öflugur gagnabanki og yfir tveggja áratuga reynsla við að
þjónusta fyrirtæki við leit að starfsmanni.
Sparaðu þér tíma, kostnað og fyrirhöfn - leitaðu aðstoðar
fagmanna með langvarandi reynslu af ráðningarmálum.
STRÁ Starfsráðningar ehf. - Suðurlandsbraut 30 - sími 588-3031
stra@stra.is - gudny@stra.is - www.stra.is.
Með starf
fyrir þig
Starfsemi STRÁ ehf. býr að
aldarfjórðungs reynslu og
þekkingu á sviði starfs-
manna- og ráðningarmála
en stofan hefur unnið fyrir
mörg helstu og leiðandi
fyrirtæki landsins um
árabil.
Rík áhersla er lögð á trúnað
varðandi vörslu gagna og
upplýsinga bæði gagnvart
umsækjendum, sem og
vinnuveitendum.
Ánægðir viðskiptavinir til
margra ára hafa notið
þjónustu STRÁ, en stofan
hefur jafnframt umsjón
með ráðningum í sérfræði-
og stjórnunarstöður.
www.stra.is
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-6
4
6
4
1
D
1
3
-6
3
2
8
1
D
1
3
-6
1
E
C
1
D
1
3
-6
0
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K