Fréttablaðið - 24.02.2017, Qupperneq 62
Við höfum ekkert
endilega Verið í
samhengi Við tíðarandann.
DJ
PLAY FOLLOW
Föstudagsplaylista Lífsins má einnig finna
á Spotify undir notandanafninu Vísir.
LAg FLYtJAnDi
föstudags-
playlisti
Lífsins
DJ Dóra Júlía setti saman lagalista Lífsins að þessu
sinni. Þeir sem kunna vel að meta listann henn-
ar Dóru ættu að skella sér á Sæta svínið í kvöld en
þar dj-ar Dóra á föstudagskvöldum.
Dóra Júlía
Hypnotize Notorious B.I.G.
Bills, Bills, Bills Destiny's Child
Sexual NEIKED, Dyo
No Lie Glowie
Gold Kiiara
Bonbon Era Istrefi
Elskan af því bara GKR
Cool Girl Tove Lo
Shining DJ Khaled, Beyoncé, JAY Z
365 er framsækið fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtæki sem veitir lifandi og
upplýsandi þjónustu við landsmenn, 365 daga ársins. 365 starfar á öllum
sviðum fjölmiðlunar; sjónvarps- og útvarpsrekstri, blaðaútgáfu og vefmiðlun,
auk þess að bjóða fjarskiptaþjónustu, bæði net og farsíma.
Félagið á auk þessa Midi.is sem annast miðasölu á mannfagnaði og viðburði,
svo sem á leiksýningar, tónleika, kvikmyndasýningar, íþróttaleiki og fleira.
Hjá 365 starfa um 410 manns.
365 óskar eftir góðu fólki
SÖLUMAÐUR AUGLÝSINGA
Auglýsingadeild Fréttablaðsins óskar eftir
röskum sölumanni á stærsta prentmiðil landsins.
Helstu kröfur:
- Reynsla af sölumennsku æskileg.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Sjálfstæði í starfi og geta unnið í hópi.
- Þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum.
- Sveigjanleiki og frumkvæði í starfi.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á:
www.365.is undir „laus störf“.
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars.
Stefnt er að því að umsækjandi hefji störf hið fyrsta.
Þeir sem sáu GusGus spila á tónlistarhátíðinni Sónar um seinustu helgi fundu smjörþefinn af því sem koma skal á nýjustu plötu GusGus
sem kemur út í september. „Það
var mikilvægt fyrir okkur að spila
á Sónar, bæði vegna þess að það er
svo frábært að hafa svona alvöru
elektrónískt festival á Íslandi og
þar sem þetta var í fyrsta sinn sem
við spiluðum í núverandi formi á
Íslandi, ég og Daníel. Við höfum
túrað í þessu formi erlendis og
svona mun hljómsveitin GusGus
birtast á næstu plötu,“ segir Birgir
Þórarinsson, betur þekktur sem
Biggi veira.
Biggi segir áhorfendur hafa tekið
vel í GusGus eins og sveitin lítur
út núna. „Þetta var bara frábært
kvöld, við vorum aðeins að prófa ný
lög sem verða á næstu plötu. Þetta
verður meira teknó og new wave. Á
þessum tónleikum tókum við lög af
öllum plötum GusGus en skildum
slagarana okkar, Over og Arabian
Horse, eftir heima,“ segir Birgir sem
er orðinn spenntur að koma nýjustu
plötunni frá sér. „Nú er vinnslan
komin á það stig að maður er orð-
inn óþreyjufullur að fara að klára.
Við erum búnir að vera með þessar
hugmyndir á borðinu í eitt ár en
fáum nú loks frið fram á vor til að
klára þetta dæmi og koma því út.“
Birgir segir tónleikana á Sónar
hafa verið vel sótta. „Salurinn var
smekkfullur og það er gaman að
sjá hvað yngra fólkið tekur okkur
gömlu teknórefunum vel,“ segir
hann og hlær. „Við opnuðum tón-
leikana á nýju lagi og fólk kom til
okkar eftir tónleikana sem hafði
misst vatnið yfir þessu lagi. Við
vorum dáldið í teknógírnum á þess-
um tónleikum og það er kannski
ekki fyrir alla en á Sónar var það
alveg málið.“
Aldrei verið eitthvað kúl
Það er ansi breiður hópur sem fylg-
ist með GusGus og tónlistin þeirra
fellur í kramið hjá fólki öllum aldri.
En hver er galdurinn? „Við höfum
haft ákveðna sérstöðu hérna á
Íslandi og höfum aldrei verið hluti
af einhverri ákveðinni senu sem
hefur verið í tísku. Við höfum aldr-
ei verið eitthvað kúl en við höfum
verið síbreytileg og þá er kannski
alltaf eitthvað spennandi í gangi,“
segir hann og hlær. „Við höfum bara
verið upp og ofan á radarnum hérna
á Íslandi. Við virðumst þó alltaf hafa
ágætlega stóran hóp sem fílar tón-
listina okkar og sá hópur endur-
nýjar sig bara með nýrri
kynslóð.“
Spurður út í
nýja efnið sem
GusGus er að
senda frá sér
í haust segir
Birgir hljóm-
sveitina allt-
af hafa unnið
með elekt-
róníska tón-
list á sínum
eigin forsend-
um. „Við höfum
ekkert endilega
verið í samhengi við
tíðarandann þó að við
verðum auðvitað fyrir áhrifum frá
því sem er að gerast ásamt öllu því
sem á undan hefur gengið. Við erum
í sífelldri leit að nýjum leiðum til að
blanda saman rafrænni tilrauna-
mennsku og hefðbundnu poppi.“
Mannabreytingar í gegnum
tíðina
Eins og áður sagði samanstendur
GusGus núna af Birgi og Daníel
Ágústi en margt tónlistarfólk hefur
komið og farið úr sveitinni í
gegnum árin. Núna síðast
hættu Högni Egilsson
og Stephen Steph-
ensen. „Já, Högni
vildi bara snúa
sér að öðru og
Stebbi hætti
fyrir nokkru
síðan. Þann-
ig að þetta er
bara eins og
þetta hefur
alltaf verið
með GusGus,
það hafa verið töluverðar manna-
breytingar í gegnum tíðina. Ég er sá
eini sem hefur verið allan tímann
frá upphafi. Daníel var meðal stofn-
enda hljómsveitarinnar en tók sér
svo pásu frá 2000 til 2007. Hann var
þó með lög á báðum plötunum sem
komu út á því tímabili þótt hann
væri ekki formlega í bandinu. Og nú
erum við tveir eftir, kjarninn. Okkur
þykir mjög vænt um hvor annan og
ég hef ótrúlega gaman af því sem við
erum að gera. Þannig að það er fín
stemming á okkur,“ segir Birgir.
Það sem er svo fram undan hjá
GusGus er meðal annars að klára
nýju plötuna, undirbúa tónleika-
ferðalag og að troða upp á Bryggj-
unni Brugghúsi í kvöld.
„Það kom upp hugmynd um að
hafa svona Sónar-framhaldstón-
leika á Bryggjunni, þá ætlum við
að skella í gömlu slagarana. Þetta
verður annar stemmari heldur en á
Sónar. Þetta verður ný nálgun á það
hvernig við framkvæmum þennan
tónlistargjörning sem tónleikarnir
okkar eru, það er alltaf gaman að
spila í minna rými,“ segir Birgir og
hvetur fólk til að leggja leið sína á
Bryggjuna í kvöld. gudnyhronn@365.is
gusgus orðin
tveggja manna
hljómsveit
Miklar mannabreytingar hafa átt sér stað í
hljómsveitinni GusGus frá því að sveitin var
stofnuð árið 1995. Núna eru meðlimirnir tveir,
Birgir Þórarinsson og Daníel Ágúst Haraldsson.
Með haustinu sendir GusGus frá sér nýja plötu.
Daní el Ágúst og Birgir
skipa gusgus núna.
FréttABLAðið/ViLheLM
Svona leit gusgus út árið
2015. MYnD/Ari MAgg
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f Ö S T U D a G U r38 L í f i ð ∙ f r É T T a b L a ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-4
6
C
4
1
D
1
3
-4
5
8
8
1
D
1
3
-4
4
4
C
1
D
1
3
-4
3
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K