Fréttablaðið - 12.06.2017, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 12.06.2017, Blaðsíða 2
Rafmags sláttuvélar Úrval garðsláttuvéla fyrir rafmagn eða rafhlöður ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Samfélag  Fornleifauppgröftur við Dysnes norðan Akureyrar hefur borið árangur. Á skömmum tíma hafa fræðingar komið niður á kuml sem líklegt er talið að sé frá víkinga- öld. Vísbendingar benda til að mun fleiri kuml finnist á svæðinu á næstu dögum. „Við höfum nú fundið mannabein og tönn úr hundi. Algengasta haug- féð frá þessum tíma voru hestar en það er einnig vitað af því að hundar hafi verið grafnir með eigendum sínum. Það er erfitt að tímasetja nákvæmlega frá hvaða tíma þetta kuml er því gjóskulög er ekki að finna hér,“ segir Hildur Gestsdóttir, fornleifafræðingur sem vinnur að rannsókninni. „Það er þannig að ef við finnum eitt kuml er líklegt að fleiri séu á staðnum. Við höfum séð það í gegn- um tíðina,“ segir Hildur en örnefnið gefur tilefni til þess að fjöldi kumla sé á staðnum. „Örnefni eru oft þann- ig að þau gefa vísbendingar um hvað hafi farið fram. Smiðjuhóll er til dæmis merki þess að smiðja hafi verið starfrækt og svo framvegis. Að öðru leyti eru ekki til miklar heim- ildir,“ bætir Hildur við. Á næstu dögum munu rann- sóknaraðilar opna stærra svæði til að gera sér betur grein fyrir fjölda kumla. Dysnesið sjálft er ekki mjög stórt og því verður stór hluti þess kannaður frekar. Nokkur hundruð metrum sunnan við Dysnes er Gás- eyri sem á víkingaöld var mikil verslunarhöfn. Rannsókn fornleifafræðinganna er hluti af umhverfismati fyrir stór- skipahöfn á Dysnesi með allt að 300 metra viðlegukanti sem fyrirtæki og sveitarfélög í Eyjafirði áforma að byggja á næstu árum. Hafnarmann- virki sem þetta er ekki til á norðan- verðu landinu og á að þjóna olíuleit á Drekasvæðinu sem og námagreftri á austurströnd Grænlands. Einn- ig hefur þessi framkvæmd verið markaðssett sem umskipunarhöfn fyrir siglingar yfir norðurpólinn. Framkvæmdin er talin munu kosta tæpa 20 milljarða króna. sveinn@frettabladid.is Fornminjar fundust á framkvæmdasvæði Fornleifarannsóknir á Dysnesi, rétt norðan við Akureyri, þar sem stórskipahöfn Eyfirðinga á að rísa benda til fjölda kumla á svæðinu. Fyrsta kumlið fundið með haugfé frá víkingaöld. Til stendur að kanna allt svæðið á næstu dögum. Á skömmum tíma hafa fræðingar komið niður á kuml sem liklegt er talið að sé frá víkingaöld. Fréttablaðið/auðunn Víkingaöld Víkingaöld er það tímabil í sögu Norðurlanda sem markast við árið 800 og lýkur í kringum 1066. og markar strandhögg víkinga og landvinninga þeirra. Upphaf víkingaaldar má rekja til þess atburðar er norrænir víkingar réðust inn í klaustur við Lindisfarne sem er miðja vega milli Newcastle í Englandi og Edinborgar í Skotlandi. Endalok víkingaaldar markast svo við fall Haraldar harðráða Noregskonungs í orrustu á Stam- ford Bridge árið 1066. Tekinn af laganna vörðum Íbúi Cracolandia sést hér leiddur burt af lögreglumönnum. Cracolandia er hverfi í Sao Paulo og líkt og nafnið gefur til kynna er þar að finna meira af krakki en gerist og gengur. Fólk sem hefst þar við er oftar en ekki fólk sem er utangarðs og hefur ánetjast efninu. Um 500 lögreglumenn réðust inn í hverfið í gær og handtóku íbúa. Hluti íbúa greip til þess ráðs að leggja eld að skýlum og efnum til að forða þeim frá klóm lögunnar. Fréttablaðið/EPa Veður Hægari á morgun og birtir til fyrir norðan en þykknar upp og stöku skúrir syðra síðdegis. Sjá Síðu 18 20 milljarðar er áætlaður kostn- aður framkvæmdarinnar. Bretland  Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, hefur til- kynnt að flokkurinn hyggist bjóða öðrum stjórnmálaflokkum að fella ríkisstjórn Íhaldsflokksins og kjósa stefnuskrá Verkamannaflokksins í kjölfar niðurstöðu þingkosning- anna í Bretlandi. Eins og Fréttablaðið greindi frá um helgina vill Theresa May, leið- togi Íhaldsflokksins og forsætis- ráðherra Bretlands, mynda minni- hlutaríkisstjórn með stuðningi Lýðræðislega sambandsflokksins (DUP) á Norður-Írlandi. Til þess að koma á minnihluta- stjórninni þarf May að halda ræðu sem nefnist „Drottningarræða“ og fá meirihluta þingsins til að kjósa með trauststillögu um að Íhaldsflokkur- inn geti verið leiðtogi þingsins. Það ætti að nást ef allir þingmenn DUP styðja tillöguna. Þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær hafði þó ekki verið gengið frá samningum flokk- anna á milli. Verkamannaflokkurinn náði að bæta við sig 30 sætum í neðri deild breska þingsins í kosningunum sem fóru fram í síðustu viku. Á sama tíma missti Íhaldsflokkurinn meiri- hluta sinn á þingi. The Guardian greinir frá því að Corbyn telji að önnur kosning muni eiga sér stað áður en árið er úti. – sg Vill fella stjórn May Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka- mannaflokksins. Fréttablaðið/EPa Verkamannaflokkurinn náði að bæta við sig 30 sætum í nýliðnum kosning- um. lÖgreglumál Lítið var um yfir- heyrslur yfir þeim sex sem grunuð eru um að tengjast láti Arnars Jóns- sonar Aspar. Sex voru handtekin eftir lík- amsárás á Æsustöðum í Mosfells- sveit á miðvikudag í liðinni viku. Yfirheyrslur stóðu fram á nótt það kvöld en lítið hefur verið um þær síðan þá. „Við yfirheyrðum aðeins einn í fyrradag og engan í gær. Við vorum upptekin í öðrum verkum,“ segir Grímur Grímsson, yfirmaður rann- sóknardeildar lögreglunnar. Ekki fæst uppgefið hver var yfirheyrður. Grímur segir enn fremur að ekki liggi fyrir hvert dánarmein Arnars var en niðurstöður krufningar liggja ekki fyrir. Það verður líklega á næstu dögum. - jóe Einn grunuðu yfirheyrður í morðmálinu 1 2 . j ú n í 2 0 1 7 m á n u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 0 E -1 C C 0 1 D 0 E -1 B 8 4 1 D 0 E -1 A 4 8 1 D 0 E -1 9 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.