Fréttablaðið - 12.06.2017, Blaðsíða 18
Sumarsólstöður
eru yndislegur
árstími og ég kann vel við
að sólin skíni dag og nótt.
CONVERSE Á SECRET SOLSTICE
Foo Fighters hefur tvisvar sinnum
áður haldið tónleika hér á landi.
The Prodigy mætti fyrst til landsins
árið 1994.
Tvö af stærstu nöfnum hátíðar
innar í ár, Foo Fighters og The
Prodigy hafa áður spilað hér á
landi við góðar undirtektir.
The Prodigy mætti fyrst til
landsins árið 1994 þegar stór
og mikil danshátíð var haldin
í Kaplakrika í Hafnarfirði. Þar
var sveitin að fylgja eftir útgáfu
annarrar plötu sinnar, Music for
the Jilted Generation, sem skaut
henni rækilega upp á stjörnu
himininn. Ári síðar komu þeir
fram á Uxa, alþjóðlegri tón list
ar há tíð sem haldin var á Kirkju
bæj ar klaustri um versl un ar
manna helg ina. Ári síðar spiluðu
þeir fyrir fullri Laugardalshöll
og aftur tveimur árum síðar, árið
1998. Árið 2004 voru þeir á tón
leikaferð um heiminn til að fylgja
Always Outnumbered, Never
Outgunned og spiluðu í Laugar
dalshöll sama ár. Tónleikarnir
næstu helgi verða því þeir sjöttu
sem þeir halda hér á landi og má
búast við frábærri stemningu
enda eitt besta tónleikaband
samtímans. Síðasta plata þeirra,
The Day Is My Enemy, kom út
árið 2015 og fékk mjög góðar
viðtökur.
Foo Fighters hefur tvisvar
sinnum áður haldið tónleika hér
á landi. Þeir mættu fyrst hingað
árið 2003, ári eftir útgáfu fjórðu
plötu sinnar en á þeim tíma var
sveitin ein vinsælasta rokksveit
heims. Tveimur árum síðar mætti
hún aftur til landsins og þá með
rokkurum í Queens of the Stone
Age. Saman héldu þær eftir
minnilega tónleika í Egilshöll
sem var hluti af Reykjavík Rock
tónlistarhátíðinni. Sveitin sendi
frá sér nýtt lag fyrir stuttu og ný
plata kemur væntanlega út síðar
á árinu eða því næsta.
Kunnugleg andlit
Ég ætla flytja tónlist til að dilla sér og dansa við; glænýjar lagasmíðar sem ég hef verið
að semja í undirbúningi á sóló
ferli mínum, sem og áður óútgefin
lög sem hafa verið í farteskinu um
tíma,“ segir Högni sem nýtur full
tingis strengjasveitar á sviðinu.
Hann segir nýju tónsmíðarnar
samofnar áhrifum frá flestu því sem
hann hefur fengist við um dagana
sem tónlistarmaður.
„Sumt er úr klassíska hljóðheim
inum sem ég er vanur að vinna í,
strengir og kórar, og annað undir
áhrifum frá því þegar ég vann plötur
með Gus Gus.“
Högni er fullur tilhlökkunar yfir
því að koma fram fyrir gesti Secret
Solstice.
„Stemningin á Secret Solstice ein
kennist af gleði yfir því að geta leyft
sér að njóta lífs og lista með vinum
og náunganum. Því fylgir sönn
hamingja að upplifa frelsi til að
njóta góðrar tónlistar, mega dansa
óheft og sleppa tökum af hversdags
lífinu. Allt þetta liggur í loftinu.“
Aðspurður segir Högni í engu
öðruvísi að koma fram á tónlistar
hátíð eins og Secret Solstice en á
öðrum vettvangi.
„Upplifunin fer alveg eftir
fílingnum sem maður er sjálfur í.
Tónlistarhátíð sem þessi er hins
vegar frábær vettvangur til að
sleppa fram af sér beislinu og halda
á vit ævintýranna.“
Hann segir hátíðina vera fyrir fólk
sem njóti góðrar tónlistar og hefur
gaman af því að vera undir berum
himni.
„Secret Solstice er frábær viðbót
við borgarlíf og menningu Reykja
víkur og fagnar fjölbreytileikanum.
Hátíðin er alls ekki bundin við aldur
en við sjáum til hverjir koma og
hverjum mun lítast vel á. Mín tón
list er fyrir alla sem njóta góðra mel
ódía og góðs fílings; dans og gleði en
líka tregi og tilfinningar.“
Af erlendum listamönnum
hlakkar Högni einna mest til að
sjá Kerri Chandler og Anderson,
Paak and the Free Nationals, og
hann ætlar ekki að missa af hinum
íslenska Auði og Casanova.
„Sumarsólstöður eru yndislegur
árstími og ég kann vel við að sólin
skíni dag og nótt. Sólin er stjarnan
okkar og gott fyrir okkur að sjá hana
sem mest.“
Sumarið hjá Högna byrjar með
stæl því hann er nú staddur á tón
leikaferðalagi með hljómsveitinni
Hjaltalín í Rússlandi.
„Þangað förum við tvær ferðir
í sumar en þess á milli ætla ég að
njóta sumarsins og þess að vera til.
Ég ætla að slappa vel af því fram
undan eru annasamir tímar við
útgáfu sólóplötu minnar sem kemur
út í haust. Þegar ég sest við píanóið
er ég alltaf eins og hvítt blað með
konstant ritstíflu en á endanum er
ég leiddur til þess sem kemur til mín
og verð að hlusta vel og vandlega.
Það er því jafn erfitt og það er auð
velt fyrir mig að semja tónlist.“
Högni stígur á svið klukkan 18,
föstudaginn 16. júní.
Dans, gleði, tregi
og tilfinningar
Högni Egilsson er magnaður á sviði, með sólgyllt fax, sér-
stæða rödd og heillandi tónsmíðar, en líka óhefta sviðs-
framkomu. Hann mun trylla lýðinn á föstudagskvöld.
Högni vinnur nú að sólóferli sínum. Hann segir jafn erfitt og það er auðvelt fyrir sig að semja tónlist. mynD/sTeFán
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
4 KynnInGARBLAÐ 1 2 . j ú n í 2 0 1 7 m á n U DAG U R
1
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
E
-3
A
6
0
1
D
0
E
-3
9
2
4
1
D
0
E
-3
7
E
8
1
D
0
E
-3
6
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K