Fréttablaðið - 12.06.2017, Side 48

Fréttablaðið - 12.06.2017, Side 48
Ástkær bróðir minn, mágur og frændi, Níels Ómar Laursen Hátúni 10, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 27. maí sl. útförin hefur farið fram. Óli Guðlaugur Laursen Auður Ingibjörg Hafþórsdóttir Kristian Valur Laursen Heiða Ingvadóttir Birta Ósk Laursen Hafþór Örn Laursen Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Anna Auðunsdóttir kaupmaður, áður til heimilis að Ásbraut 19, nú Fannborg 8, Kópavogi, lést á Landspítalanum 7. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar. Margrét Harðardóttir Pétur Björgvinsson Ársæll Harðarson Ingibjörg Kristjánsdóttir Gils Harðarson Hörður Örn Harðarson Guðni Pétur Harðarson Toy Harðarson ömmu- og langömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Tómas Á. Tómasson fv. sendiherra, Espigerði 4, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn 3. júní sl. Hann verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 13. júní 2017 kl. 15.00. Hjördís Gunnarsdóttir Jón Tómasson Evelyn Tómasson Ingibjörg Tómasdóttir Hannes Þ. Bjarnason Tómas Tómasson Jennifer Tómasson Árni Tómasson Salvör Thorlacius og barnabörn. Merkisatburðir 1550 Gústav I Svíakon- ungur stofnar borgina Helsinki. 1665 Englend- ingar taka stjórn í Nýju-Jórvík en borgin hét áður Nýja-Amster- dam og var hol- lensk nýlenda. 1838 Einn maður týnir lífi þegar jörð skelfur á Norður- landi. Björg hrynja í Grímsey og Málmey. 1898 Filippseyjar lýsa yfir sjálfstæði frá Spáni. 1911 Hinn sögufrægi Melavöllur vígður. 1913 Áhöfn dansks varðskips fjarlægir bláhvítan fána af báti í Reykjavíkurhöfn. Atburðurinn varð vatn á myllu þeirra sem vildu séríslenskan fána. 1942 Anna Frank fær dagbók í afmælisgjöf. 1964 Nelson Mandela dæmdur í lífstíðarfangelsi í Suður- Afríku. Í dag er ár liðið síðan Omar Mateen, 29 ára öryggisvörður, myrti 49 og særði 58 til viðbótar í skotárás á skemmtistaðinn Pulse í Orlando, Flórída. Mateen var síðar felldur af lögreglu. Þetta er mannskæðasta hryðjuverkaárásin á bandarískri grund frá árásinni á Tvíburaturnana 11. september 2001. Árás Mateens beindist að gestum staðarins sem flestir voru LBGT- fólk. Eftir að lögregla var kölluð til vegna árásarinnar skapaðist um- sátursástand. Í viðræðum milli hans og sáttasérfræðinga lögreglunnar kom fram að hann hefði svarið Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtoga ISIS, holl- ustueið. Kveikjan að árásinni var sú stað- reynd að nokkrum vikum árum hafði Bandaríkjaher fellt Abu Waheeb, leiðtoga ISIS í Írak. Þá hafði Mateen séð tvo karlmenn kyssast á götu út og það, að sögn föður hans, gert hann mjög reiðan. Árásarmaðurinn var þekktur af FBI og hafði verið yfirheyrður í tvígang vegna mögulegra tengsla við sjálfs- vígsárásarmenn og hryðjuverka- hópa. Þ etta g e r ð i st 1 2 . j ú n í 2 0 1 6 Skotárásin á Pulse-klúbbinn í Orlando Vettvangur árásarinnar daginn eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA rúmlega þrjátíu manns komu saman árla gærmorguns til að vera viðstaddir afhjúpun minningar- skjaldar um gamla franska spítalann í reykjavík. spítalinn, sem á sér ríka sögu, hýsir nú tónmenntaskóla reykjavíkur. „Þetta var frábær athöfn og veðrið gerði mikið fyrir hana,“ segir Pálmi jóhannes- son, upplýsingafulltrúi hjá sendiráði Frakka hér á landi. „Ég taldi held ég 32 sem er nokkuð gott miðað við að þetta hófst klukkan níu um morguninn. Við áttum allt eins von á því að það kæmu ekki nema tíu eða fimmtán.“ Franskir sjómenn sóttu sjóinn við ísland öldum saman en mest var um þá frá miðri 19. öld til upphafs fyrra stríðs. Áætlað er að þegar mest lét hafi komið hingað um 200 frönsk skip á ári og með þeim 4.000 skipverjar. skipakostur þá var fjarri því að vera áþekkur því sem þekkist í dag og sjóskaði því mikill. Líkt og aðrir áttu sjómennirnir það til að sýkjast eða slasast. Það var af þeim sökum sem frönsk stjórnvöld létu smíða þrjá spítala fyrir þegna sína hér á landi. sá fyrsti var reistur árið 1902 og stendur við horn Lindargötu og Frakkastígs. Frakkastígur dregur einmitt nafn sitt af sjúklingunum sem dvöldu á spítalanum. Hina spítalana var að finna í Vestmanna- eyjum og á Fáskrúðsfirði. „Það eru til fjölmargar sögur frá þess- um tíma af íslendingum sem björguðu Frökkum úr sjávarháska. Frönsk stjórn- völd sýndu þakklæti sitt í verki með því að leyfa íslendingum, sem lögðust inn á spítalann, að greiða aðeins hálft gjald fyrir vist sína þar,“ segir Pálmi. Minningarskjöldurinn hefur að geyma minningarorð um þá sem fórust auk stutts ágrips af sjósóknarsögu Frakka hér við strendur. Það voru guðni th. jóhann- esson, sagnfræðingur og forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti íslands, og Philippe O‘Quin, sendi- herra Frakklands, sem afhjúpuðu skjöld- inn. Á fundinum fluttu ávarp, auk áður- nefndra guðna og Philippe, þau albert eiríksson, frumkvöðull um sögu Frakka á Fáskrúðsfirði, og Líf Magneudóttir, forseti borgarstjórnar. reykjavíkurborg, franska sendiráðið og jCDexauc kostuðu gerð skjaldarins. Minntust franskra sjóara sem sóttu sjóinn á Íslandi Sólin brosti sínu breiðasta í gærmorgunn þegar hópur fólks kom saman á horni Linda- götu og Frakkastígs. Tilefnið var að afhjúpa skjöld við gamla franska spítalann til minn- ingar um franska sjómenn sem sóttu sjóinn. Sjúkir Íslendingar nutu góðs af spítalanum. Ég taldi held ég 32 sem er nokkuð gott miðað við að þetta hófst klukkan níu um morguninn Pálmi Jóhannesson, upplýsingafulltrúi sendiráðs Frakka á Íslandi Forsetarnir Guðni og Vigdís afhjúpuðu skjöldinn ásamt sendiherra Frakka. Mynd/PáLMI JóhAnnEsson 1 2 . j ú n í 2 0 1 7 M Á n U D A G U R16 t í M A M ó t ∙ F R É t t A B L A ð i ð tímamót Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. 1 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 0 E -5 8 0 0 1 D 0 E -5 6 C 4 1 D 0 E -5 5 8 8 1 D 0 E -5 4 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.