Fréttablaðið - 12.06.2017, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
DORMA KYNNIR
Eftir áralanga þróun og prófanir
höfum við náð markmiði okkar.
Við höfum búið til eina
þróuðustu dýnu heims
Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri
samsetningu 2500 keilulaga gorma
og móttækilegs minnissvamps.
Fáðu betri svefn
– sama hvert svefnmynstur þitt er.
90 x 200 cm 74.990 kr.
120 x 200 cm 89.990 kr.
140 x 200 cm 99.900 kr.
160 x 200 cm 114.990 kr.
180 x 200 cm 129.900 kr.
Simba dýnurnar eru fáan
legar í eftirtöldum stærðum
Komdu og
kynntu þér Simba
í næstu Dormaverslun eða á
www.simbasleep.is
Ég er brotaþoli kynferðisof-beldis frá því í æsku. Svo var mér byrluð lyf í bekkjarpartíi
í menntaskóla líka. Þannig að ég er
ein af þeim mörgu sem hafa nýtt
sér þjónustu Stígamóta,“ segir Sig-
rún Bragadóttir sem ætlar að láta
gott af sér leiða og styrkja Stígamót
með því að fara 10 km í Reykjavíkur-
maraþoninu, íklædd heimasaum-
uðum Wonder Woman-búningi.
Sigrún kveðst hafa grafið tilfinn-
ingar sínar og minningar tengdar
ofbeldinu djúpt niðri í langan tíma.
„Ég leitaði mér seint hjálpar hjá
Stígamótum. Í mínum huga gerðist
ekki neitt áður en ég fór að vinna í
mínum málum. Það er bara svona
sjálfsbjargarmekanismi,“ útskýrir
Sigrún sem leitaði til Stígamóta í
kringum fertugsaldurinn. „Þetta er
fyrir rúmum fjórum árum síðan. Og
Stígamót hafa bara gjörbreytt mínu
lífi. Það er eins og lífið sé komið í
lit.“
Sigrún talar af mikilli ástríðu um
Stígamót og starfið sem teymið þar
vinnur. „Þessi samtök, það er alveg
með ólíkindum að þau séu til! Þetta
er allt ókeypis, það þarf enginn
að borga fyrir þjónustuna og hún
stendur öllum til boða, óháð kyni,
kyngervi, kynhneigð, fyrri störfum
og svo framvegis, svo lengi sem
einstaklingur er orðinn 18 ára,“
útskýrir Sigrún sem fer í viðtöl hjá
Stígamótum ýmist vikulega, hálfs-
mánaðarlega eða mánaðarlega.
„Svona ofbeldi verður að tala
um, og afleiðingarnar, þær verður
að tala um líka,“ segir Sigrún sem
hefur glímt við áfallastreituröskun
vegna ofbeldisins sem hún varð
fyrir og er í veikindaleyfi frá vinnu
þessa stundina. „Það er vegna þess
að afleiðingarnar voru orðnar svo
miklar og margslungnar“.
Sigrún segir fólk í kringum sig
hafa sýnt sér mikinn skilning. „Ég er
búin að njóta mikil stuðnings, bæði
vinnuveitenda og fjölskyldu. Þetta
var bara eitthvað sem var búið að
vera að byggjast upp í langan tíma
og fólk sá það á mér.“
Ætlar ekkert að flýta sér
„Ég ætla ekki að hlaupa þessa vega-
lengd,“ segir Sigrún og hlær. „Ég
ætla að ganga þetta og gefa mér
mjög góðan tíma í þetta. Ég ætla að
stoppa reglulega og fá mér kaffi og
spjalla við fólk. Og aðeins að slaka
á. Þetta er táknrænt fyrir batann,
maður húrrar batanum ekkert af.
Maður lýkur honum ekkert innan
einhvers ákveðins tíma.“
Sigrún ætlar að fara 10 kílómetr-
ana með húmorinn að vopni. „Ég
ætla að klæðast Wonder Woman
búningi, sem ég ætla að búa til sjálf,“
segir hún og skellir upp úr. „Þegar
ég var lítil, þá var Wonder Woman
hetjan mín. Hún var dökkhærð
eins og ég, og ég var þá með dökkt
sítt hár, og hún var sterk týpa,“ segir
Sigrún sem kom á fund blaðamanns
í Wonder Woman bol. „Ég var mjög
mikill aðdáandi, og er enn í dag en
auðvitað á allt annan hátt núna.
Mér þykir vænt um hana í dag.“
Það er til lausn
Spurð út í hvort hún hafi skilaboð
til þeirra sem hafa lent í kynferðis-
ofbeldi en hafa ekki byrjað einhvers
konar bataferli segir Sigrún: „Sko,
manni getur ekki liðið eitthvað
rangt. Skömm og reiði eru heilbrigð
viðbrögð við óheilbrigðum aðstæð-
um. Og þið eruð ekki ein, við erum
því miður allt of mörg sem höfum
lent í þessu. Og það er til lausn!“
Sigrún tekur fram að úrræðið sem
Stígamót er henti kannski ekkert
öllum. „En þetta úrræði hentaði mér
og bjargaði mér. En mikilvægast er
bara að rjúfa þögnina. Hvernig sem
það er gert.“
Sigrún leggur áherslu á að fólk
geti verið alveg óhrætt við að gefa
Stígamótum séns. „Snilldin við
Stígamót er sú að valdið er aldrei
tekið af fólki sem mætir í viðtöl. Við
erum alltaf við stýrið, og við segjum
alveg jafn mikið og við viljum segja
eða alveg jafn lítið og við viljum
segja. En auðvitað er alveg eðlilegt
að fólk óttist, vegna þess að óttinn
er ein af afleiðingunum við að verða
fyrir kynferðisofbeldi.“
Áhugasömum er svo bent á að
skoða myllumerkið #sigrúnstormar
því með því ætlar Sigrún að gefa
fólki innsýn inn í undirbúninginn á
bak við 10 kílómetrana sem hún fer
í sumar og ferlið allt.
gudnyhronn@365.is
Mun fara
10 kílómetra
á táknrænan hátt
Kennarinn Sigrún Bragadóttir ætlar að fara 10 kílómetra í Reykja-
víkurmaraþoninu í sumar til styrktar Stígamótum. Sigrún ætlar að
fara vegalengdina í Wonder Woman búningi og með gjörningnum
vill hún þakka Stígamótum fyrir en samtökin hafa reynst henni vel.
Sigrún Bragadóttir er Stígamótum afar þakklát. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þetta er táknrænt
fyrir Batann,
maður húrrar Batanum
ekkert af.
1 2 . j ú n í 2 0 1 7 M Á n U D A G U R22 l í f i ð ∙ f R É T T A B l A ð i ð
1
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
0
E
-2
B
9
0
1
D
0
E
-2
A
5
4
1
D
0
E
-2
9
1
8
1
D
0
E
-2
7
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K