Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.06.2017, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 12.06.2017, Qupperneq 14
Kvosin Downtown Hotel er lítið og fallegt hótel sem var opnað í lok árs 2014 og er í miðborg Reykjavíkur. Staðsetn- ingin er frábær fyrir gesti hótelsins enda stutt í mörg af betri söfnum borgarinnar, frábærir veitingastaðir í næsta nágrenni og stutt í fjörugt næturlífið. Þótt hótelið sé staðsett í hjarta borgarinnar verða gestir fyrir engum truflunum þar sem hótelið stendur í skjóli Austurvallar og Dómkirkjunnar segir Joe Compton, forstjóri RAM ehf., sem rekur Kvos- in Downtown Hotel og Klaustur Downtown Bar. „Gestirnir okkar gætu ekki beðið um betri nágranna því dómkirkjan og Alþingi halda aldrei fyrir þeim vöku.“ Kvosin Downtown Hotel er lúxus „boutique“ hótel í eigu og rekstri einkaaðila segir Joe. „Við erum ekki hluti af stærri hótelkeðju og getum því algjörlega einblínt á gesti okkar hér og veitt þeim hámarksþjónustu og upplifun.“ Á litlu hóteli skiptir máli að að starfsfólkið sé fjölhæft segir Joe og nefnir sem dæmi að hótelstjórinn hafi lært til kokks og einn af starfs- mönnum móttökunnar, sem er kanadískur, tali fjögur tungumál. „Sá sem sér um viðhaldið hér hefur tekið upp og unnið myndbönd fyrir Icelandair og ýmsar íslenskar hljómsveitir auk þess hann hefur gefið út ljósmyndabók. Sjálfur er ég einnig vínþjónn og búinn að klára tvö af þremur stigum frá Court of Master Sommeliers. Við þurfum öll að leggja eitthvað af mörkum og gera okkar allra besta.“ Einstök herbergi Hótelið býður upp á 24 afar rúm- góð herbergi, þar af eru 23 þeirra með eldunaraðstöðu. „Ég hugsa að við séum með stærstu hótelher- bergin í Reykjavík, mögulega að undanskyldum íbúðahótelunum. Stærð herbergjanna er frá 26 m² upp í 60 m² sem setur þau í sama flokk og svítur á alþjóðlegum mæli- kvarða.“ Hönnun hótelsins er einstök og flest herbergjanna hafa svalir með útsýni yfir Alþingishúsið og dóm- kirkjuna. „Ýmislegt í herbergjunum er sérsmíðað, t.d. eldhúsinnrétt- ingar og rúm. Verandi útlendingur sjálfur og einn af fyrstu gestum hótelsins sem ferðamaður tengi ég vel við væntingar og kröfur ferða- manna til hótels og upplifunar á Íslandi. Við reynum eftir fremsta megni að gefa gestum okkar ein- staka íslenska upplifun og viljum að gestirnir séu partur af sögu okkar.“ Herbergin hafa hvert sitt nafn sem mörg eru tengd við íslenska náttúru, listamenn eða sögur auk þess sem hvert herbergi hefur mismunandi ljósmynd af götulífi Reykjavíkur teknar af listamann- inum Gaui H photography. „Lista- maðurinn Arngrímur Sigurðsson málaði stóra veggmynd fyrir okkur í garðinum en myndin túlkar öll nöfn herbergjanna.“ Hann nefnir einnig að starfs- menn móttökunnar kenni gestum íslenskt orð dagsins. „Við erum einnig með YouTube rás þar sem gestir okkar geta séð gönguleiðir í miðbænum ásamt landslagsmynd- böndum. Við njótum þess að hjálpa gestum okkar að ná fram þeirri upplifun sem þeir vænta og bjóðum þeim svo góða nótt með smákökum, mjólk og handskrif- uðum kveðjum.“ Joe segir starfsfólkið gefa hótel- inu sál. „Allt frá fyrstu spurningum um bókanir þar til löngu eftir brottför hafa gestir okkar stöðugt aðgengi að starfsmanni í mót- töku í gegnum tölvupóst, síma og skilaboðakerfi. Það skiptir sköpum fyrir gesti að hafa leiðsögn fyrir og á meðan dvöl stendur og þeir eru yfirleitt hissa og glaðir að hitta manneskjuna augliti til auglitis sem aðstoðar þá við bókanir og ferðir áður en að dvölin hefst. Enda hefur hótelið unnið Certificate of Excell- ence frá TripAdvisor fyrir þjónustu árin 2017 og 2016 en fyrir róman- tískasta hótelið árið 2015. Þetta er starfsfólkinu okkar að þakka og mikill sigur fyrir 24 herbergja hótel.“ Nýjar uppgötvanir Klaustur Downtown Bar er stað- settur í sama húsi og hótelið og er með fallegri börum borgarinnar. Á meðan áherslur hótelsins snúa að erlendum ferðamönnum er hlutverk barsins að kynna fyrir Íslendingum gott vín af ýmsu tagi. „Við flytjum inn vín á borð við gin og viskí sem fást hvergi annars staðar hér á landi og verðleggjum þau þannig að sem flestir geti auð- veldlega prófað nýja drykki.“ Hann segir klaustur almennt vera staði þar sem munkar eða nunnur geta komið saman og lært. „Það er ástæðan fyrir því að ég valdi þetta nafn á barinn. Við höfum aldrei viljað vera heitasti nýi staðurinn, fylla hann af eins mörgum gestum og hægt er og selja drykki á hæsta mögulega verði. Við viljum að fólk uppgötvi okkur og reynum að komum þeim skemmtilega á óvart. Ef gestir okkar prófa nýtt vín eða gin hjá okkur, og það breytir skoðunum þeirra eða kemur þeim á óvart, þá tel ég okkur hafa náð markmiði okkar. Vín eru ástríða mín og ég prófa hverja einustu vöru, skrifa bragðskýringar og býð einungis upp á vín í hámarks- gæðum.“ Í dag eru 140 léttvín á seðli bars- ins, þar af kosta yfir 50 flöskur undir 8.000 kr. „Hér má finna amerísk og áströlsk vín sem við flytjum inn og yfir 40 gintegundir og 30 viskíteg- undir. Einnig höfum við sérstakan gin & tonic seðil sem hefur verið mjög vinsæll. Hann inniheldur sjö drykki sem allir innihalda íslensk hráefni.“ Nánari upplýsingar má finna á www.kvosinhotel.is og www. klaustur.bar. Guðný Kemp, hótelstýra Kvosin Down- town Hotel, og Joe Compton, forstjóri RAM ehf., sem rekur Kvosin Down- town Hotel og Klaustur Down- town Bar. MYNDIR/GAUI H PHOTOGRAPHY Klaustur Downtown Bar býður m.a. upp á gin & tonic seðil. Allir drykkir inni- halda íslenskt hráefni. Mörg falleg herbergin hafa útsýni yfir Alþingi. Garður hótelsins er opinn yfir sumarið og hýsir reglulega tónleika og ýmsa viðburði. Við flytjum inn vín á borð við gin og viskí sem fást hvergi annars staðar hér á landi og verðleggjum þau þannig að sem flestir geti auðveldlega prófað nýja drykki. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . j ú N í 2 0 1 7 M Á N U DAG U R 1 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 0 E -2 B 9 0 1 D 0 E -2 A 5 4 1 D 0 E -2 9 1 8 1 D 0 E -2 7 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.