Norðurslóð - 24.02.2005, Blaðsíða 1
Svarfdælsk byggð & bær
29. ÁRGANGUR
Fimmtudaglr 24. febrúar 2005
2. TÖLUBLAÐ
Mótmæla undanþágu
frá banni við dragnóta-
veiðum á Evjafirði
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
veitt Brimi undanþágu til að
stunda dragnótaveiðar á Eyja-
firði. Klettur sem er svæðisfélag
Landssambands smábátaeigenda
á Norðurlandi vill að leyfið verði
nú þegar afturkallað.
Samkvæmt ákvörðun ráðu-
neytisins má dragnótabáturinn
Sólrún veiða þorsk til áframeldis
í kvíum Brims innan ákveðinnar
línu í Eyjafirði og inn að Hjalt-
eyri og er tilgangur veiðanna að
afla þorsks í tilraunaeldi.
Smábátasjómenn eru alls ekki
sáttir við þessa ákvörðun ráðu-
neytisins og kemur fram í álykt-
un frá Kletti að félagið hafi sent
Árna M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra áskorun um að fella
þessa undanþágu nú þegar úr
gildi. Segir félagið að það sé með
ólíkindum að sjávarútvegsráðu-
neytið veiti slíkt leyfi án nokk-
urs samráðs við útgerðaraðila á
svæðinu, ekki síst með tilliti til
þess að útgerð Sólborgar hafi á
sl. misserum orðið uppvís að því
að fara á svig við gildandi reglur
um svæðisbundnar dragnótaveið-
ar með „útflöggun".
„Fiskgengd í Eyjafirði hefur
verið í örum vexti á undanförn-
um árum og hafa útgerðarmenn
smábáta með kyrrstæðum veið-
arfærum getað nýtt sér þessa
auknu fiskgengd í sinni útgerð.
Það er því með mikilli skelfingu
sem þessir sömu útgerðarmenn
horfa upp á stórvirkt veiðiskip
skarkandi með togveiðarfæri á
veiðislóð sem jafnvel hefur verið
friðuð í áratugi, eða aldrei verið
leyfð dragnótaveiði á,“ segir í til-
kynningu Kletts.
í yfirlýsingu frá Brimi segir
að það sé stefna fyrirtækisins að
stuðla að ábyrgri nýtingu náttúru-
auðlinda, meðal annars með því
að þróa fiskeldi sem raunhæfan
valkost til viðbótar við veiðar á
nytjastofnun sjávar.
Meirihlutinn
leggur til lokun
Meirihluti bæjarstjórnarhefur
nú lagt fram tillögu um að allir
skólar Dalvíkurbyggðar verði
sameinaðir í áföngum og að
nýr sameinaður skóli taki til
starfa haustið 2006. Gert er
ráð fyrir að kennsla leggist af
á Húsabakka og skólabörn
þaðan fari í Dalvíkurskóla
strax í haust. Skólastjórum
Dalvíkur og Árskógarskóla
verði sagt upp frá og með
1. ágúst 2006 en þess í stað
ráðinn einn skólastjóri fyrir
báða kennslustaðina og tveir
aðstoðarskólastjórar, annar
með aðsetur í Árskógarskóla.
Tillögunni var vísað til
Fræðsluráðs sem falið var að
kynna hana foreldraráðum
allra skólanna en væntanlega
verður hún endanlega borin
undir atkvæði á bæjarstjórn-
arfundi 1. mars nk.
Sameiningarkosn-
ingum frestað?
Líklegt er að kosið verði um
sameiningu sveitarfélaga á Eyja-
fjarðarsvæðinu í október, en ekki
í lok aprfl eins og stefnt hefur ve-
rið að til þessa. Ástæðan er sú
að ekki hefur náðst samkomulag
um tekjuskiptingu milli ríkis og
sveitarfélaga.
Á næstu dögum verður reynt
til þrautar að ná samkomulagi
um verkefna- og tekjuskiptingu
ríkis og sveitarfélaga. Nefnd sem
tjallar um málið hefur fundað
stíft að undanförnu þar sem sveit-
arstjórnarmenn telja kosningar
um sameiningu sveitarfélaga í
uppnámi ef þessi mál liggja ekki
fyrir. Samkvæmt lögum sem sam-
þykkt voru á síðasta vorþingi á
að kjósa um sameiningu sveit-
arfélaga 23. aprfl nk. Nefnd á
vegum félagsmálaráðuneytisins
hefur unnið að mótun tillagna til
að kjósa um. Frumdrögin voru
send sveitarstjórnum í haust og
þau hafa skilað inn athugasemd-
um sem tekið hefur verð tillit
til í mörgum tilvikum. Nefndin
er tilbúin með sínar tillögur, en
bíður með að kynna þær þar
til niðurstöður liggja fyrir hjá
þeirri nefnd sem fallar um verk-
efna- og tekjuskiptingu ríkis og
sveitarélaga. Vonir standa til að
samkomulag geti náðst á næstu
dögum, enda síðustu forvöð, ef
kosningar eiga að fara fram í vor.
Takist það ekki verður kosning-
um frestað fram á haustið.
Tveir karlakórar á
Svarfdælskum mars
Svarfdælskur mars fer fram helgina 11.-13. mars. Að vanda hefst
hátíðin með heimsmeistarakeppni í brús að Rimum. Húsið verður
opnað kl. 20 og er stefnt að því að spilamennskan geti hafist kl.
20:30. Eins og áður verða kennslu- og ætíngabúðir starfræktar
í hliðarsai og þar verður einnig haldin keppni fyrir börn og
skemmra komna. Ekki verður nein skráning fyrirfram. Keppendur
eru beðnir að taka með sér spil.
Laugardaginn 12. mars verður sannkallaður tónlistarviðburður
í Dalvíkurkirkju kl. 16. Þar leiða saman hesta sína Karlakór Reykja-
víkur og Karlakór Dalvíkur og munu eflaust margir vilja heyra
það samspil. Kl. 21 verður svo hinn árvissi dansleikur að Rimum.
Þar verður stiginn hinn svarfdælski mars við harmónikkuundirleik
eins lengi og stætt er og stuðið stendur. Aðgangseyri á alla við-
burðina verður stillt í hóf.
Framfarafélag Dalvíkurbyggðar
Málþing um líftækni,
fískirækt og sjávamytjar
Málþing um líftækni, fiskirækt og sjávarnytjar verður haldið í Ár-
skógi laugardaginn 19. mars, kl. 13 30. Framfarafélag Dalvíkurbyggð-
ar efnir til þingsins í samvinnu við Háskóla Islands, Hólaskóla og
Háskólann á Akureyri.
Meðal málshefjenda verða Hjörleifur Einarsson prófessor við
Háskólann á Akureyri, Skúli Skúlason rektor Hólaskóla, Bjarni
Óskarsson athafnamaður og forstjóri, Völlum, og Guðmundur H.
Guðmundsson prófessor við Háskóla íslands.
Að loknum framsögum verða almennar umræður og frummælendur
svara fyrirspurnum fundarmanna. Eflaust fýsir marga að fræðast um
möguleika fiskeldis í Eyjafirði sem er í fréttum hér á síðunni.
Síðari hluta fuglatalningarskýrslu
Hin venjubundna fuglatalning
fór fram þann 9. janúar sl. um allt
land. Hér um slóðir töldu þeir
Þórarinn Hjartarson í miðsveit
Svarfaðardals og Júlíus Kristj-
ánsson og Sveinbjörn Steingríms-
son á Dalvík og nágrenni. Skýrsla
Þórarins birtist í síðasta blaði en
hér kemur skýrsla Júlíusar og
Sveinbjarnar.
Raunar kom óveður í veg fyrir
að þeir gætu talið fugla þann 9.
svo talningin fór fram þann 17.
Talningasvæði þeirra var frá
ósum Svarfaðardalsár norður
yfir Brimnesá og út að Sauðanes-
lendingu.
Veðurskilyrði voru sæmileg,
þó gekk á með éljum öðru
hverju. Göngufæri var erfitt
vegna fannfergis og sums staðar
illfært.
Niðurstaða talningarinnar var
þessi:
Stokkönd 87
Hávella 200
Æðarfugl 320
Rjúpa 7
Sendlingur 25
Svartbakur 8
Hvítmáfur 30
Bjartmáfur 25
Hettumáfur 100
Músarrindill 1
Snjótittlingur 25
Auðnutittlingur 1
Hrafn 4
Dvergmáfur 1
Samtals eru þetta 834 fuglar af
14 tegundum.
í skýrslu þeirra Júlíusar og
Sveinbjarnar segir að helftin af
fuglunum hafi verið við Dalvík-
urhöfn. Þar var verið að landa
loðnu og fuglinn sótti í ætið.
Töluvert brim var við fjöruborð
og þar af leiðandi fátt um fugla
nærri landi. Þeir láta þess einnig
getið að þeir treysti sér ekki til að
kyn- og aldursgreina fuglinn eins
og eyðublaðið gerir ráð fyrir.
Innbrot í
Árskógarskóla
Um sjðustu helgi var brotist
inn í Árskógarskóla og þaðan
stolið tveimur myndavélum,
þremur fartölvum, glænýjum
skjávarpa og einhverju fleiru.
Að sögn lögreglu voru nokkr-
ar skemmdir unnar, m.a var
gluggi brotinn og tvær hurðir
voru spenntar upp. Lögregla
segir að innbrotið hafi átt sér
stað einhvern tíma frá því kl.
14 á föstudagfram á mánudags-
morgun. Eru þeir sem hafa
orðið mannaferða varir beðn-
ir um að láta lögreglu vita.
Opnunartími:
Mán.-fös, 10-19.30
laug. 10-18
sun. 13-17
Matvöruverslun - rétt hjá þér
Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202