Norðurslóð - 25.04.2013, Blaðsíða 1
Svarfdælsk byggð & bær
37. ÁRGANGUR
Fimmtudagur 25. apríl 2013
4.TÖLUBLAÐ
Veturinn œtlar seint að sleppa af okkur takinu. Þó kominn sé sumardagurinn fyrsti er enn þykkur snjoskjöldur yfir
öllu og snjótraðir á götum Dalvíkur.
Nýtt hvalaskoðunarskip
Arctic Tours fœrir ut kvíarnar
Arctic Tours hefur fest kaup á
50 tonna eikarskipi til að gera
út á hvalaskoðun. Fyrir á félagið
annað eikarskip, Draum EA en
nýja skipið vantar enn nafn.
Nýja skipið var áður gert út á
hvalaskoðun í Reykjavík og hefur
leyfi fyrir 60 farþega. Draumur er
skráður fyrir 42 farþega þannig að
nú er hægt að sigla með yfir 100
farþega í einu út á Eyjafjörðinn á
góðum degi á skipunum báðum.
Að sögn Freys Antonssonar er
það af brýnni þörf að ráðist var
í að kaupa annan bát. Miðað við
bókunarstöðuna nú og reynslu
síðustu ára þyrfti að vísa fólki frá
i stórum stíl í júlí og fram í miðjan
ágúst ef ekkert væri að gert. Nú eru
komnar hátt í 1300 bókanir en voru
á bilinu 100-200 á þessum tíma
áður. „Langstærstur hluti farþega
er að bóka sig daginn áður en þeir
koma þannig að maður verður bara
að vera viðbúinn“. segir Freyr sem
áætlar að sækja bátinn til ísafjarðar
um aðra helgi ef veður leyfir.
Þessa dagana er verið að ganga
frá mannaráðningum. Eins þarf
að leysa húsnæðismál. 1 fyrra var
útgerðin með aðstöðu á neðri hæð
veitingahússins Við höfnina en því
samstarfi er lokið. Leitað hefur
verið hófanna við Byggðastofnun
um húsnæðið þar sem Norðurströnd
var með skrifstofúr og er svars að
vænta þaðan innan skamms. Eins
og sagt hefúr verið frá auglýsti
Freyr eftir hlutafjáraukningu upp
á 25 milljónir í fyrirtækið sl. vetur.
Margir hafa keypt sig inn en enn er
þó hægt að bæta við hluthöfum.
Gæsahúð og tár
Frábœr stemmning á júróvisjóntónleikum
„Þetta var algert gæsahúðar-
augnablik “ sagði Júlíus J úlíusson
um undirtektir áheyrenda þegar
Eyþór Ingi söng Ég á Uf með
Júróbandinu á tónleikunum í
Iþróttamiðstöðinni á Dalvík sl.
sunnudagskvöld.
Hátt í 400 áheyrendur voru
á tónleikunum og þegar Eyþór
tók fyrsta tóninn hóf 40-50 bama
hópurinn sem sat á gólfinu framan
við sviðið upp raust sína sem
einn maður og söng hvert orð frá
upphafi til enda lags. „Menn og
konur felldu tár því þetta var svo
magnað“ sagði Júlli.
Friðrik Ómar, Regína Ósk
og Selma rúlluðu upp hverri
júrósyrpunni á fætur annarri. Matti
Matt smeygði sér inn í bakraddimar
í Gledibankanum, Waterloo og
fleiri númemm og flutti auk
þess Aftur heim sem hann söng
í Þýskalandi með Vinum Sjonna
forðum. Þá notaði hann tækifærið
sem hann sagðist allt of sjaldan
fá og flutti sjálfan Eyjafjallajökul
með látum. Eyþór var sömuleiðis
á þungarokksskónum og söng
m.a. Lordi-tryllinn Hard Rock
hallelujah og Wig wam smellinn
In my dreams (Come on, come on,
come on!!).
Listamennimir fengu inni í
íþróttamiðstöðinni endurgjalds-
laust. Salnum var skipt í miðju
og sannaði sig þama sem hreint
frábært tónlistarhús að sögn Júlla.
Sæplastkerin láta
vita af sér
Starfsmenn Promens á Dalvík
eru nú staddir á hinni árlegu
sjávarútvegssýningu í Brussel
þar sem kynnt verður nýtt MIND
rekjanleikakerfí fyrir ker. í
Sæplast-kerin er steyptur þráðlaus
sendir sem sendir upplýsingar um
staðsetningu og hitastig í hverju
keri fyrir sig í móttakara sem
staðsettur er í vinnslu, geymslu
eða flutningatæki. Kerfið heldur
þannig nákvæma skýrslu um
hitastig í kerjununt sem auðvelt
er að nálgast á rauntíma á netinu.
Hilmar Guðmundsson sölu-
og markaðsstjóri segir þetta
kerfi mæta stöðugt auknum
kröfum um rekjanleika matvæla
og gæðaeftirlit í matvælaiðnaði.
Nýleg hrossakjötshneykslismál
í Evrópu setji aukinn þrýsting á
matvælaframleiðendur varðandi
í dag, Sumardaginn fyrsta
er opið hús á Húsabakka og
gestum og gangandi boðið upp á
kökuhlaðborð að hætti hússins
auk þess sem gestum gefst
kostur á að skoða sig um og
berja augum ýmsar breytingar
sem orðið hafa á húsnæðinu að
undanförnu.
Hægt hægt.
A fuglasýningunni „Friðland
fuglanna“ verður vígt nýtt
gagnvirkt margmiðlunaratriði
sem nefnist „Hægt, hægt“. Þar
gefur að líta á sjónvarpsskjá
flórgoða á hreiðri sínu. En fuglinn
sá er var um sig og flýgur burt ef
ekki er farið varlega að honum.
Hægt og hljóðlega má hins vegar
komast býsna nærri hreiðrinu og
sjá hvar ungamir una sér undir
vængjum fuglsins.
Atriði þetta er styrkt af
Menningamefnd Eyþings og
Menningarráði Dalvíkurbyggðar.
Margmiðlunarhönnuður þess er
Egill Ingibergsson en útlit og
ævintýralega umgjörð gerði Hekla
Björt Helgadóttir myndlistakona.
Gestamóttakan fær
andlitslyftingu.
Ymsar breytingar hafa orðið
á gestamóttökunni á Húsabakka
rekjanleika og gæðaeftirlit og þar
liggi sóknarfæri fyrir Prómens.
Sýningin í Bmssel er sú
stærsta sinnar tegundar í
heiminum. Hana sóttu á síðasta
ári um 25.000 mannns frá 140
löndum en sýningaraðilar em yfir
1600 frá 70 löndum víðs vegar
um heiminn. Eftir Bmssel liggur
svo leiðin á sýningu í Frankurt í
byrjun maí.
að undanfömu og hafa hluthafar
í Húsabakka ehf. lagt gjörva
hönd á plóg við málun og smíðar.
Smíðaðar hafa verið nýjar sturtur
í gamla skólahúsinu og ýmsar
breytingar gerðar á andyri og
borðsal. Þá hefur skólastjóraíbúð
verið breytt í gistiaðstöðu með
eldhúskrók og setustofú.
A veggjum er víða að frnna
myndir, muni og kennslugögn
sem minna á fyrri daga þegar
Húsabakkaskóli var og hét.
Eins og þeir muna sem eytt
hafa æsku sinni í heimavist
Húsabakkaskóla bám herbergi
nöfn ættuð goðheimum, s.s.
Miðgarður, Þrúðvangur, Fensalir
og Sökkvabekkur. Þessari hefð
hefur verið áfram haldið. 1 fyrra
bættist við Fólkvangur og nú em
orðin til þrjú herbergi til viðbótar;
Hliðskjálf Urðarbrunnur og
Jötunhreimar
Nokkur umræða hefur sprottið
á meðal hluthafa hvað kalla eigi
syðra húsið í daglegu tali er nefnt
syðri vist. I anda þess að halda
sig við svarfdælska náttúm sbr.
Rimar hafa menn staðnæmst við
nafnið Hrafnabjörg en þau björg
eru áberandi kennileiti í ijallinu
ofan við Húsabakka, nokkru
neðan við Nyrkurtjöm.
Opnunartími:
Mán. - fðs. 10-19
laug. 10-18
sun. 13-17
Matvöruverslun - rétt hjá þér
Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202