Norðurslóð - 26.03.2015, Page 6

Norðurslóð - 26.03.2015, Page 6
Tímamót Skírnir í síðasta tölublaði sögðum við frá Sunnu Valdísi sem skírð var í Dalvíkurkirkju 14. febrúar sl. Foreldrar hennar eru María Jónsdóttir og Arthur M Eggertsson (en ekki Helgason eins og ranghermt var). Við biðjumst velvirðingar á mistökunum og birtum því til áréttingar mynd að Sunnu Valdísi. Þann 21. mars var skírð í Tjamarkirkju, Hrafnhildur Inga. Foreldrar hennar eru: Brynhildur Heiða Jónsdóttir og Hjálmar Birgir Jóhannsson til heimilis að Másstöðum í Skíðadal. Prestur var sr. Oddur Bjami. Afmæli Þann 3. mars sl. varð 75 ára, Guðmundur Jónsson, Hjarðar- slóð 4e, Dalvík Þann 10 mars varð 80 ára, Hafdís Hafliðadóttir, Stórhólsvegi 8, Dalvík Þann 18. mars varð 95 ára Anna Sigríður Gunnlaugsdóttir, Dalbæ, Dalvík í dag, 26. mars er 70 ára, Kjartan Gústafsson, Bimunesi, Arskógsströnd. Norðurslóð árnar heilla Andlát Þann 23. febrúar lést á Dalbæ, Lilja Rögnvaldsdóttir fyrrverandi Húsfreyja á Hóli í Svarfaðardal. Lilja fæddist í Dæli í Skíðadal 20. janúar 1918. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Ámadóttir(1888-1982), frá Dæli í Skíðadal og Rögnvaldur Tímoteus Þórðarson (1882- 1967), frá Hnjúki í Skíðadal. Systkini Lilju: Árni Marinó Rögnvaldsson (1909- 2004), Guðlaug Halldóra Rögnvaldsdóttir (1910- 1980), Jón Kristinn Rögnvaldsson (1913- 1999), Gunnar Kristmann Rögnvaldsson (f. 1915), Þórdís Rögnvaldsdóttir (1920-2014), Rögnvaldur Rögnvaldsson (1923-1988), Snorri Þór Rögnvaldsson( 1926- 2008), Hörður Rögnvaldsson, (f. 1928), Ármann Rögnvaldsson, (f. 1931), Auður Rögnvaldsdóttir, (f. 1934). Fóstursystir; Jóhanna Hallgrímsdóttir, (1899-1975). Eiginmaður Lilju var Friðbjöm Adólf Zophoníasson( 1918-1986), frá Hóli i Svarfaðardal, foreldrar hans voru Zophonías Jónsson og Súsanna Guðmundsdóttir sem bæði em látin. Böm Lilju og Friðbjöms em: 1. Súsanna, f. 1946, maki Júlíus Tryggvi Steingrímsson. Böm þeirra em Sigrún og Bjöm Ingvar. Bamaböm þeirra em sex. 2. Rögnvaldur Skíði, f. 1949, maki Guðríður Olafsdóttir. Böm þeirra em Lilja Berglind og Olafur Helgi. Bamaböm þeirra eru sex. 3. Kristinn Atli, f. 1950, maki Halla Soffía Karlsdóttir. Böm þeirra em Karl Ingi og Bjöm Snær. Bamböm þeirra eru tvö. 4. Sólborg, f. 1955, maki Sigurður Sveinn Alfreðsson. Böm þeirra em Jón Ingi og Súsanna. Barnaböm þeirra eru tvö. 5. Soffía Ingibjörg, f. 1962, maki Teitur Gylfason. Böm þeirra em Nanna og Embla Yr. Þau eiga eitt bamabam. Lilja ólst upp í Dæli í Skíðadal. Hún var í vinnumennsku í Reykholti í Borgarfírði í einn vetur. Lilja var einn vetur í kvennaskólanum á Laugalandi. Árið 1945 giftist Lilja Friðbimi, þau bjuggu á Hóli í Svarfaðardal frá 1945 til 1974. Árið 1974 fluttust þau til Dalvíkur og vann Lilja við ýmis störf. Utför hennar fór fram í Dalvíkurkirkju 28. febrúar sl. Þann 11 .mars lést á Landspítalanum í Reykjavík, Ragnheíður Ragnarsdóttir áður til heimilis að Böggvisbraut 3 Dalvík. Utför hennar var gerð í kyrrþey frá Dalvíkurkirkju, laugardaginn 21.mars síðastliðinn. —'— * ■ Þann 18.mars lést á Sjúkrahúsi Akureyrar, Árni Guðfinnsson til heimilis að Karlsbraut 21 Dalvík. Utför hans fer fram frá Dalvíkurkirkju, föstudaginn 27.mars kl. 13:30. Drón, app og sólmyrkvi Boðið upp á jjölmargar nýungar á skíðamóti Islands Þessar kempur voru mœttar í Böggvisstaðajjal! alla leið frá skíóaskólanum í Oppdal í Noregi til að taka þátt í FlS-móti sem keyrt var samhliða Islandsmótinu. Þeir œfóu í Bóggvisstaðafjalli fyrir mótið og voru hœst ánœgðir með dvölina (Ljósm. SveinnA. Torfason) „Það gekk allt að óskum þrátt fyrir að veðrið hafi verið fyrsta flokks allan tímann og við Við erum hæstánægð með hvernig til tókst“ segir Sveinn Arndal Torfason hjá skíðafélagi Dalvíkur eftir skíðamót Islands sem haldið var á Dalvík og í Olafsfirði um síóustu helgi. Vegna snjóleysis í Ólafsfirði þurfti að breyta dagskrá mótsins 5 dögum fyrir keppni. Til stóð að hafa göngu og alpagreinar á báðum stöðum en endirinn var sá að keppni í alpagreinum var á Dalvík og gangan fór fram á Olafsfirði. Veðrið á föstudaginn var eins og best verður á kosið en vindstrekkingur á laugardaginn gerði mótshöldurum og keppendum erfitt fyrir. Engu að síður tóks klára boðaða dagskrá og er það fyrst og fremst að þakka frábæru og reyndu starfsfólki segir Sveinn. Það voru ýmis nýmæli hjá okkur sem ekki hafa áður sést á skíðalandsmótum. Við buðum t.d. upp á sólmyrkva. Það verður ekki toppað í bráð. En eki bara það Bjarni Valdimarsson bjó til sérstakt app fyrir mótið. Við höfðum samband við Pedrómyndir sem kom með dróna til að taka yfirlitsmyndir sem sjá má á U-tube svo smíðaði Halldór Gunnarsson fyrir okkur sérstakt ráshlið fyrir samhliða svig, sérhannað eftir alþjóðlegum reglum þannig að það verður erfítt fyrir næstu mótshaldara að taka við keflinu og gera betur. Alls kepptu 55 keppendur í alpagreinum og 20 í göngu. Boðið var upp á afþreyingu fyrir keppendur, m.a. klifurvegg og golf í Víkurröst og svo var kynning á Bakkabræðrum í kaffihúsi Gísla Eiríks og Helga. Keppendum þjálfurum og fararstjórum var boðið í veislu á Þulu á föstudagskvöldinu og á laugardagskvöld voru verðlaunaafhendingar í Bergi. Við það tækifæri voru einnig veitt heiðursverðlaun; Einar Hjörleifsson og Bjami Jóhann Valdimarsson fengu starfsmerki UMSE. Jóhann Bjamason hlaut gullmerki UMSE fyrir störf bæði á sviði skíða- og frjálsíþrótta og þeir Þorsteinn Skaftason og Jón Halldórsson hlutu heiðursviðurkenningu og gullmerki ISI fyrir störf sín í þágu skíðaíþróttarinnar F.v. Einar Hjörleifsson, Jón HalUlórsson, Jóhann Bjarnason, Þorsteinn Skaftason og Bjarni Jóhann Valdimarsson Háhraðatenging lögð um dreifbýli Dalvíkurbyggðar Ljósleiðari á alla bæi Tengi hf sér um alla framkvæmd verksins og greiðir sveitarfélagið fyrir það kr. 24 milljónir. Heimtaugargjald er kr. 100 þúsund „fyrir hvert heimili með fastri búsetu á framkvæmdatíma" eins og segir í samningnum. Fyrir notendur sem ekki falla undir þá skilgreiningu gerir fyrirtækið tilboð m.t.t. aðstæðna. Þorsteinn Bjömsson sviðsstjóri Veitu- og hafnasviðs segir að þeir hjá Tengi hafi hug á að ljúka verkinu á skemmri tíma en þrem ámm. Fyrirtækið lagði sem kunnugt er ljósleiðarastreng með hitaveiturörum Aii Wr Vilhjálmsson liðluleikari Undirleikari Svanur Vilbergsson Meöal verka á efniskránni er verk eftir Nicolo Paganini og Astor Piazzola Menningarsjóður Dalvíkurbyggðar IDALPAY Pay and bc Palcf Onlioc Veitu- og hafnasvið Dalvíkur- byggðar hefur samiö við fyrirtækið Tengi hf um lagningu ljósleiðara í dreifbýli sveitarfélagsins. 1 samningnum er verkinu skipt í þrjá áfanga á ámnum 2015-2017. í fyrsta áfanga verður lokið við lagningu á Árskógsströnd, í þorpin og á sveitabæi. I öðmm áfanga er neðri hluti Svarfaðardals út að Hóli á Ufsaströnd og í þriðja áfanga verður lokið við lagningu í framdalina. Innan þriggja ára verður því komin háhraðatenging á hvert heimili í dreifbýli í Dalvíkurbyggð. á Árskógsströnd og fram í Svarfaðardal þegar þær framkvæmdir stóðu. „Þeir eiga því heilmikinn stofn í jörðu sem gerir þennan samning sérlega hagstæðan fyrir svetarfélagið“ segir Þorsteinn. Ljósleiðarastrengurinn er í eigu Tengis hf og greiða notendur af honum mánaðargjald sem er samkvæmt verðskrá nú kr 2915.

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.