Norðurslóð - 24.11.2016, Síða 3

Norðurslóð - 24.11.2016, Síða 3
Norðurslóð - 3 Jóhann Antonsson Röðull hf útgerðarfélag - Aðstaða byggð í landi annar hluti Þessi mynd er líklega tekin 1935 eöa 36. Ljósmyndarinn stendur á Lágarbryggjunni sem uppliajlega var nefnd Höpfnersbryggja. Allar byggingarnar sem sjást á myndinni eru nú horfnar nema litla hvíta húsið framan við bakkann (gamla rafstöðin) sem enn stendur í bakkanum sunnan við fiskvinnsluhús Samherja. Hvítu húsin sem eru í klasa til vinstri á myndinni eru verslunarhús KEA og eru þar sem Húsasmiðjan og Samkaup eru í dag. Húsið uppi á bakkanum, ofan við rafstöðina, er gamla sláturhúsið. Lengst til hœgri uppi á bakkanum er svo Höpfner. Það var síðar flutt ofar í landið og er núna Kambhóll, sem stendur sunnan við Hvol. Ljósm. úrsafniKEA Ljósmynd frá 1935 eða 36. Hér tekur Ijósmyndarinn myndina upp eftir Lágarbryggjunni sem var mikið notuð til löndunar á fiski. Aflinn var svo settur í vagna sem gengu eftir teinunum sem sjást á bryggjunni. Húsið lengst til hœgri upp á bakkanum er Höfn sem enn stendur. Húsið Höpfner, sem er á liinni myndinni frá sama tíma hér á síðunni, er vinsta megin á þessari mynd. Hvíta litla liúsið fyrir miðri mynd erfrystihúsið sem síðar var ítrekað byggt við. Hœgra megin við frystiliúsið eru Guluskúrarnir. Norðurgarðurinn kom svo framundan norðurenda Guluskúranna fimm árum síðar. Ljósm úr safni KEA Þessi mynd er tekun rétt fyrir 1960 og sýnir Egilshúsið ogfyrir norðan það sést Röðulshúsið sem er einnar liœðar hús. Þegar húsin voru byggð um 1950 náði sjórinn nánast alveg upp að þeim. Ljósm. Héraðsskjalasafn Sv. I fyrstu greininni um Röðul hf. útgerðarfélag, í októberblaði Norðurslóðar, var ekki farið rétt með fæðingardag Jóns Skagfjörð Stefánssonar. Hann var sagður hafa verið 25. ágúst, en hið rétta er að Jón var fæddur 27. ágúst 1916. Einstaklingar úr árgangnum sem átt hefðu aldarafmæli nú í ár, það er að segja þeir sem fæddir voru árið 1916 hér í Svarfaðardal, urðu áberandi í þjóðlífinu og gildir það um Jón. Það á þó sérstaklega við um Kristján Eldjám, sem fæddist á Tjöm 6. desember 1916, en hann varð eins og kunnugt er, síðar forseti íslands. Þá má geta þess að Jóhann Tryggvason, sem var þekktur tónlistarmaður hér á landi á sinni tíð, og síðar tónlistakennari og hljómsveitarstjóri í London, fæddist á Ytra Hvarfi 20. janúar 1916. Ef dæmt er út frá þessum þremur fulltrúum árgangsins, sem störfuðu hver á sínu sviði, má því segja að árgangur 1916 hafi verið öflugur. Vertíðarbátar í greininni í októberblaðinu var sagt frá aðstæðum og útgerðarháttum í aðdraganda þess að fimm ungir menn á Dalvík, allir innan við þrítugt, stofna hlutafélag í þeim tilgangi að kaupa bát sem þeir létu smíða í Svíþjóð. Báturinn Bjarmi EA 760 var einn af þremur sem komu nýir til Dalvíkur sumarið 1946. Utgerðarmynstur þessara báta var líkt og margra norðlenskra báta á þessum tíma og reyndar næstu tuttgu árin, en það var þannig að í ársbyrjun fóru þeir á vetrarvertíð suður með sjó og var aðallega gert út frá Suðurnesjum. Norður komu bátarnir yfirleitt ekki fyrr en eftir lokadaginn 11. maí. Það kom þó fyrir að þeir komu fyrr og reyndu þá fyrir sér með þorskanet eða línuveiðar snemma vors hér fyrir norðan. A sumrin stunduðu bátamir allir síldveiðar og lönduðu síldinni þá eins mikið á Dalvík til söltunar og aðstæður leyfðu. Aðstaða til sfldarsöltunar á Dalvík var mjög frumstæð áður en hafnarframkvæmdir hófust um 1940, en það var þó saltað í yfir 4.000 tunnur hér 1937 og 6.000 tunnur árið 1938 sem var ekki svo lítið miðað við sjávarplássin hér í kring. Þess má geta að mest var saltað hér á Dalvík árið 1961 eða í 19.215 tunnur. I næstu grein verður sagt meira frá sfldveiðunum og sfldarsöltun á Dalvík og þætti Röðuls hf. eða Jóns Stefánssonar í starfrækslu sfldarplana. Stopult hráefni yfir veturinn A haustin var sfldin veidd í reknet í staðinn fyrir sfldamót og voru þær veiðar stundaðar út af Vestfjörðum eða í Húnaflóanum og var sfldinni þá aðallegaa landað í tilfellum Bjarmaútgerðarinnar í Bolungarvík. Sum haust var þorskveiði stunduð ýmist með línu eða netum. Það stóðu auðvitað vonir til að stækkun báta myndi auka fiskvinnsluna á staðnum og það varð með söltun á sfld yfir sumartímann. Það var hins vegar flóknara með bolfiskvinnslu. Bæði var aðstaða í landi til vinnslu mjög fmmstæð og líka hitt að bátamir fóm á vertíð suður yfir vertrartímann eins og áður er sagt, því þar var mun meiri veiði en hér fyrir norðan. Það var því stopul hráefnisöflun fyrir vinnslu yfir veturinn. Myndirnar sem birtast hér á síðunni úr safni KEA sýna vel hvemig aðstæðan var í láginni, eða þar sem síðar varð frystihúsið og svo fiskvinnsla Samherja nú í dag. Guliskúrinn, sem bent er á í myndatexta með myndinni sem tekin var upp lágarbryggjuna, var hólfaður niður þannig að útgerðir gátu fengið aðstöðu þar og þá saltað fisk ef því var að skipta. Einnig er bent á hvít hús fyrir miðri mynd við suðurenda Gulaskúrsins, en þau mynda upphaf frystihúsbyggarinnar á Dalvík. Um það leyti sem myndin er tekin, eða 1935, keypti KEA þetta hús af íshúsfélagi Dalvíkur sem var félag í eigu ýmissa útgerðarmanna á staðnum. Þar hafði verið fryst sfld til beitu við mjög fmmstæðar aðstæður. Snjó var safnað yfir veturinn og síðan var salti blandað í snjóinn til að ná upp ofurkælingu þegar frysta átti. KEA hefur fiskvinnslu á Dalvík KEA keypt húsið að áeggjan bænda til að frysta kjöt í sláturtíðinni á haustin. KEA keypti vélar fyrir frystinguna og gat, auk frystingar á kjöti, þjónað útgerðinni með frystingu sfldar til beitu. Það var svo árið 1939 sem kaupfélagið hóf vinnslu og frystingu á fiski í þessum húsnæði og viðbyggingar við húsnæðið fóm að rísa, en sú viðbyggingarsaga verður ekki rakin hér að þessum sinni. Frystihússtjóri á þessum byrjunarámm var Kristján E Jóhannesson, síðar hreppsstjóri á Dalvík. Bima dóttir Kristjáns segist muna vel eftir aðstæðunum þarna á þessum árum. Sjálf hafi hún unnið við vinnsluna fermingarvorið sitt 1946. Hún segist hafa unnið við að raða flökum í fimm- pundapakkningar í pönnu og hafi þær svo farið inn í frystiskápa. Það var raðað í margar fimmpunda- pakkningar í frystihúsinu á næstu áratugum, enda aðalpakkningin fyrir fisk í sölu til Bandaríkjanna. Með rekstri frystihússins var KEA komið með forystu í bolfiskvinnslu á Dalvflc sem má segja að hafi haldist og þróast í þá vinnslu sem nú er hér rekin af Samherja. Samskipti KEA, eða réttara sagt frystihúsins, og einstaklingsútgerðanna þriggja sem keyptu Svíþjóðarbátana 1946, vom aldrei mikil og áttu þær útgerðir aldrei mikinn þátt í hráefnisöflun húsins. Enda þróuðust mál þannig að þau byggðu hvert sitt eigið hús til athafna og þar á meðal fiskvinnslu. Hæstaréttardómur um landfyllingu Þegar nýi brimvamargarðurinn var farinn að virka eins og til stóð kom í ljós að honum fylgdi landfylling. Sérstaklega hlóðst upp sandur og land norðan við garðinn. Landið á þessum slóðum var í eigu Brimness, eða Stefáns Jónssonar bónda þar. Stefán taldi að landfyllingin væri hluti af sínu landi en hreppsnefnd taldi að þar sem landfyllingin væri afleiðing af breyttum hafstraumum vegna hafnargarðsins væri þetta hluti hans og í eigu hreppsins. Dómstólar skám úr þessu deilumáli og dæmdi Hæstiréttur Stefáni landfyllinguna í frægum dómi frá 1946. Enn í dag er vitnað til þessa dóms ef sambærileg mál koma upp. Hreppurinn keypti síðar allt Brimneslandið af Stefáni. A þessari landfyllingu byggðu síðan þessar þrjár útgerðir hús fyrir rekstur sinn. Það var Egill Júlíusson sem reið á vaðið og leggur hann fram frumteikningu að sínu húsi í júlí 1949 og virðist hefja byggingarframkæmdir það ár. Endanlegar teikningar em dagsettar í júní 1952 og byggingarframkvæmdum lokið 1953. Húsið, sem yfirleitt gengur undir nafninu Egilshúsið, er í fasteignaskrá Ránarbraut 2. Greinilegt er að þetta hús hefur átt að þjóna sem verbúð, líkt og vaninn var á Suðumesjum, og gat hýst aðkomufólk sem við fyrirtækið ynnu. A það fyrirkomulag reyndi þó lítið. Fiskhús reist á landfyllingunni Röðull hf byggði mun lágreistara hús við hliðina. Jón lagði fram teikningar í ágúst 1950 og hófust framkvæmdir strax það ár og í fasteignaskrá er húsið fullfrágengið 1951. Inní húsinu var teiknaður og byggður þurrkklefi til að þurrka saltfisk og var slíkur klefi líka í Egilshúsinu. Fram til þess tíma hafði saltfiskur verið breiddur til þurrkunar úti. Öll aðstaða til saltfiskverkunar varð auðvitað til muna betri en áður hafði verið hér með tilkomu þessara húsa. Þó plássið hafi verið til muna meira en áður þekktist og segist þó Ámi Óskarsson muna eftir því að þegar hann vann hjá Röðli vorið 1951 hafi flatningin farið fram utandyra austan við húsið og fiskinum síðan trillað inn og saltaður þar í stæður. Aðalsteinn Loftsson, sem veitti forstöðu þriðju útgerð þeirra sem hafa verið hér til umræðu, byggði svo nokkrum árum síðar stærstu bygginguna af þessum þremur handan við götuna. Hann lagði fram teikningar seint á árinu 1957 og var húsið, sem oftast er kallað Allahúsið, tekið í notkun árið 1958. Þessar byggingarframkvæmdir segja að ég held talsverða sögu um framgangsmáta þessara útgerða. Egill byrjar en fer sér í engu óðslega, Jón fylgir í kjölfarið, reisir sér ekki hurðarás um öxl en lýkur framkvæmdum skjótt, og svo reisir Alli stærstu bygginguna þegar hann er tilbúinn og gerir það hratt og örugglega

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.