Morgunblaðið - 20.01.2017, Side 2

Morgunblaðið - 20.01.2017, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2017 Það vantar ekki úrvalið af þorra- bjórum í ár. Alls eru 10 gerðir á markaðnum og hafa aldrei verið fleiri. 14-15 20.01.2017 Útgefandi Árvakur Umsjón Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Guðrún Guðlaugsdóttir gudrunsg@gmail.com Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Auglýsingar Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Forsíðumyndina tók Árni Sæberg. Þorrabakki frá Múlakaffi. Prentun Landsprent ehf. Steinunn Diljá á veitinga- staðnum Happi í spjalli um þjóðlegan mat og hollan. 4 Eitt fjölmennasta þorrablótið á erlendri grundu ár hvert er haldið í Norfolk. 8 Bryggjan brugghús er með sérbruggaðan þorrabjór á krana – er nefnist Hrútskýrir. 10 Þorrablót á landsbyggðinni er skemmtun sem lifir inn í nóttina, segir Páll á Höllustöðum. 12-13 „Fregnir af andláti mínu eru stórlega ýktar,“ sagði rithöfundurinn Mark Twain forðum eins og frægt er orðið. Sama myndi þorramánuður sjálfsagt segja líka ef hann mætti mæla. Þeir sem ekki hafa smekk fyrir súrmat og því þjóðlega fæði sem þá er gjarnan á borðum hafa lengi amast við hefðinni, telja hana kolúrelt barn síns tíma og vilja helst leggja siðinn af. En sé að gáð fjarar ekki undan þeirri fornu venju að blóta þorra í mat og drykk, eftir því sem kynslóðum landans vindur fram, heldur þvert á móti sækir matarhefðin í sig veðrið ef eitthvað er. Einhvern veginn er það líka svo að ungviðið á leikskólum landsins sem fær að smakka á þorramat reynist þegar til kastanna kemur merkilega sólgið í matinn svo ekki er hon- um alls varnað. Það er ekki allra að borða súra lundabagga en það er ýmislegt annað hægt að fá sér í trog, sem ekki býr yfir jafn krefjandi bragði. Sitt má svo hverjum sýnast um hollustu þorra- matar, en bent hefur verið á það af næringarfræði- menntuðu fólki að súr matur sé meinhollur fyrir magann og þeim sem vilja setjast til borðs þar sem svignar undan þorrakrásum ætti ekki að verða meint af. Vertu velkominn, þorri! Morgunblaðið/Gunnar Kristjáns Þorrinn snýr aftur – og aftur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.