Morgunblaðið - 20.01.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.01.2017, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2017 Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 540 3550 | progastro.is Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið hjá Progastro Heildarlausnir fyrir heimilið Allt fyrir eldhúsið S úrmatur er nú helst borðaður á þorrablótum en áður fyrr var slíkur matur algengur hversdagsmatur, einkum í sveitum lands en líka kaupstöðum. Höllustaðir í Blöndudal eru ekki ókunnugur bær í fréttaflutningi á Íslandi. Þar hefur lengi verið rekinn myndarlegur búskapur og nú er þar tamningastöð. Bóndi á Höllustöðum II er Helgi Páll Gíslason, dóttur- sonur Páls Péturssonar, fyrrum fé- lagsmálaráðherra, sem var bóndi á Höllustöðum fyrr á árum. Síðari kona Páls er Sigrún Magnúsdóttir, fráfarandi umhverfisráðherra. Bæði voru þau ráðherrar fyrir Fram- sóknarflokkinn. Um Sigrúnu kvað Ágúst H. Bjarnason: Lævís evrópsk löggjöfin litlum veldur kvíða ef Höllustaða húsprýðin hana fær að þýða. Tengsl Höllustaða og Fram- sóknarflokksins eru sem sé lands- kunn – sem og áhugi þess flokks á íslenskum mat og matargerð. Skyldi íslenskur matur á borð við súrmat hafa gegnt stóru hlutverki í fæði Höllustaðafjölskyldunnar í áranna rás? „Það sem ég man eftir sem barn var að alltaf var slátur á borðum, það var mikið notað súrt með hafra- graut og grjónagraut. Einnig var það soðið og haft sem aðalmatur eða steikt og borðað þá með kartöflum. Stundum var slátrið hakkað niður og blandað saman við kart- öflustöppu og kallað sláturskássa. Því má segja að slátrið hafi verið töluverður hluti af almennu fæði á Höllustöðum,“ segir Helgi Páll Gíslason bóndi á Höllustöðum II. Hangikjöt fyrst og fremst jólamatur Manst þú eftir gerð súrmatar? „Ég man að mér fannst ekki endi- lega girnileg lykt í húsinu þegar slátrið var soðið, maður var líkastur litlu gulu hænunni – maður vildi helst ekki koma nálægt sláturgerð- inni en var alveg til í að borða slátrið.“ Hvað með hangikjötið? „Ég hef aldrei litið á hangikjöt sem sérstakan þorramat. Það er fyrst og fremst jólamatur í mínum huga. Það var líka oft haft á borðum við sérstök tækifæri, svo sem á réttardaginn. Hangikjöt er ennþá oft á borðum hér á Höllustöðum.“ Hve margir eru í heimili hjá þér? „Á Höllustöðum er tvíbýli. Á mínu heimili erum við tvö, ég og konan mín Barbara Dittmar sem er sviss- nesk. Á hinu heimilinu eru þrír í heimili. Stutt er á milli íbúðarhús- anna og stundum borðum við saman öll hér á Höllustöðum. Hingað kem- ur oft fólk úr fjölskyldunni, afi Páll og Sigrún eru með sumarhús hér í nágrenninu og koma hér við þegar þau eru á ferð, svo og systkini mín og systkini mömmu.“ Hve lengi hefur þín ætt setið Höllustaði? „Pétur Pétursson, sem er langafi minn, kom hingað 1934. Hann var kvæntur Huldu Pálsdóttur frá Guð- laugsstöðum, sem er næsti bær. Þau hófu búskap hér og út frá Höllustöð- um var svo stofnað Höllustaðir II, þar var bóndi afi minn Páll Pét- ursson, fyrrum ráðherra, sem bjó þar ásamt ömmu minni Helgu Ólafs- dóttur frá Siglufirði. Ég man eftir Huldu langömmu minni, hún var mikil matargerðarkona, en ég man ekki eftir Pétri langafa. Ég er alinn upp á Höllustöðum II og þar bý ég nú. Á Höllustöðum I býr móðir mín Kristín Pálsdóttir og maður hennar Birkir Freysson.“ Tamningar hrossa og sauðfjárrækt Hvers konar búskap stundar þú? „Það er sauðfjárbúskapur og svo eru það hross. Við erum með eitt- hvað í kringum þrjú hundruð og fjörutíu hausa og hrossin eru í kringum sjötíu. Við erum með tamn- ingar – núna eru hér um tíu hross í tamningu.“ „Verkar þú súrmat? „Nei, það geri ég ekki nema hvað við útbúum okkar hangikjöt sjálf og komum því í reyk hér á nágrenninu. Konan mín gerir ekki slátur en það gerir aftur á móti móðir mín.“ Hvernig líst Barböru á íslenska þorramatinn? „Hún er ekki hoppandi spennt yf- ir honum, hangikjöt og saltkjöt finnst henni ágætt en annar þorra- matur finnst henni ekki glæsilegur. Við borðum ekki mikinn fisk þótt laxveiði sé í Blöndu, aðallega borð- um við kindakjöt. Við matreiðum það á ýmsan máta, grillum það, steikjum og sjóðum. Við erum ekki mjög slungin í kjötsúpugerð en það er aftur á móti afasystir mín, Hanna Dóra Pálsdóttir kennari. Hún kem- ur hingað á vorin eins og lóan og er hér að mestu leyti allt sumarið.“ Hvað með mjólkurmat? „Það var hætt með kýrnar hér að mig minnir 2004 og síðan breyttum við fjósinu nokkru síðar í hesthús fyrir tamningahrossin. Við hér á Höllustöðum erum með heimasíðu og viðskiptavinir okkar koma til okkar í gegnum þá kynningu. Mest er það fólk úr sveitinni og næsta ná- grenni.“ Borðar þú hrossakjöt? „Ég er nýlega byrjaður á því. Ég gat ekki hugsað mér slíkt sem barn og nú borða ég það sjaldan. Það var ekki borðað hrossakjöt á Höllustöð- um svo ég muni. Eftir að ég varð eldri og þroskaðri fór ég að prófa hrossakjötið og finnst það ágætt. Barbara borðar það líka en oftast smökkum við hrossakjöt á öðrum bæjum.“ Þá er nú sungið – sungið fyrir alla Ertu duglegur að sækja þorrablót? „Já, við reynum að fara á hverju ári í Húnaver, þar sem er sameig- inlegt þorrablót fyrir Svínhreppinga og Bólhlíðinga. Nú er búið að sam- eina hreppana sem áður voru í eitt sveitarfélag – Húnavatnshrepp. En þessir fyrrnefndu tveir hreppar halda ennþá sameiginlega sitt þorrablót. Venjulega mæta vel yfir hundrað manns þótt ég hafi aldrei beinlínis talið mannskapinn. Þeir sem mæta eru innansveitarfólk, Sveitin Staðarlegt er heim að líta að Höllustöðum í Blöndudal. Búskapurinn Helgi Páll temur hesta og er með sauðfjárrækt. Skemmtun sem lifir inn í nóttina „Þetta er alltaf gaman, hafi maður farið einu sinni á þorrablót hér vill maður fara aftur. Þegar ég var yngri var þetta fjölskylduskemmtun án aldurs svo maður var mættur þarna mjög ungur, en nú er komið aldurstakmark.“ Sveitin Helgi Páll Gíslason, bóndi og tamningamaður, með hrútinn Steðja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.