Morgunblaðið - 20.01.2017, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.01.2017, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2017 MORGUNBLAÐIÐ 15 Vilt þú létta á líkamanum eftir jólahátíðina? Weleda Birkisafinn hjálpar! Weleda birkisafinn er bragðgóður drykkur sem örvar vatnslosun og styður við náttúrulega út- hreinsun líkamans, birkisafinn léttir á líkamanum, losar bjúg og byggir hann upp. Það er mikilvægt fyrir líkamalega vellíðan. Í samhljómi við mann og náttúru. Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land. Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/WeledaIceland Víking Red IPA er í senn fyrsti IPA-bjórinn í Víking Craft Sel- ection-vörulínunni og fyrsti íslenski Red IPA-bjórinn. Það er Baldur Kárason bruggmeistari sem á heiðurinn af bjórnum en hann hefur verið aðalbruggari Víking brugghús frá árinu 1993 og sett sinn svip á bjórmenningu Íslendinga síðan. Baldur fet- ar ótroðnar slóðir með Víking Craft Selection og Víking Red IPA er þrítugasti bjórinn úr smiðju Baldurs fyrir Víking brugghús, hvorki meira né minna. Ríkur af humlum og sætleika Víking Red IPA er af bjórstílnum „Amerískur Indian Pale Ale“. Hann er rauðleitur að lit og ríkur af humlum, en sætleiki kornsins og maltbragðið vegur upp á móti biturleikanum sem venjulega einkennir IPA bjórana. Maltið sem notað er í Víking Red IPA er dekkra en almennt er notað í IPA bjóra og einmitt þess vegna fær bjórinn þennan djúpa rauða lit sem hann dreg- ur nafn sitt af. Humlategundirnar sem Baldur notar í bjórinn eru Mosaic, Chinook og Cascade en þessi samsetning gefur bjórnum sætleika, bragð af suðrænum ávöxtum greip og sítrus. Mikil þróun á tíu árum „IPA-bjór var á sínum tíma þróaður til að endast með langa leiðangra á sjó í huga. Þess vegna er sterkt bragð af humlum hans helsta einkenni,“ segir Bald- ur bruggmeistari. „Í Víking Red IPA má svo greina keim af greipaldini og sítr- us. Munich-malt gefur bjórnum fyllingu og sætt karamellubragð sem skapar mótvægi við biturleikann.“ Baldur bendir réttilega á að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðasta áratug- inn hér á landi hvað bjórmenninguna áhrærir. „Þróunin hefur verið svakaleg á undanförnum tíu árum og það hefur verið gaman að koma með nýjungar fyrir bjórþyrsta Íslendinga,“ segir Baldur. „Ég vildi því fara ótroðnar slóðir með Víking Craft Selection-vörulínunni og núna er það fyrsti íslenski rauði India Pale Ale-bjórinn sem fer í sölu í Vínbúðunum fyr- ir þorrann,“ segir Baldur að endingu. Íslenskt rautt fölöl í fyrsta sinn Víking Red IPA Bjórstíll: Red India Pale Ale Áfengismagn: 6,1% Framleiðandi: Víking brugghús Það er ekki ofsagt að uppi hafi orð- ið fótur og fit meðal íslenskra bjór- áhugamanna (og erlendra í kjölfar- ið) snemmárs 2012 þegar Borg Brugghús sendi fyrst frá sér þorra- bjórinn Surt, nefndan eftir eldjötn- inum ógurlega sem sagt er frá í Völuspá. Sá mun steypa heiminum í glötun þegar þar að kemur, að því marki að himinn klofnar og halir troða helveginn. Það voru þó frá- leitt nein Ragnarrök er færi gafst á að smakka Surt heldur sló hann þvert á móti í gegn. Síðan hafa þeir Borgarar sent árlega frá sér ýmis afbrigði Surts og aldrei hefur jafn mikið úrval hans komið á mark- aðinn og nú, eða 5 tegundir alls. Við tókum hús á Sturlaugi Jóni Björns- syni og fengum hann til að segja okkur frá hinum fimm fræknu Surt- um. Surtur hinn kaffibætti „Þetta er í fyrsta sinn sem við setj- um kaffi í Surt og nokkuð sem hef- ur legið fyrir hjá okkur að prófa. Ég er mjög ánægður með útkom- una enda tekur Surtur mjög vel við kaffinu,“ segir Sturlaugur. „Surtur er Imperial Stout með vel ristaða tóna, kaffi, lakkrís, súkkulaði, í mis- munandi hlutföllum, en í þessum bjór vildum við fara alla leið með kaffi-Imperial Stout, sem líka hefði góðan súkkulaði-„presens“. Stur- laugur og félagar settu sig því í samband við Te & kaffi og fundu í sameiningu með þeim rétta kaffið til að nota í Surt. Það reyndist vera frá Brasilíu og nefnist það Fazenda Raínha. Surtur hinn taðreykti Taðreyktur Surtur kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2015 og snýr nú aftur í samskonar lögun. Fagna því eflaust margir því sá taðreykti vann glæstan sigur í European Beer Star í nóvember á síðasta ári. Ku hann vera eini taðreykti bjórinn sem bruggaður er í heimi og fyrir bragðið með allra þjóðlegasta móti. „Þetta þykir mjög sérstakt úti í heimi því það þekkist hvergi annars staðar að verka kjöt með taðreyk, hvað þá að brugga taðreyktan bjór. Við hentum því í aðra lögun til að koma til móts við áhugasama bjór- unnendur erlendis og hluti af lög- uninni fær að fljóta með á þorra hér heima.“ Surtur hinn viskítunnulegni Þessi tiltekni Surtur, tunnuleginn í skoskum single-malt viskítunnum, kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2016 og sló í gegn. Ekki vakti síst athygli að hann er heil 14,5% og ku það vera metstyrkur þegar íslensk- ir bjórar eru annars vegar. „Þetta er ný lögun með sömu að- ferð og samskonar tunnum og síð- ast. Tunnurnar eru upprunalega sérrítunnur sem maltviskí er svo látið þroskast á. Svo fáum við þær til okkar til að leika okkur með þær,“ segir Sturlaugur og kímir við. Aðspurður hvort það sé ekki svo- lítið gaman að hafa á ferilskránni bjór sem skarti hæstu með- aleinkunn allra íslenskra bjóra á bjórnördavefnum Untappd – nefni- lega 4,51 – jánkar Sturlaugur því en verður satt að segja svolítið hvumsa. Hann hafði ekki hugmynd um það, enda lætur hann að sögn markaðsdeildina um að fylgjast með svona löguðu. Hann er of upp- tekinn við að búa til góðan bjór. „Það er alltaf frábært þegar fólki líkar við það sem við erum að gera.“ Surtur hinn armaníak-tunnulegni Armaníak er afbrigði af brandíi sem ekki er á hverju strái og því liggur beinast við að spyrja Stur- laug hvort ekki sé erfitt að útvega sér tunnur sem hýst hafi þann fá- gæta drykk. Jú, hann segir svo vera. „Þetta er eitthvað sem maður kemst ekki svo glatt yfir, en sem betur fer erum við með einskonar tunnumann úti í Evrópu – svona „barrel guy“ – sem fékk í hendur armaníak-tunnur sem við vorum ekki lengi að hrifsa til okkar. Það eru í þessu þessir mjúku þrúgutón- ar, ekki ósvipað og í koníaki, en það er meiri eplafílingur í bland.“ Blaðamaður getur ekki á sér set- ið og stingur upp á að sú pæling verði tekin lengra að ári með því að þroska Surt á calvados-tunnum, en það er hreinræktað eplabrandí. „Það væri náttúrulega gaman. Það þarf bara að setja pressu á tunnu- gaurinn okkar!“ Surtur hinn rommtunnulegni Loks er að nefna Surt sem hefur fengið að mótast í tunnum utan af ljósu rommi frá Karíbahafseyj- unum. „Þetta er eitthvað sem við höfum aldrei gert áður og mjög spennandi að sjá hvernig þetta kemur út. Við vorum satt að segja einna spennt- astir að sjá hvernig sá rommt- unnulegni kæmi út því útkoman var í rauninni alveg óútreiknanleg; romm er eitthvað svo allskonar. Maður veit ekki alveg hvað gerist en við erum mjög ánægðir með út- komuna. Það kemur ekki mjög sterkt fram í lyktinni en í bragðinu kemur fram sterkt sykurreyrs- og mólassabragð.“ Nýir Surtar í bland við góðkunningja Surtur Nr. 47 Bjórstíll: Kaffibættur Imperial Stout Áfengismagn: 10% Surtur Nr. 8.4 Bjórstíll: Imperial Stout, þroskaður í Single Malt Whisky- tunnum frá Skotlandi. Áfengismagn: 14,5% Surtur Nr. 8.5 Bjórstíll: Imperial Stout, þroskaður í Armagnac-tunnum. Áfengismagn: 13,2% Surtur Nr. 8.6 Bjórstíll: Im- perial Stout, þroskaður í rommtunnum. Áfengismagn: 13,2% Surtur Nr. 30 Bjórstíll: Taðreyktur Imperial Stout Áfengismagn: 9%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.