Víkurfréttir - 04.11.2004, Blaðsíða 2
f r é t t i r
Fimmtánára með
landa niðriíbæ
Nokkur erill var hjá Lögregl-
unni í Keflavík á fóstudags-
kvöld og aðfaramótt laugar-
dags eftir færslum í dagbók
lögreglu að ræða.
■ Á þriðja timanum í aðfar-
amótt laugardags höföu lög-
reglumenn svo afskipti af
þremur fimmtán ára stúlkum
fyrir utan skemmti-
stað í Keflavík. Var
ein þeirra með
landa í plastbrúsa.
Var farið með
stúlkurnar heim
og foreldrar látin vita. Lagt
var hald á landann.
■ Fíkniefhi fundust í fórum
tveggja ungmenna sem voru
stöðvuð í bifreið sinni. Um
var að ræða lítilræði af hassi,
en pilturinn og
stúlkan voru hand-
tekin. Var þeim
sleppt að skýrslu-
töku lokinni.
■ Skömmu síðar var til-
kynnt um mann sparkandi i
bíla á Suðurgötu i Keflavík.
Handtóku lögreglumenn þar
mikið ölvaðan
mann og kvað vitni
umaðræðasama
mann og hafði
sparkað í bíl vitn-
isins. Hafði hliðar-
spegill verið brotinn. Maður-
inn var færður í fangageymslu
þar sem hann fékk að sofa úr
sér.
■ Þá var lögreglan kölluð að
skemmtistað við Hafnargötu
um kl. hálf fimm þar sem
maður hafði verið sleginn í
höfuðið með
flösku. Meiðsli
mannsins voru
minniháttar og
vildi sá sem sleg-
inn var ekki gera
neitt frekar í málinu né leita
læknis.
Rauður sími
690 2222
beint samband við
blaðamann og
ijósmyndara allan
sólarhringinn!
Tunglmyrkvi sást ekki vel frá Suðurnesjum:
Tunglmyrkvi fór í felur bakvið ský
Almyrkvi var á tungli á aðfararnótt fimmtudags. Skyggni hafði verið með besta móti allt kvöldið og var áhugafólk
farið að hugsa sér gott til glóðarinnar. Þá greip blessaður máninn til íslensku aðferðarinnar og hrönnuðust skýin
upp með undraskömmum tíma. Ljóst var að almyrkvinn sæist ekki, en Ijósmyndari Víkurfrétta náði þó nokkrum
myndum af skugganum sem skreið yfir tunglið áður en allt varð svart.
Reykjanesbraut:
Tvær bifreið-
ar óku útaf
Tvær bifreiðar óku útaf
Reykjanesbraut á
fimmta tímanum á
fimmtudagsmorgun í síð-
ustu viku. Mikil hálka hafói
myndast en meiðsl á fólki
eru ekki talin alvarleg. Önn-
ur bifreiðin fór útaf vestan
við Kúagerði og voru þrír í
þeirri bifreið sem flutt var á
braut með kranabíl. Hin
bifreiðin fór útaf vestan viö
Strandarheiði en ekki urðu
meiðsl á fólki.
> Hálkan kemurfólki alltaf jafn mikið á óvart:
Lenti utanvegar á
Sandgerðisvegi
Betur fór en á horfðist
þegar bifreið lenti utan
vegar á Sandgerðisvegi
við Rockvilie rétt fyrir klukk-
an tíu á fimmtudagsmorgun í
síðustu viku. Tvennt var í bíln-
um, sem lenti á þakinu eftir að
hafa henst útaf veginum í
hálkunni.
Tveir sjúkrabílar, lögreglubíll og
tækjabíll Brunavama Suðumesja
mættu á vettvang en fljótt varð
ljóst að ekki þyrfti á honum að
halda. Vom ökumaður og farþegi
flutt á HSS til skoðunar, án alvar-
legra áverka en nokkuð lemstmð.
Um sama leyti féll kona í hálku
fyrir utan Sparisjóðinn í Keflavík
þannig að á sama tíma var allt
sjúkralið BS úti á vettvangi.
Lögreglan á höttunum
eftir rjúpnaskyttum
Lögreglan í Keflavík
stendur þessa dagana
fyrir sérstöku eftirliti
með hugsanlegum rjúpnaveið-
um og mun vera með slík eftir-
lit næstu daga en lögrcglu hef-
ur borist upplýsingar um ferð-
ir rjúpnaveiöimanna síðustu
daga í nágrenni Grindavíkur
þrátt fyrir tímabundna friðun
rjúpunnar. Blaðamaður Víkur-
frétta var á ferð um óbyggðir
Reykjaness, m.a. á Fagradals-
fjalii og þar sáu menn tóm
skothylki við vegarslóða, sem
gefur tilefni til að fylgst sé
með hugsanlegum veiðum.
Festist í stórgrýttu hringtorgi
Svo óheppilega vildi til á mánudag að ökumaður missti stjórn á bíl sínum á
hringtorginu við Hafnargötu og Faxabraut og hafnaði uppi á torginu. Hann
náði ekki að losa sig af sjálfsdáðum og sat því fastur á torginu í hádegisösinni.
Sem betur fer urðu engin slys á fólki og eins olli slysið engum skemmdum
nema á bifreiðinni sjálfri.
Hlýjar móttökur í Heiðarskóla
Heiðarskóli tók vel á móti nemendum sínum sem sneru aftur í skólann á
mánudag eftir sex vikna fjarveru. Allir fengu djús og skúffuköku og féll fram-
takið sannarlega í góðan jarðveg. Alls voru bakaðar 25 skúffukökur enda
dugar ekkert minna fyrir 482 nemendur skólans.
Keflavík með Kolaport
kveðið hefur verið að
opna KOLAPORT í
88-húsinu í desember
ef næg þátttakafæst. Knatt-
spyrnudeildin biður alla
velunnara deildarinnar sem
eru að fara í jólahreingern-
ingarnar að gefa deildinni það
sem annar á að fara á haug-
ana.
Allar bækur, plötur, lampar,
borð og hvaðeina sem fólk ættl-
ar aðhenda vill deildin gera
könnun nteð hvort hægt sé að
selja fyrir sanngjart verð.
Meiningin er að starfsmaður
Knattspymudeildar taki á móti
vörum í Sundlaugarkjallara
eftir nánara samkomulagi eða
sæki heim til fólks það sem það
vill losna við. Hægt er að ná í
Ásrnund i sirna 894-3900. Þeir
aðilar semselja vilja handverk
eða bakkelsi, vinsamlegast
hafið samband við sarna aðila
samkvæmt auglýsingu í
blaðinu.
2
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLECA!