Víkurfréttir - 04.11.2004, Síða 8
KALLINN Á KASSANUM
Fátt um svör á
H
Vellinum...
KALLINN VERÐUR ákaflega reiður ef verkfall skellur
á að nýju í næstu viku. Það lítur allt út fýrir að þessi
miðlunartillaga hafi verið jafn ómerkileg og laumuspil
Varnariiðsins sem flýr nú ísland í skjóli nætur.
KALLINN FRÉTTI af glæsilegum framtíðaráætlunum
sem voru kynntar á SSS fundinum um helgina.
Glæsilegar hugmyndir sem verða mikil lyftistöng fyrir
svæðið þótt ekki nema lítill hluti þeirra verði að
veruleika.
KALLINN VAR mjög skúffaður yfir hinum áætlaða
tunglmyrkva, Kallinn var búinn að koma sér fyrir úti á
sólpalli til þess að sjá heriegheitin í hryssingskulda
um hánótt þegar ský dró fyrir tungl og ekkert sást.
KALLINN FURÐAR sig á því að engin skýr svör
standi til boða í málefnum varnariiðsins. Það er lág-
mark að fólk fái að vita hvað sé á seyði.
SJÁLFSTÆÐISFÉLAGK) Njarðvikingurvarð 50 ára á
dögunum og vill Kallinn óska þeim til hamingju. Þó
Kallinn sé ekki sammála þeim bláu í pólitíkinni þá er
nú alveg hægt að vera almennilegur.
NÚ FER jólaösin að hellast yfir landsmenn og það er
rétt farið að hausta. Væri ekki réttara að bíða fram í
lok mánaðar með að drekkja neytendum í
auglýsingabrjálæðinu?
RITSTJORNIN
Afgreiðsla Víkurf rétta
eropin alla vírka daga
frákl. 09-12 og 13-17.
Meðþvíaðhringjaí
síma 4210000 erhægtað
velja beint samband við
auglýsingadeild, fréttadeild
oghönnunardeild.
Fréttavakt allan sólar-
hringinn er í síma 898 2222
Útgefandi:
flfgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23,260 Njarðvík, Sími 4210000 Fax 4210020
Páll Ketilsson, sími 4210007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 4210002, hilmar@vf.is
Jóhannes Kr. Kristjánsson, sími4210004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (íþróttir), sími 4210003, sport@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 4210008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 4210014, jbo@vf.is
Víkurfréttirehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 4210005, kolla@vf.is
Anita Hafdís Björnsdóttir, s: 4210013, anita@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 4210011, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og vikurfrettir.is
Stefanía Jónsdóttir, sími 4210012, stebba@vf.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 4210009, gudrun@vf.is
Aldis Jónsdóttir, sími 4211010, aldis@vf.is
™ WtlASMLA
Brekkustíg 38 Reykjancsbæ, s: 421 4444, Fax: 421 3732
Hyundai Terracan á frábæru verði allt
að 400.000 kr. afsláttur af nýjum bíl
100% lán af notuðum bílurn- 4,2% vextir
MiHð árvsil sof msDtoðMm bílum!
Hólagata 35 Njarðvík
- 4ra herbergja nh.
Verð:8,5 millj.
4ra herbergja íbúð í tvíbýli á góðum
stað á Suðurnesjum. íbúð með
karakter. Stór garður og stutt í alla
þjónustu. Stofa / Eldhús með nýlegri
eldhúsinnréttingu og t.f uppþvottavél
/ þrjú rúmgóð svefnherbergi /
Baðherbergi með baði. Veggir í
Spönskum stíl. Stór garður. Eign
sem vert er að skoða.
Sölufulltrúi: Sigríður Guðnadóttir,
663-3219, sigga@remax.is
fS/AVX
M U N D I
Var nokknð tölva
upplýsingafuUtrúa
Varnarliðsins send utan
með vopnunum?
Það hefur nefnilega
ekkertheyrstfrá
hernum í marga daga...
VIÐHORFSKÖNNUN
Spurt var:
Er Varnarliðið endanlega
á förum?
Já sögðu 64%, nci sögðu 36%
Spurning vikunnar á vf.is er:
Samþykkja kennarar
miðlunartillöguna?
Farðu inn á vef Víkurfrétta,
www.vf.is og taktu þátt í vikulegri
viðhorfskönnun. Niðurstöður verða
birtar I Víkurfféttum vikulega,
ásamt næstu spumingu.
Og þá var kátt í höllinni
Það eru forréttindi að fá að starfa í flugstöðinni og geta fylgst
með mannflórunni sem staldrar þar við, ýmist á ferð sinni út
úr landinu eða á leiðinni „heim” eins og flugfreyjurnar orða
það svo skemmtilega. Túristarnir bíða spenntir eftir því að fá að
kanna leyndardóma næturlífsins í höfuðborginni eða bara að dýfa
stóru tánni í Bláa lónið. Jafnvel renna á Gullfoss og Geysi í
lopapeysunum, að sjálfsögðu í sauðalitunum. Við ættum að skylda
alla útlendinga til að kaupa þær niðri í komusal, svona rétt eins og
kanarnir ætla að heimta að taka af okkur fingraför og lífsýni við
komuna til fyrirheitna landsins. Þá fyrst yrðu styrkir til bænda
aflagðir og dilkakjet í boði á „skid og inge ting” allt árið um kring.
Nú streyma tugþúsundir farþega í hverjum mánuði í gegn-
um gullæð ríkisins og svei mér þá ef þeir eru ekki boðnir
velkomnir í græna hliðinu, sem jafnast á við það gullna á
efri hæðinni. Flugstöðin er reyndar löngu búin að sprengja utan af
sér á háannatímum en lítur út eins og einskismannsland á dauða
tímanum. Rimlar fýrir dyrum. Það stendur nú allt til bóta og nú rís
höllin til himinhæða í aflri sinni dýrð og gleri. Bisnessinn fær meira
pláss til að spila úr og veruleiki samtímans fær sína útrás á segul-
kortunum. Þetta hefur þingmaðurinn Hjálmar þefað uppi og spáir
okkur íýrsta sæti í atvinnumálum framtíðarinnar á Suðumesjum.
Lofaði meira að segja hreinu íslensku vatni þangað uppeftir í kosn-
ingabaráttunni. Hlakka til þegar hann efnir það loforðið. Vatnið er
svo helvíti vont svona klórblandað. Skelfilegt lýti á ímynd landsins!
Get þó ekki látið hjá líða að minnast á bankastjórann, sem ég
fylgdist með um daginn þegar ég var að fara í flug. Einn af
þessum gelgreiddu ungu stjórum sem hefur séð til þess að
úrvalsvísitala hlutabréfa hefur malað hluthöfum hans gulli og
grænurn skógum á undanförnum árum. Einhverra hluta vegna
höfðu launin hans þó ekki dugað þessi mánaðarmótin því hann var
klæddur í akrýl að ofan, svona líka skemmtilega sveitalega rönd-
óttur, í gulu og brúnu, var í stífþressuðum jarðlitum kakíbrókum
og skórnir sem drengurinn sprangaði um á, maður lifandi, minntu
helst á ópússaðar mokkasíur úr garnla kaupfélaginu. Guð minn
góður, ég skammaðist mín íýrir hans hönd að fara svona útlítandi í
flug og væntanlega á Saga class. Þá rann skyndilega upp fýrir mér
frasinn úr frábærri auglýsingu frá Icelandair, þar sem fína frúin lítur
skelfmgu lostin í kringum sig á viðskiptafarrými og segir þessu
ódauðlegu orð; „Hvar er allt fina fólkið?”
8
VlKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!