Víkurfréttir - 04.11.2004, Blaðsíða 12
VF-Ljósmynd/Héðinn Eiríksson
Nemendur FS
taka áskorun í VF
Erik Olaf Eriksson vill meina að NAFTA sé dauðadómur yfir
innfæddum í Mexíkó. Hann vill einnig vita af hverju foreldrar
Arnars Magnússonar láta son sinn búa í bílskúrnum. Erik
skorar á Arnar Magnússon.
Hefurðu fengið harðsperrur....svo mikið? Bíddu, hver er Inga?
Á ekkert að fara....í form? Gymmið, hvað er það? Mig grunar að
þú sért að meina Jim og þá veit ég ekkert um hvað þú ert að tala.
Hvenær ertu nettastur á því? Þegar ég er búinn með morgun-
hlaupið áður en ég fer i vinnuna.
Hvað ætlaröu að gera....á Popptívi? Ég ætla að veita honum
ævilanga ráðningu.
Hver er þín skoðun á NAFTA? NAFTA er dauðadómur yfir inn-
fæddum í Mexikó. En þar sem svarið gæti orðið langt bendi ég á
vefslóðina http://www.zmag.org/chiapas 1 /
Mínar Spurningar liandaArnari Magiuíssyni.
Hvemig finnst þér þetta af og á samband hjá Helga og írisi?
Hvemig finnst þér hljómsveitin Talion?
Hvemig heldurðu að Bubbi Rodriguez hafi fjármagnað
lúxusibúðina?
Af hveiju létu foreldramir þínir þig búa í skúmum?
Hver er uppáhalds raðmorðinginn þinn?
Efni og ábendingar til VF17 • johannes@vf.is
Skyggnilýsingarfundur
María Sigurðardóttir miðill verður með
skyggnilýsingarfund sunnudaginn 7. nóvember
kl. 20.30 í húsi félagsins að
Víkurbraut 13,Keflavík.
Húsið opnar kl. 20.00,
aðgangseyrir við innganginn.
Allir velkomnir
Stjórnin
Afmælisboð
i tilefni af 70 ára afmæli Iðnaðarmannafélags
Suðurnesja þann 4. nóvember, er iðnaðar-
mönnum ásamt mökum boðið til
afmælishátíðar í Kirkjulundi sunnudaginn
7. nóvember kl. 14.00. Gamlir félagar í
Iðnaðarmannafélaginu eru
sérstaklega boðnir velkomnir.
Athugið að allar gjafir eru
vinsamlegast afþakkaðar.
Stjórn
lðnaðarmannafélags Suðurnesja
> Mannfagnaðir:
Iðnaðarmannafélag Suðurnesja 70 ára
-Kaffisamsæti í Kirkjulundi sunnudaginn 7. nóvember klukkan 14:00
ann 21. október árið
1934 kvaddi maður að
nafni Sigmundur Þor-
stcinsson nokkra starfsbræður
sína til fundar til þess að ræða
mögulcika á stofnun Iðnaðar-
mannafélags. Þann fund sátu
auk Sigmundar, þeir Þórarinn
Óiafsson, Skúli H. Skúlason og
nokkrir aðrir iðnaðarmenn.
Voru þessir þrír áðurnefndir
menn kosnir í undirbún-
ingsnefnd og skyldu þeir vinna
að stofnun féiagsins. Ekki sátu
þessir menn aðgerðarlausir því
aðeins tveimur vikum seinna
voru þeir búnir að afla gagna
til að semja Iög félagsins og
ýmislegt annað sem til þurfti.
Hinn 4. nóvember árið 1934
boðaði undirbúningsnefndin tii
fundar í gamla barnaskólanum
í Ketlavík þar sem formlega
var gengið frá stofnun féiags er
bar fyrst nafnið Iðnaðar-
mannafélagið í Keflavík, síðar
Iðnaöarmannafélag Kefla-
víkur. Árið 1958 var nafninu
breytt í Iðnaðarmannafélag
Suðurnesja.
Fyrsti formaður félagsins var
Þórarinn Ólafsson trésmiður og í
stjórn með honum voru þeir
Guðmundur Skúlason, Skúli H.
Skúlason, Sigmundur Þor-
steinsson og Guðni Magnússon.
Alls sátu nítján iðnaðarmenn
stofhfundinn, gerðust stofhfélag-
ar og undirrituðu stofnlögin. Á
næstu tveim fundum bættust
fjórir félagar við og töldust þeir
líka stofnfélagar. Stofnfélagar
voru því taldir 23 og komu þeir
úr níu starfsgreinum. (heimildir
Iðnaðarmannatal Suðumesja).
Um miðjan áttunda áratuginn fór
að draga úr fundarsókn og áhugi
á félaginu sem slíku varð nánast
að engu. Reynt var að halda
árshátíðir sem gengu mjög vel og
nokkur ár en síðan dvínaði áhug-
inn á þeim líka og má þá segja að
fljótlega upp úr 1990 hafi ekki
neinn áhugi verið á félaginu og
voru félagar löngu hættir að
borga útsenda gíróseðla fyrir
félagsgjöidum. Félagið átti
húseign að Tjarnargötu í Kefla-
vík en stjórn sú er var þá fékk
heimild til að selja eignina og var
hún seld þar sem engin innkoma
var hjá félaginu og enginn
peningur eftir í sjóðum til að
viðhalda eigninni eða borga af
henni skatta og skyldur. Sá tími
sem liðinn er írá sölunni hefur
verið nánast engin starfsemi -
aðeins nokkrir stjórnarfundir á
ári og hafa peningarnir aðeins
vaxið á þessum tíma. Fyrir
nokkrum árum var gefinn renni-
bekkur í Málmdeild Fjölbrauta-
skóla Suðumesja. Nú á þessum
tímamótum félagsins hefúr verið
ákveðið að efna til afmælis-
hátíðar og verður af því tilefni
boðið til kaffisamsætis sunnu-
daginn 7. nóvember klukkan
14:00 í Kirkjulundi. Öllum
iðnaðarmönnum á svæðinu
(hvort sem þeir voru meðlimir í
félaginu eða ekki) ásamt mökum
er boðið að koma og þiggja
veitingar. Vonast stjórnin til að
sjá sem flesta á þessum rnerku
tímamótum og þá helst sem
flesta af fyrrverandi félögum í
Iðnaðarmannafélaginu.
Fagmennska í flutningum
Miðlun frétta og mynda
Með öflugri fréttavakt Víkurfrétta eru Ijósmyndarar
og blaðamenn til taks allan sólarhringinn!
FRÉTTASÍMINN
|898 2222
24t,,SváS***
12
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I ww/w.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!