Víkurfréttir - 04.11.2004, Síða 16
> Blái demanturinn kynntur á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum:
Stórtækar hugmyndir í ferðamálum á Suðurnesjum voru kynntar á
aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum í Sandgerði um
helgina. Hugmyndin kallast Blái demanturinn eða Blue Diamond.
Þar fóru ráðgjafarnir Guðmundur Pétursson og Ríkharður Ibsen frá
Lykil Ráðgjöf Teymi- Turnkey Consulting Group fyrir kynningu á
Bláa demantnum, sem eru fjórir áfangastaðir á Reykjanesi sem
geta dregið að sérfjölda ferðamanna. Sé dregin lína á milli þessara
staða verða til útlínur demants, sem ráðgjafarnir hafa kosið að
kalla Bláa demantinn. í kynningunni á aðalfundi SSS höfðu þeir
Guðmundur og Ríkharður dregið saman í einn pakka þær hug-
myndir sem unnið er að í ferðamálum á Suðurnesjum. Það kom
fram á fundinum að orð eru til alls fyrst og að hér væri um framtíð-
arsýn að ræða. Það sem vitanlega er heillandi við framtíðarsýn, er
að hún getur alltaf breyst. Hilmar Bragi Bárðarson, blaðamaður
Víkurfrétta, hlustaði á fyrirlestur þeirra félaga.
Hugmyndir gera ráð fyrir sýningarskála við Reykjanesvirkjun þar sem ferðamenn
geta kynnt sér þessa orkunýtingu og einnig upplifað ferð að kjarna jarðarinnar.
Stór framtíðarsýn í ferðamálu
Innhlið íslands
Tilurð verkefnisins Blue Dia-
mond eða Blái Demanturinn, er
sú að leita svara við því hvað við
Suðurnesjamenn getum gert í
ferðamálum framtíðarinnar. Mik-
il aukning er í klæðskerasaumuð-
um ferðum í heiminum i dag og
ferðaþjónustumarkaðurinn er í sí-
fellt auknum mæli að sérhæfa
sig. Sú þróun kallar á einarða út-
sjónarsemi í sérstaklega hönnuð-
um ferðunt. Ferðamenn vilja
komast í styttri ferðir og þörf
neytandans kallar á heilsdags-
upplifun. Hér höfúm við innhlið
Islands; þess vegna segja þeir
Guömundur og Rikharður mögu-
leikana á Reykjanesi gríðarlega.
Um 350.000 erlendir ferðamenn
koma inn í landið gegnum Leifs-
stöð i ár og fjöldinn fer vaxandi
ár frá ári. Þessir ferðamenn
stoppa margir stutt á landinu og
því tilvalið að fá þá til að skoða
sig unt á Reykjanesi. Það hefur
komið fram í könnunum að um-
hverfið skipti ferðamenn ntiklu
og umhverfi Reykjaness sé ein-
stakt í heiminum. Það sé því
markmið að bjóða upp á mark-
aðshæfa vöru og koma i veg fyrir
að þau hundruð þúsunda ferða-
manna sem koma til landsins um
Flugstöð Leifs Eiríkssonar fari
útaf svæðinu án þess að njóta
þess sem það hefur uppá að
bjóða.
Blái demanturinn samanstendur
af því sem ráðgjafarnir kalla
„Blue Viking”, „Blue Lagoon”,
„Big Blue” og „Blue Energy”.
Auk framlengingar eða viðbótar
segla.
BlueViking
eða Blái Víkingurinn er verkefni
um víkingaheima á Fitjum í
Reykjanesbæ. Þar verður naust
íslendings ráðandi auk þess sem
saga siglinga yfir Atlantshafið
verði sögð. Þar verður einnig
sett upp sýning með munum ffá
víkinga sýningu Smithsonian
stofnunarinnar í Bandarikjunum.
Efhiviður byggður á siglingum,
viðskiptum, trúarbrögðum og
hernaði víkinganna er gríðarlega
merkilegur og markaðsvænn.
BigBlue
er hugmynd sem breskir Qárfest-
ar hafa verið að skoða um risa-
stórt sjávarsetur við Hafnir. Þar
sjá menn fyrir sér sjávarlífssaffi
þar sern litið yrði til heimshaf-
anna í heild. Þar yrði hægt að
komast í návígi við sjávarlíf og
hugsanleg styrkt glergöng niður á
sjávarbotn við Hafnirnar eða
Osabotna til að skoða sjávarlífið.
Þessi hugmynd er skemmst á veg
komin af grunnseglunum fjórum.
Blue Energy
eða Bláa orkan er hugmynd að
ferðamannatengingu við nýtt raf-
orkuver Hitaveitu Suðumesja hf.
á Reykjanesi. Þar rís nú um 100
megavatta virkjun sem vinnur
umhverfisvæna orku úr jarðhita.
Hugmyndir gera ráð fyrir sýning-
arskála þar sem ferðamenn geta
kynnt sér þessa orkunýtingu og
einnig upplifað ferð að kjarna
jarðarinnar, eða eins og það hét í
kynningu þeirra félaga, „Joumey
to the Center of the Earth”.
Blue Lagoon
eða Bláa lónið þekkja allir, enda
öflugasta ferðaþjónustufyrirtæki
landsins ef ffá er talin Flugstöð
Leifs Eiríkssonar, en búist er við
að þar verði gestir yfir 350.000 á
þessu ári. Og vöxturinn er yfir
10% á ári. Aðstaða Bláa lónsins
stækkar jafht og þétt. Þar er húð-
lækningastöð að verða tilbúin og
hugmyndir eru uppi um bygg-
ingu fimm stjömu heilsuhótels.
NASA segir Tunglið vera á Reykjanesi
Þá kom fram í kynningunni að
Big Blue er hugmynd sem breskir
fjárfestar hafa verið að skoða um
risastórt sjávarsetur við Hafnir. Þar
sjá menn fyrir sér sjávarlífssafn þar
sem litið yrði til heimshafanna í
heild. Þaryrðihægtaðkomastí
návígi við sjávarlíf og hugsanleg
styrkt glergöng niðurá sjávarbotn.
16
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LE5TU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!