Víkurfréttir - 04.11.2004, Page 22
Úrslit
vikunnar
Intersportdeildin:
Keflavík-ÍR 86-68
Keflavík.'Anthony Glover
16/10, Magnús Gunnarsson
14, Elentínus Margeirsson 10
ÍR: Herbert McCall 17/15,
Sveinbjörn Claessen 13,
Fannar Helgason 11.
Fjölnir-Grindavík 92-83
Grindavík: Páll Axel
Vilbergsson 27/12, Darrel
Lewis 21, Morten
Szmiedowicz 12
Fjölnir: Nemanja Sovic 26,
Darrel Flake 25/16, Jeb Ivey
17, Brynjar Kristófersson 12.
Njarðvík-Hamar/Self. 110-
73
Njarðvík: Jóhann Ólafsson 18,
Friðrik Stefánsson 17/10,
Guðmundur Jónsson 17, Páll
Kristinsson 15, Brenton
Birmingham 10.
H/S: Damon Bailey 21/15,
Chris Woods 16, Svavar
Pálsson 14.
I. deild kvenna
Grindavík-Keflavík 54-71
Grindavík: Sólveig
Gunnlaugsdóttir 17, Erla
Þorsteinsdóttir 12/10, Svandís
Sigurðardóttir 11/17.
Keflavík: Reshea Bristol 26,
Birna Valgarðsdóttir 21.
Njarðvík-ÍS 60-67
Njarðvík: Jamie Woudstra
26/10, Ingibjörg Vilbergsdóttir
12.
ÍS: Alda Leif Jónsdóttir 21,
Lovísa Guðmundsdóttir 20.
Hópbílabikar karla
Haukar-Njarðvík 59-81
Njarðvík: Matt Sayman 18,
Páll 13/12, Jóhann 11,
Guðmundur 11, Brenton 11.
Haukar: Kristinn Jónasson 15,
JohnWaller 14.
Skallagrímur-Grindavík 78-
90
Grindavík: Lewis 32/11, Páll
Axel 25/11, Justin Miller
20/11.
Skallagrímur: Ragnar
Steinsson 15, Clifton Cook
15.
ÍR-Keflavík 63-109
Keflavík: Glover 26/11,
Gunnar Einarsson 25, Magnús
1L
ÍR: Gunnlaugur Erlendsson
13.
Hópbílabikar kvenna
Breiðablik-Keflavík 54-143
Keflavík: Bristol 36, Bima 24,
Bryndís 14, Svava 13, Marin
II, AnnaMaria 10.
Breiðablik: Freyja
Sigurjónsdóttir 15, Erica
Anderson 14.
Njarðvík-Grindavík 53-57
Njarðvík: Woudstra 24,
Ingibjörg 17, Helga
Jónasdóttir 7/23.
Njarðvíkingarí
sögubækurnar
Njarðvíkingar hafa
markað spor í
sögubækur kör-
fuboltans hér á íslandi með
sannfærandi byrjun á tímabil-
inu. Þeir hafa unnið fyrstu
fimm leikina meö meira en 20
stigum hvern og virðast í mög
góöum málum þessa dagana.
Lykilatriði í velgegni þeirra er
sterkur varnarleikur og góður
baráttuandi sem hefur skilað
góðum sigrum.
Matt Sayman, leikstjÓEnandi
þeirra,Jiefur reynst mikill hap-
pafengur, en þá hafa ungu
strákamir einnig staðið sig með
miklum ágætum. Þeir eiga enn
von á frekari liðsstyrk þar sem
annar bandariskur leikmaður er á
leið til liðsins og verða erfiðir
viðureignar á öllum vígstöðvum
í vetur.
Haraldur til Noregs
Keflvíkingurinn Haraldur
Guömundsson hefur
komist að samkomulagi
við norska knattspyrnuliðið
Aalesund. Norska liðið, sem
mun leika í úrvalsdeild að ári,
mun ekki þurfa að greiða
Keflavík fyrir Harald þar sem
samningur hans rennur út um
áramótin.
Haraldur er 23 ára varnarmaður
og lék sinn fyrsta meis-
taraflokksleik fyrir Keflavík árið
1999.
Haraldur hlakkaði til að halda út
en sagðist þó kveðja Keflavík
með söknuði. „Ég er búinn að
leika með Keflavík frá því í yngri
flokkum og hef tilfinningar til
félagsins, en ef maður fær svona
tækifæri er erfitt að sleppa því.”
Norska deildin er ákjósanlegur
vettvangur til að vekja athygli
stærri liða í Evrópu og veit
Haraldur vel af því. „Ég lít alls
ekki á Aalesund sem endastöð á
mínum ferli, en samningurinn er
til þriggja ára og svo sér maður
til með framhaldið.”
Honum hefur ekki verið lofað
föstu sæti í liðinu en mun fá
tækifæri til að sanna sig. „Liðið á
eftir að bæta við sig nokkrum
mönnum en ntaður fær örugg-
lega sama séns og aðrir í byijun.”
Ólíklegt að Guðjón
komi til Grindavíkur
Knattspyrnudeild Grinda-
víkur hefur gefið upp
nær alla von um að fá
Guðjón Þórðarson til að þjálfa
meistaraflokk liðsins. Þetta
sagði Ingvar Guðjónsson,
framkvæmdastjóri deildarinn-
ar, í samtali við Víkurfréttir.
Guðjón hefur dregið fæturna í
að skrifa undir samning við þá
í langan tíma og er nú staddur
erlendis þar sem hann ræðir
við nokkur þarlend liö.
Lúkas Kostic, sem þjálfaði liðið
á árunum 1994-1995, var boðið
starfið en hafnaði tilboði
Grindvíkinga. Akvörðun hans
voru nokkur vonbrigði fyrir
stjórn knattspyrnudeildarinnar
sem ætlar í ffamhaldinu að funda
með styrktaraðilum sinum og
hluthöfum. Ingvar sagði að þeir
gerðu sér vonir um að leysa úr
þessum málum sem allra fýrst.
Leikmannamál Iiðsins hafa einn-
ig verið í brennidepli og er nú
ljóst að Óli Stefán Flóventsson
mun leika með liðinu næstu 3
árin. Óli Stefán var nær búinn að
ákveða að yfirgefa herbúðir
liðsins en snerist hugur,
stuðningsmönnum og stjórnar-
mönnum til mikils léttis.
Tveir léttir hjá
Keflavík
Keflavíkurstúlkur eiga tvo leiki í
vikunni þar sem þær mæta
botnliði KR í 1. deildinni á
þriðjudag og 2. deildarliði
Breiðabliks í Hópbílabikamum í
kvöld. Leikirnir ættu að vera
nokkuð létt verkefni fyrir
Keflvíkinga þar sem KR er enn
án sigurs í deildinni og Keflavík
vann fyrri leikinn við Breiðablik
með næstum 90 stiga mun.
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari
Keflavíkurstúlkna, á von á
hörkuleik. „KR-ingar eru að leita
að sínum fyrsta sigri og mæta
örugglega bijálaðar til leiks. Við
emm hins vegar vel stemmd og
ætlum að taka þetta á heimavelli.
Ég trúi því að við náum okkar
takmarki ef við mætum með
réttu hugarfari.”
Intersporldeildin U TSt.
l.UMFN 5 5 0 10
2. Keflavík 5 4 18
3. Fjölnir 5 4 18
4. Skallagrímur 5 4 18
5. Snæfell 5 3 2 6
6. Tindastóll 5 3 2 6
7. Haukar 5 2 3 4
8. UMFG 5 2 3 4
9.KR 5 2 3 4
10. ÍR 5 14 2
ll.KFÍ 5 0 5 0
12. Hamar/Selfoss 5 0 5 0
Sportmolar
Nýr Kani til Njarðvíkur
UMFN hefur gengið frá
ráðningu á nýjum erlendum leik-
manni að nafhi Anthony Lackey.
Leikmaðurinn er um 196 sm á
hæð og leikur stöðu ffamheija.
Þrátt fyrir að Njarðvíkingar hafi
leikið afar vel það sem af er vetri
telja þeir að þeir þurfi meiri brei-
dd til að geta barist um alla titla
sem í boði em.
Getraunaleikurinn hafinn
Hópleikur í getraunum 1X2 á
vegum unglingaráðs knattspyr-
nudeildar Keflavíkur hófst í viku
43.
Leikurinn stendur yfir í 10 vikur
og 8 bestu telja. Verðlaun eru
20.000 kr. fyrir besta árangur.
Opið verður ffá 11-13 í K-húsinu
við Hringbraut. Hvetjum alla
sem styðja Keflavík að muna
eftir getraunanúmeri okkar 230
og styðja þannig við
Unglingastarfið,
og einnig að kíkja við í kaffi á
laugardögum.
Við munum væntanlega byrja
með annan leik um áramót þar
sem einhver heppinn tippari sem
mætir og tippar hjá okkur fær að
launum ferð á leik í vor. Verður
kynnt nánar síðar.
Unglingaráð Knattspyrnu-
deildar Keflavíkur
Keflvíkingar háttvísir
Keflavík er efst a
háttvísilista eftirlits-
manna Knattspyrnu-
sambands íslands fyrir
sumarið 2004. FH var í öðru
sæti og Grindavík í þvf þriðja.
Eftirlitsmenn gáfu liðunum
einkunn eftir hvern leik sem
tekur mið af fjölda áminninga
og brottvísana, sóknarleik
(jákvæður leikur) og ffamkomu
leikmanna við mótherja og
dómara. Einnig er lagt mat á
framkomu liðsstjórnar og
áhorfenda. Þessi útkoma gæti
komið Grindvíkingum til góða
því að samkvæmt reglum
UEFA eru þrjú sæti í
Evrópukeppni félagsliða í boði
fyrir háttvís félög. Ef Island
hlýtur eitt af þessum þremur
aukasætum fær Grindavík þátt-
tökurétt þar sem bikarmeistarar
Keflavíkur og íslandsmeistarar
FH hafa þegar tryggt sér þátt-
töku í Evrópukeppnum.
Herrakvöld GS verður haldið
föstudaginn 2ó. nóvember.
Nánar auglýst síðar.
22
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!