Víkurfréttir - 16.02.2006, Síða 2
Breytingar í
brottfararsal
Leifsstöðvar
Langt er komið að þilja
af gluggana til beggja
enda í brottfararsal
Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar til að skapa iðnaðar-
mönnum rými til nauðsyn-
legra verka.
Meðfylgjandi mynd (tekin
31. janúar 2006) sýnir glöggt
hvernig nú er um að litast
á brottfararsvæðinu og fleiri
sýnilegra breytinga er að
vænta eftir því sem fram-
kvæmdum miðar áfram.
Aðstandendur framkvæmd-
anna kappkosta hins vegar
að þetta rask haft sem minnst
áhrif á urnferð farþega í flug-
stöðinni og víst er að fólk
sýnir því ríkan skilning að
gera þurfi bráðabirgðaráð-
stafanir hér og þar til að lífið
geti gengið sinn vanagang í
stórum dráttum.
□4104000
Landsbankinn
MUNDI
Pant ekki sjá um
rœstingar hjá Sýsla.
Hafiði séð öll þessi
fingraför...?
Fólksfjölgun á Suðurnesjum frá 2001:
HVAR ERT ÞÚ AÐ AUGLÝSA?
Pósthússtrœti eða Manhattan?
Fyrsta háhýsið við Pósthússtræti í Reykjanesbæ gnæfir yfir Keflavíkurhöfn og þegar er hafin bygging
á öðru eins húsi. Þá eru hafnar framkvæmdir við háhýsi á hafnarbakkanum gegnt verslun BYKO.
Gárungarnir hafa haft á orði að hafnarsvæðið i Keflavík taki brátt á sig svip Manhattan í New York,
Aukin umsvif við útgáfu
vegabréfa í Keflavík
• •
Oll afgreiðsla íslenskra
vegabréfa verður á
hendi sýslumanns-
embættisins í Keflavík frá og
með 11. apríl næstkomandi.
Færslan á þessu verkefni frá
útlendingaeftirlitinu er liður
í endurskipulagningu sýslu-
mannsembættanna á landinu.
Hún miðar að því að dreifa
verkefnum og mun sýsluskrif-
stofan á Blönduósi t.d. sjá um
alla sektainnheimtu á lands-
vísu. Vegna þessara auknu
umsvifa mun sýsluskrifstofan
fjölga starfsfólki og opna útibú
að Brekkustíg 39 í Njarðvík
þar sem vegabréfaútgáfan
verður til húsa ásamt öku-
skírteinaútgáfu embættisins
og tollafgreiðslu. Stöðugildi
verða fjögur um vetrartímann
en með auknuni umsvifum á
sumrin verða þar allt að sjö
starfsmenn.
Fyrirkomulagið verður með
þeim hætti að ljósmyndaað-
stöðu verður komið upp hjá
öllum embættum og myndir
og fingraför viðkomandi send
á rafrænu formi til Keflavíkur
þar sem vegabréf verða útbúin
og fullunnin. „Reynsla okkar
og staðsetning nálægt alþjóða-
flugvellinum gerir okkur að
góðum kosti til að sinna þessu
verkefni," sagði Ásgeir Eiríks-
son, sýslumannsfulltrúi í Kefla-
vtk, í samtali við Víkurfréttir.
„Það er greinilegt að ráðuneytið
hefur fulla trú á okkur til að
standa vel að þessu verkefni og
við ætlum að standa undir því
trausti."
MEST FJÖLGUN í VOGUM
Sveitarfélagið Vogar er með mestu hlut-
fallslegu íbúafjölgunina á Suðurnesjum
síðan í desember 2001, eða 21% aukningu.
Sveitarfélagið Garður kemur þeim næstur með
14% fjölgun og Grindavík er þar skammt undan
með 12.3%.
íbúum Sandgerðis hefur fjölgað um 9.7% á tíma-
bilinu, en það athyglisverða við þeirra tölfræði er
sú staðreynd að öll sú fjölgun átti sér stað á síðasta
ári. Reykjanesbær rekur svo lestina í hlutfallsreikn-
ingnurn með 3.7% fjölgun, en eru með mestu
raunfjölgunina, eða um 400 íbúa. Reykjanesbær
er 5. fjölmennasta sveitarfélag landsins á eftir
Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Akureyri.
Þetta kom fram í svari félagsmálaráðherra við
fyrirspurn Kristjáns L. Möllers (S) á Alþingi fyrir
skemmstu.
Þar kemur einnig fram að hlutfall erlendra ríkis-
borgara af íbúum sveitarfélags er hæst í Garði, eða
10.1%. Sandgerði kemur þar næst með 7.4%, þá
Vogar með 4.8%, Grindavík með 4.1% og Reykja-
nesbær með 3.4%.
Fór með hand-
legg í flökunarvél
Laust fyrir hádegi á
þriðjudag var tilkynnt
um vinnuslys í Garði
hjá Fiskverkun HP. Þar hafði
starfsmaður lent með vinstri
handlegg í flökunarvél og var
hann fluttur með sjúkrabifreið
á HSS. Hann mun þó ekki vera
alvarlega meiddur en var með
nokkra skurði á handleggnum.
Leikskólakennarar
fá kjarabót:
Launaviðbætur
samþykktar
Bæjarstjórnir Grinda-
víkur, Sandgerðis,
Reykjanesbæjar og
Garðs samþykktu í síðustu
viku svokallaðar launavið-
bætur til leikskólakennara.
Launanefnd sveitarfélaga hefur
veitt sveitarfélögum skilyrtar
heimildir til tímabundinnar
hækkunar launa, sem felst í
eingreiðslum og hækkunum á
launaflokkum.
Þessar hækkanir eru tíma-
bundnar til hausts og standa
utan við gildandi kjarasamning
sem þá verður laus. Bæjarstjórnir
sveitarfélaganna Grindavíkur,
Garðs og Sandgerðis samþykktu
jafnframt að nýta heimildir þær
sem launanefndin veitti til að
hækka með samskonar hætti
lægstu laun starfsmanna í ASI
og BSRB félögum, sem launa-
nefndin hefur samið við þegar
á þessu ári, um allt að 15 þús.
kr. á mánuði. Reykjanesbær
hafði þegar um áramót hækkað
laun ófaglærðra starfsmanna á
Ieikskólum.
AUGLÝSINGASÍMINNER 4210000
Litlar telpur
fundu hasslón
á leikvelli
Tvær litlar telpur
komuálögreglustöð-
ina i Keflavík með
hasslón sem þær höfðu
fundið á Smáratúnsleik-
vellinum. Uin er að ræða
beyglaða hálfslítra plast-
flösku sem hefur verið
notuð til hassreykinga.
Sýslumaðurinn í Keflavík:
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR ÐAGLEGA!
2
VÍKURFRÉTTIR 7. TÓLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR