Víkurfréttir - 16.02.2006, Blaðsíða 12
Aukning á nýtingu tjaldstæðis
Nýting tjaldsvæðis í Iandi Reykjanesbæjar hjá Alex, ferða-
þjónustu við Aðalgötu, jókst um 21% á milli ára 2004 og
2005. Fjöldi gistinátta var alls um 4200 en tjaldsvæðið
var opið frá 1. júní til 15. september. Að sögn Guðmundar Þóris
Einarssonar, rekstrarstjóra Alex ferðaþjónustu sem sér um tjald-
svæðin, virðist sem ferðamenn hafi tekið þessari nýju staðsetn-
ingu fagnandi. Smáhýsi sem sett voru upp s.l. vor nýttust jafn-
framt mjög vel í sumar og haust. Gestir tjaldstæðisins eru bæði
fslendingar á leið úr landi og svokallaðir „stop-over” farþegar.
Landgangurinn við
Leifsstöð rifínn
Gert er ráð fyrir að
byrjað verði að rífa
landgang flugstöðv-
arinnar þriðjudaginn 21.
febrúar þegar búið verður
að koma fyrir „stokki” eða
bráðabirgðalandgangi til
hliðar, ofan á gólfplötu 2.
hæðar nýrrar viðbyggingar,
fyrir farþega sem eru á leið
úr landi eða inn í landið.
Gamli landgangurinn verður
fjarlægður á um 40 metra kafla
næst flugstöðinni til að skapa
rými fyrir viðbygginguna.
Jafnframt verður leið farang-
ursvagna breytt og þeim ekið
eftir gólfplötu 1. hæðar nýbygg-
ingarinnar út á flughlöðin.
Hafnar eru framkvæmdir við
að byggja yfir gönguleiðir milli
flugstöðvarinnar og langtíma-
stæða fyrir bíla. Þá eru hafnar
framkvæmdir við loftstokk í
suðvesturhorni 1. hæðar (ná-
lægt söluskrifstofu Icelandair
við innritunarsal). Starfsfólk
verður óhjákvæmilega fyrir ein-
hverjum óþægindum meðan
þetta gengur yfir en slíkt til-
heyrir, því miður.
54 stiga hiti í Keflavík!
Það var sannkallaður eyðimerkurhiti í Keflavík í síðustu vlku og
ástæða til að fá sér ís. Það mátti alla vega halda þegar hitamæli á
Bónusvideói við Baldursgötu var gefinn gaumur. Mælirinn birti hita-
stig upp á 54°C takk fyrir og flettiskilti þar undir hvetur fólk til að fá
sér ís. Það er hins vegar lítil hætta á að ísinn bráðni hratt, því hita-
mælirinn segir ósatt og nú er frekar veður fyrir úlpu!
Barnagaman:
Foreldramorgnar í Kirkju-
lundi komnir á fullt
Nýbakaðir foreldrar
frá Suðurnesjum
eiga sér samastað
í Kirkjulundi í Keflavíkur-
kirkju á miðvikudögum, en
foreldramorgnar eru haldnir
þar alla miðvikudaga kl. 10.
Þar hafa mæður jafnt sem
feður komið saman að und-
anförnu og rætt um heima
og geima auk þess sem mögu-
legt er að stöku sinnum verði
á dagskrá fræðsla um börn
og barnauppeldi. Að fúndum
loknum er svo kjörið að líta
inn í kyrrðarstund í kapell-
unni og fá sér súpu og brauð
áður en haldið er heirn á leið.
Sandgerðisbær:
180 íbúðalóðum úthlutað
Mikil eftirspurn hefur
verið eftir bygginga-
lóðum í Sandgerði
en alls er búið að úthluta 180
lóðum síðustu misseri og íbúa-
talan eykst jafnt og þétt.
I upphafi var úthlutað 60 nýjum
lóðum en þær fóru allar strax.
Til að mæta eftirspurninni voru
skipulagðar 66 lóðir til viðbótar
-áttu að vera 60 í upphafi.
en það dugði ekki til. Þá var
33 lóðum bætt við en þær eru
allar farnar. í það heila er búið
að úthluta 180 byggingalóðum
í fjórum hverfum, að sögn Sig-
urðar Vals Ásbjarnarsonar, bæj-
arstjóra í Sandgerði.
Sigurður segir að kynningará-
tak sveitarfélagsins undir kjör-
orðinu “Sandgerðisbær innan
seilingar”, vera að skila sér. “Við
vorum lengi vel föst í tölunni
1400 en erum komnir með
1550 íbúa í dag. Markmiðið
var að auka þetta í 1800 íbúa
á næsta kjörtímabili en nú er
ljóst að þetta mun líklega nást
á fyrri hluta tímabilsins”, sagði
Sigurður Valur.
Bæjarskrifstofan
flutt í nýtt húsnæði
-öll stjórnsýslan núna á einum
Skrifstofur Sandgerðis-
bæjar hafa flutt starfsemi
sína í Vörðuna, nýjan
miðbæjarkjarna sem verið er
að ljúka við og tekinn verður
í notkun með viðhöfn í næsta
mánuði. Er um að ræða helm-
ingsstækkun á vinnuaðstöðu
bæjarskrifstofunnar frá því
sem áður var við Tjarnargöt-
una.
Að sögn Sigurðar Vals Ásbjarn-
arsonar, bæjarstjóra, er þetta
mikil breyting fyrir starfsemi
bæjarskrifstofunnar þar sem
húsið við Tjarnargötu var barn
síns tíma og uppfyllti ekki þær
kröfur sem gerðar eru til slíks
húsnæðis í dag, t.d. hvað varðar
allt aðgengi. Auk þess rúmaði
húsið ekki lengur alla starfsem-
ina. Með tilkomu nýju skrifstof-
unnar verður öll stjórnsýslan á
einum stað. Bæjarstjórnarfundir
hafa t.a.m. farið fram í Fræða-
setrinu en verða framvegis í
nýja húsnæðinu.
Framkvæmdum við Vörðuna
er óðum að ljúka og er ráðgert
að opna hana formlega með
viðhöfn í næsta mánuði. Að
sögn Sigurðar Vals á öllum fram-
kvæmdum við lóðina að vera
lokið í vor. Ýmis önnur starf-
semi verður í húsinu, t.d. bæjar-
stað.
bókasafnið, heilsugæsla, banki
og hársnyrtistofa. Auk þess er
í húsinu miðlægt eldhús fyrir
alla starfsemina og móttöku-
og veislusalur með margvíslegt
notagildi.
I byggingunni eru 11 íbúðir en
húsið er byggt í samvinnu við
Búmenn og eru 8 íbúðir á þeirra
snærum. Hinar þrjár tilheyra
sveitarfélaginu.
Sandgerðisbær stækkar:
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR ÐAGLEGA!
12 | VÍKURFRÉTTIR i 7. TÖLUBLAÐ i 27.ÁRGANGUR