Víkurfréttir - 16.02.2006, Síða 23
'5jÍ^r^
Vann með báðum liðum
Körfuknattleikskappinn Nökkvi Már
Jónsson lagði skóna á hilluna fyrir
nokkrum árum, en hann var sigursæll
með á ferli sínum með Grindavík og
Keflavík. Svo skemmtilega vill til að
Nökkvi var einmitt í fyrstu bikarliðum
beggja, með Keflavík árið 1993 og
Grindavíktveimurárum síðar.
Þú varst i fyrsta bikarmeistaraliði Keflavíkinga
og Grindvikinga, Hvor Ieikurinn er eftirminni-
Iegri og hvor sigurinn var sætari?
Frómt frá sagt man ég lítið eftir fyrsta bikar-
meistaratitli Keflvíkinga frá 1993 er við öttum
kappi við lið Snæfells. Þó þykist ég muna að við
mættum ákveðnir til leiks, staðráðnir í því að
koma höndum okkar á bikarinn. Leikurinn æxl-
aðist eins og að var stefnt og ef ég man rétt skildu
um 40 stig liðin að í lokin. Líklega hefur Kristinn
Geir verið bestur á vellinum, hann var að sigla inn
í vor ferils síns urn þessar mundir.
Hvað leikinn með Grindavík 1995 varðar, gegn
Njarðvík, þá er minnið ívið skárra og þar af leið-
andi er sá leikur eftirminnilegri. Samfara því að
Njarðvíkingar voru sigurstranglegri var um fyrsta
stóra titil Grindavíkur að ræða. Hann var því sæt-
ari en sigurinn með Keflavík 1993.
Var hlutverk þitt mismunandi í liðunum
tveimur?
Ekki rekur mig minni til þess, ég hef sennilega
spilað áþekka rullu. Þó má segja að mér hafi verið
ætluð meiri ábyrgð með liði Grindavíkur enda var
það að mestu skipað ungum og óreyndum leik-
mönnum, ef frá er talinn Guðmundur Bragason,
þá landsliðsfyrirliði.
Hvenær og af hverju fórst þú til Grindavíkur?
Eg skipti yfir í Grindavík um sumarið 1993.
Ástæðan var sú að Guðmundur Bragason hafði
verið ráðinn þjálfari hjá Grindavík þá um sum-
arið og hafði metnað til að tefla fram sterku liði
næsta tímabil. Ég man að ég var hikandi í fyrstu
en þegar Hjörtur Harðarson sýndi vilja til að
skipta einnig yfir reyndist ákvörðunin auðveld.
Það tímabil sem fór í hönd reyndist svo eitt hið
skemmtilegasta á mínum ferli.
Hver var munurinn á að spila með þessum
tveimur liðum?
Munurinn var einkum sá að í liði Keflavíkur voru
virkir landsliðsmenn í hverri stöðu, og jafnvel á
bekknum. Lið Grindavíkur var hins vegar öllu
óreyndara og rnjög ungt þegar ég steig þar urn
borð. Það kom þó ekki í veg fyrir að liðið varð
deildarmeistari vorið 1994.
Hverjar eru sterku og veiku hliðar Iiðanna í dag?
Ég hygg að styrkur Keflavíkur felist fyrst og fremst
í mikilli reynslu sem leikmenn þeirra hafa viðað
að sér, einkum í úrslitaleikjum sem þessum. Slík
reynsla ætti að koma þeim til góða, einkum ef lítið
er skorað og taugaspenna er mikil. Grindvíkingar
eru með engu síðri leikmenn en Keflvíkingar en
stöðugleikann vantar og getur leikur þeirra þ.a.l.
stundum verið fálmkenndur.
Hvernig heldurðu að úrslitaleikurinn fari og
hvoru liðinu heldur þú með?
Ég ber ekkert skynbragð á það hvernig þessi leikur
muni þróast. Ég vona hins vegar að leikurinn
verði spennandi og að Grindavík standi uppi sem
sigurvegarar.
Allirí Laugardalshöllina!
SpKef
Sparisjóðurirm í Keflavík
Sparisjóðurinn í Keflavík styður
körfuknattleik á Suðurnesjum
VÍKURFRÉTTIR I 7. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 18. FEBRÚAR 2005 I