Víkurfréttir - 16.02.2006, Side 34
151
Getraunaseðill vikunnar
(SLANDSBANKI
Sighvatur og Jón Óli eru rnenn
með reynslu í getraunum. Þeir
kepptu einnig fyrir Islandsbanka
í íyrra
Þau Falur og Björg gerðu jafntefli
við Hitaveituna í síðustu viku og
náðu bæði lið þar í sín fyrstu stig.
1. Boiton - West Ham 1 x2
2. Newcastle - Southampton 1 1
3. Preston - Middlesbro 12 2
4. Charlton - Brentford 1 1
5. SheffWed - Sheff Utd 2 2
6. Brighton - Watford 2 2
7. Leicester - Leeds 1 2 x2
8. Millwall - Crystal Palace x2 2
9. Cardiff - Hull 1 1
10. Wolves - Ipswich 1 1x2
11. Plymouth - Coventry 1x2 X 2
12. Norwich - Derby 1 1 X
13. Chesterfield - Southend 1 X 2
Vöruhús Frihafnar-
innar og Myllubakka-
skóli skildu jöfn að
skiptum í síðustu viðureign,
bæði með 8 rétta.
Stuðlaberg vann hins vegar
góðan sigur á Sparisjóðnum
og eru þeir því komnir í efsta
sætið með 7 stig.
Staða annara liða er sem hér
segir:
Sparisjóðurinn í Keflavík 6
Hjalti Guðmundsson 6
Islandsbanki 6
Myllubakkaskóli 4
Vöruhús Fríhafnarinnar 4
Áfangar 3
Brunavarnir Suðurnesja 2
Hitaveita Suðurnesja 1
Sjúkraþjálfun Suðurnesja 1
SÍMI, SJÓNVARP
OG NETTENGING Á HÁHRAÐA
TIL ALLRA LANDSMANNA
Kynningarfundur Sturlu Böðvarssonar, samgönguráðherra,
um Fjarskiptaáætlun til ársins 2010 verður haldinn í
Saltfisksetrinu, Grindavík, fimmtudaginn 23. febrúar kl. 20:00.
í áætluninni eru framsækin markmið stjórnvalda um öflugri
fjarskiptanet og bætt aðgengi allra landsmanna að hvers
kyns fræðslu og afþreyingarefni.
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ
L
IÞROTTIRIBOÐI
LANDSBANKANS
Njarðvík enn á toppnum
Isíðustu viku voru leiknar
tvær umferðir í Iceland
Express deild karla í
körfuknattleik. Njarðvíkingar
halda toppsætinu með fjög-
urra stiga forskot á Keflavík.
Á fimmtudeginum lögðu Njarð-
víkingar lið Hamars/Selfoss 73
- 85 og gerði Friðrik Stefánsson
21 stig í þeim leik. 1 sömu um-
ferð sigraði Keflavík Hött með
40 stiga mun 119 - 79 í Slátur-
húsinu. Athygli vakti að Kefla-
vík lék í gulum búningum sem
Henson saumaði fyrir þá en þeir
voru endurgerðir af 24 ára gam-
alli fyrirmynd. Grindvíkingar
máttu svo lúta í lægra haldi gegn
Snæfell í Hólminum 68 - 67.
Á sunnudaginn var fór svo 17.
umferðin fram í IE - deildinni
og þá tóku Njarðvíkingar á móti
ÍR og höfðu þar sigur 88 - 71.
Jeb Ivey gerði 29 stig í þeim
leik. Grindvíkingar mættu vel
stemmdir á Egilsstaði og gerðu
strax út um viðureign liðanna í
1. Jeikhluta en lokatölur urðu 70
- 127 Grindavík í vil. Jeremiah
Johnson gerði 36 stig í leiknum.
Islandsmeistarar Keflavíkur
gerðu góða ferð í Hafnarfjörð-
inn og tóku Hauka í kennslu-
stund 76 - 102 og skoraði A.J.
Moye 31 stig í leiknum.
Nýjungar hjá Sunddeild UAAFN
Sunddeild UMFN hefur ákveðið að fara af stað með sund-
skóla fyrir börn fædd 2000 og 2001.
Munu börnin fara í gegnum markvissa vatnsaðlögun sem
kemur til með að auka hreyfifærni þeirra, einnig öðlast þau öryggi
í vatni ásamt því að læra undirstöðuatriðin í sundnámi. Kennari í
sundskólanum er Ásgerður Bjarldind Bjarkadóttir íþróttafræðingur.
Boðið verður uppá tvær kennslustundir í viku, á þriðjudögum og
miðvikudögum Jd. 18:00 - 18:45 í sundlaug Njarðvíkur og geta for-
eldrar valið um að vera lx eða 2x í viku. Áhugasamir geta haft sam-
band við Ásgerði í síma 867 0851.
Keflvíkingarfengu Drago-styttuna
Aársþingi KSl laugardag-
inn 11. febrúar fékk
lið Keflavíkur Drago-
styttuna sem prúðasta lið
Landsbankadeildarinnar 2005.
Eggert Magnússon, formaður
KSl, afhenti Rúnari Arnarsyni,
formanni knattspyrnudeildar-
innar, styttuna. Þetta er þriðja
árið í röð sem Keflavíkurliðið
fær slíka viðurkenningu, liðið
var einnig prúðasta lið úr-
valsdeildar árið 2004 og fékk
einnig viðurkenningu þegar
liðið lék í 1. deild árið 2003.
Þess má geta að Keflavík hlaut
Drago-styttuna einnig árin
1976, 1979,1993 og 1995.
Fínn árangur á Dojang Dreka móti
Taelcwondo deild Keflavíkur tók þátt í öðru af þremur Doj-
ang Dreka mótum í Engjaskóla þann 4. febrúar s.l.
85 keppendur frá sex félögum voru á mótinu og áttu Kefl-
víkingar 12 krakka sem kepptu í mótinu. Keppt var í formum
(poomsae), bardaga (sparring) og þrautabraut. Þrautabrautin var vin-
sælust meðal krakkana, en að þessu sinni komst enginn Keflvíkingur
í úrslit í þrautabraut. Keflavík átti þó fjóra af fimm keppendum í úr-
slitum formum í floldd barna með appelsínugult og grænt belti. Þar
hlaut Óðinn Már silfur og Ævar Þór brons. Jón Bjarni sem keppti í
flokki fullorðinna með lægri belti hafnaði í þriðja sæti í formum. I
bardaga (sparring) var keppt í þremur þyngdarflolckum lijá börnum
með lægri belti. Jón Steinar fékk silfur í öðrunr flokki. ívar fékk
silfur og Tómas brons í þriðja flolclc, Þetta er frábær árangur hjá
strákunum sem voru að keppa á sínu fyrsta móti. Þórir Elvar sem
var eini keppandi Keflavíkur í fullorðins flokki í bardaga og fékk
hann silfur í sínum flokld. Hægt er að skoða myndir frá mótinu á
www.keflavik.is
VÍKURFRÉTTIR Á NETfNU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!