Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.05.2006, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 11.05.2006, Blaðsíða 8
Anna Sigríður sýnir í Salt- fisksetrinu Anna Sigríður Sigurjóns- dóttir opnaði sýningu sína í Listasal Saltfisk- seturins um sl. helgi. Sýningin ber yfirskriftina Dýrið og má þar sjá ljósmyndir og skúlptúra eftir Önnu. Góð mæt- ing var á opnunina, en þar af- henti listakonan Sigríður Kjaran Saltfisksetrinu eitt af sínum fræg- ustu verkum, „Saltfiskkonu". Verkinu veitti mótttöku Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri og stjórnarformaður setursins. En á myndinni með þeim eru börn Sigríðar og Óskar Sævarsson, forstöðumaður. Anna Sigríður, sem býr í Grinda- vík, sagðist sækja sinn inn- blástur í heimspekilegar vanga- veltur um hver við erurn, hvað við erum og hversvegna við séum hér. Hún er afar ánægð með sýning- arrýmið í salnum í Saltfisksetr- inu og vonast til þess að sem flestir listamenn sýni þar á næst- unni. Bl Bæjarstjórnarkosningar í Reykjanesbæ: Listar nýju framboðanna þriggja Fimm listar verða í framboði til sveitarstjórnarkosninga í Reykjanesbæ þann 27. maí nk. Um helgina skiluðu Frjálslyndir og óháðir, Reykjanesbæjarlisinn og Vinstri Grænir inn fram- boðslistum og listum yfir stuðningsmenn. Þeir koma til viðbótar við A-listann og lista sjálf- stæðismanna. Listar framboðanna þriggja eru sem hér segir: Reykjanesbæjarlistinn: 1. Baldvin Nielsen 2. Sœmundur Þ. Einarsson 3. Konráð K. Björgólfsson 4. Gunnar Þór Böðvarsson 5. Eygló Rós Nielsen 6. Gunnar L. Þorsteinsson 7. Jón Agnar Gunnlaugsson 8. Hjördís L. Bjarnadóttir 9. Sigurður H. Jónsson 10. Anton Bogason 11. Sigurður Trausti Þórðarson 12. Magnús Ö. Haraldsson 13. Andrés D. Kristjánsson 14. Rosmary Aðalsteinsdóttir 15. Elín Ósk Björnsdóttir 16. Guðrún K. Aðalsteinsdóttir 17. Kristján 1. Magnússon 18. Oddur Jónsson 19. Jónas P. Guðlaugsson 20. Rakel G. Sigurðardóttir 21. Gestur Þorláksson 22. Eydís B. Baldvinsdóttir Listi Frjálslyndra og óháðra: 1. Kristinn Guðmundsson 2. Sigríður Rósa Laufeyjardóttir 3. Helgi J. Kristjánsson 4. María Ó. Sigurðardóttir 5. lngvarA. Garðarsson 6. Helga Kolbrún Sigurpálsdóttir 7. Arnar Steinn Sveinbjörnsson 8. Thehna B. Árnadóttir 9. Valur Ármanns 10. Sigríður Linda Helgadóttir 11. Hákon Ö. Mattíasson 12. Vilborg Pétursdóttir 13. Jón Tryggvi Arason 14. Kristjana Aðalsteinsdóttir 15. Ágúst Árnason 16. Anna G. Kristinsdóttir 17. Stefán Guðmundsson 18. Heiðrún Þ. Aradóttir 19. Sigurlaug Guðmundsdóttir 20. Dúi Karlsson 21. lngibjörgS. Guðleifsdóttir 22. Haukur Kjartansson Listi Vinstri Grænna: 1. Sigurður Eyberg Jóhannesson 2. Þórunn Friðriksdóttir 3. Ægir Sigurðsson 4. Margrét Þórarinsdóttir 5. Rut Ingólfsdóttir 6. Elín Inga Ólafsdóttir 7. Sara Dögg Gylfadóttir 8. Hermann Karlsson 9. Anna Björg Þormóðsdóttir 10. Hafsteinn Þór Eymundsson 11. Sævar Bjarnason 12. Hólmar Tryggvason 13. Albert Teitsson 14. Jakob Jónatansson 15. Hafþór Hlynur Valdentarsson 16. Svanhvít Freyja Þorbjörnsdóttir 17. Reynir Arason 18. Hrönn Sigmundsdóttir 19. Ólafur Ögtnundsson 20. Ágúst Jóhannsson 21. Jón Kr. Olsen 22. Karl G. Sigurbergsson ATVINNA . þegar þér hentar 10-11 er framsækið fyrirtæki í örum vexti. 10-11 erfremsta þægindaverslun landsins með 21 verslun. Velgengni sína þakkar fyrirtækið fyrst og fremst starfsfólki sínu. Því er ætíð lögð áhersla á að gott fólk veljist til starfa. í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 10-11 óskar eftir að ráða fólk til starfa í verslun okkar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Um er að ræða bæði fullt starf og hlutastarf. Leitað er eftir áreiðanlegum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Æskilegur aldur umsækjenda er 18 ára og eldri. Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila á skrifstofu 10-11, Lyngási 17,210 Garðabæ eða á www.10-11.is. Bl Grindavík: Óskalög sjomanna flutt öðru sinni - skemmtun og fjöldasöngur á Salthúsinu í Grindavík í upphafi sjómannadagshelgar. Þann 8. júní, fimmtu- daginn fyrir sjómanna- daginn, verður dag- skráin Oskalög sjómanna -skemmtun og fjöldasöngur, á veitingastaðnum Salthúsinu í Grindavík. Flutt verða gömul og sígild sjómannalög eins og Síldarvalsinn, Allt á floti alls staðar, Á sjó, Þórður sjó- ari, Sjómenn íslenskir erum við, Vertu sæl mey, Ship ohoj að ógleymdum Sirnba sjó- manni ásamt mörgum öðrum perlum. Fyrir fjörinu stendur tónlist- arfólk úr Grindavík ásamt hljóðfæraleikurum úr næsta nágrenni! Ætlunin er að taka forskot á sæluna og byrja sjó- mannadagshelgina á fimmtu- dagskvöldi, skemmta sér og syngja saman á þeirn einstaka veitingastað sem Salthúsið er. Dagskrá þessi var haldin í fyrsta skipti á síðasta ári og er hún til heiðurs íslenska sjómanninum og sjómannalögunum okkar. Það er ósk aðstandenda að þetta verði árlegur viðburður í Grinda- vík enda tókst mjög vel til í fyrra og var húsfyllir og stemmningin engu lík. Menningararfur okkar Islend- inga inniheldur ógrynni frá- bærra sjómannalaga og texta sem vitna til þessa lífs sem mjög margir Islendingar þekktu hér á árum áður og gátu samsamað sig við á einn eða annan hátt. Tónlist þessi geymir m.a. róman- tík síldaráranna, minnir okkur á að við íslendingar eigum gjöf- ulum fiskimiðum og duglegum sjómönnum mikið að þakka. Flytjendur dagskráarinnar eru: Dagbjartur Willardsson, Rósa Signý Baldursdóttir, Inga Björk Þórðardóttir, Inga Runólfsdóttir, Björn Erlingsson, Einar Friðgeir Björnsson, Erlingur H. Einars- son og Þröstur Harðarson, en hljómsveitina kalla þau Meðbyr. Dagskránni lýkur með fjölda- söng sem Pétur Pálsson, út- gerðarmaður í Grindavík, mun leiða. Hljómsveitin Meöbyr sem stendur fyrir Óskalögum sjómanna í Grinda- vík fimmtudaginn 8. júní nk. Frá vinstri: Inga Björk Runólfsdóttir, Björn Erlingsson, Rósa Signý Baldursdóttir, Inga Þórðardóttir, Einar Friðgeir Björnsson, Dagbjartur Willardsson og Erlingur H. Einarsson. Á myndina vantar Þröst Harðarson. FRÉTTASÍMINN joiBBHmiesmm 8982222 8 IVIKURFRÉTTIR : 19. TÖLUBLAÐ : 27 ÁRGANGUR VÍKURFRÉTTiR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.