Víkurfréttir - 11.05.2006, Blaðsíða 34
ÍÞRÓTTIR í BOÐI
LANDSBANKANS
Sumarstörf
Landsbankinn - Leifsstöð
Óskum eftir að ráða starfsfólk til sumarafleysinga hjá
Landsbankanum í Leifsstöð við gjaldeyrisafgreiðslu.
Um er að ræða hlutastörf í vaktavinnu.
Leitað ereftirfólki sem hefurgóða samskiptahæfileika
og ríka þjónustulund.
Góð ensku- og tölvukunnátta er nauðsynleg.
Umsóknirskai senda í gegnum vef Landsbankans:
www.landsbanki.is
Allar nánari upplýsingar veitir Anna Margrét
Guðmundsdóttir, forstöðumaður Landsbankans í
Leifsstöð í síma 410 4144.
Landsbankinn
fslandsmót í pílu í
Reykjanesbæ
Um helgina fer
íslandsmótið í
pílukasti fram í að-
stöðu Pílufélags Reykj anes-
bæjar að Hrannargötu 6.
Spilaður verður einmenn-
ingur á laugardag og tví-
menningur á sunnudag.
Þar munu bestu kastarar
landsins bæði í karla og
kvennaflokki.Ef einhverjir
hafa áhuga að spreyta sig þá
er hægt að skrá sig í sima
660-8172.
Píluíþróttin hefur verið í
sókn undanfarin ár og eru
margir sterkir pílukastarar
á Suðurnesjum. Pílufélag
Reykjanesbæjar verður
með kynningu á pílukasti í
Reykjaneshöll á laugardeg-
inum þar sem öllum er vel-
komið að fræðast meira um
þessa skemmtilegu íþrótt.
Astkæru Keflvíkingar og
aðrir áhugamenn um
góða knattspyrnu.
Nú fer að fara í hönd uppáhald
tími margra. Tíminn þegar
sólin fer hátt á loft og hitastigið
hækkar um allnokkrar gráður.
Lyktin af nýslegnu grasi fer að
gera vart við sig og það sem
kannski helst heillar, að blessuð
knattspyrnan fer á fullt og
maður skellir sér í sólskinsskapi
á völlinn og fylgist með strák-
unum sínum í Keflavík leika
listir sínar og hefur oftar en ekki
ansi gaman af.
f fyrra var umgjörðin tekin
í gegn og nýjir klúbbar og ráð
stofnuð í kringum félagið. Hlaut
Keflavík sem heild verðlaun
fyrir bestu stuðningsmennina
í umferðum 6-12, og er í því
innifalið umgjörðin og allt það
flotta sem félagið var að gera
í fyrrasumar. Var það mikill
heiður bæði fyrir okkur stuðn-
ingsmennina og félagið í heild
sinni.
Umgjörðin í ár er enn glæsi-
legri en í fyrra, en eins og menn
hafa eflaust tekið eftir er búið
að koma fyrir 1100 fagurbláum
sætum í stúkuna og núna erum
við sko að tala um alvöru pakka!
Þannig er ekkert hægt að kvarta
undan umgjörðinni, hún er með
þeim glæsilegri hér á landi, það
held ég að sé algjörlega óhætt
að fullyrða.
f fyrrasumar skapaðist oft og
tíðum mikil og hressandi
stemmning hjá stuðnings-
mönnum Keflavíkur og til
dæmis fengum við í Pumasveit-
inni töluverða athygli fyrir
skemmtilega stemmningu á
en ætlunin er ekki að við séum
eitthvað þarna til að skemmta
öðrum eða þannig, heldur erum
við þeir sem taka af skarið og
svo fylgir fjöldinn með og tekur
undir og lætur vel í sér heyra.
Það er svo skrýtið með suma,
well ansi marga reyndar, að það
er eins og menn skammist sín
eitthvað fyrir að hefja upp raust
sína og kalla Keflavík, eða hvað
annað.
Ég spyr bara: Hvað er að því?
Nákvæmlega ekkert!
Tökum bara sem dæmi bikarúr-
við munum grilla og fá einn
kaldan fyrir leiki.
Við stefnum líka á að bjóða and-
stæðingunum að kíkja á Yello
til að ræða málin, en það að
kynnaststuðningsmönnum ann-
arra liða gefur fótboltanum enn
meira gildi.
Fyrsti heimaleikurinn okkar
er 19.maí gegn Víkingum og
mun sá leikur bera yfirskrift-
ina Yello-leikurinn, en eins og í
fyrra verða allir heimaleikirnir
styrktir af einhverju góðu fyr-
irtæki.
leikjum og var það virkilega
gaman. Okkar hlutverk í sveit-
inni er að koma fólkinu á vell-
inum, ykkur Keflvíkingum, í
gang í því að styðja liðið okkar.
Við þurfum að standa þétt við
bakið á strákunum og sýna
þeim öflugan stuðning í verki,
því það vita allir hversu miklu
máli góður stuðningur skiptir.
Það munar bara öllu!
Það vildi samt brenna dálítið
oft við í fyrra að þetta voru ein-
göngu við sem sáum um þetta,
slitin gegn KA 2004. Ekkert eðli-
lega gaman á þeim leik enda
gjörsamfega allir í stúkunni
sem tóku þátt í gleðinni og
þá var sko ekki að spyrja að
leikslokum, bikar í hús þar.
I sumar verða stuðningsmenn
Keflavíkur í samstarfi við Yello
þar sem við ætlum að hittast
fyrir alla heimaleiki, peppa hóp-
inn saman og koma okkur í gír-
inn eins og gengur og gerist í
Englandi til dærnis. Svo verður
set gerfigras á svalirnar þar sem
Fyrsti deildarleikurinn hjá
okkur í sumar er gegn ÍBV í
Eyjum sunnudaginn 14. maí og
ætlar Keflavík að fljúga þangað
með 50 manna Fokker vél, og
eru örfá sæti laus ef þá einhver
þegar þetta verður birt. Allar
upplýsingar er hægt að nálgast
á keflavik.is og í síma 421-5188
eða 894-3900. Pumasveitin fer
að sjálfsögðu til Eyja, en við
fórum einnig í fyrra og það var
gjörsamlega frábær ferð!
En ég vill svona í lokin óska
okkur Keflvíkingum góðs gengis
í sumar og munum við vonandi
eiga gott ef ekki frábært fótbolta-
sumar. Ég ber miklar vonir til
liðsins og ég veit að þeir ætla sér
að gera allt til að standa undir
þeim.
Mætum vel og snemma á leiki í
sumar, myndum gífurlega góða
stemmningu í stúkunni, allir
að láta vel í sér heyra á leikjum
og taka hressilega undir með
Pumasveitinni. Mætum á völl-
inn til að skemmta og okkur og
hvetja strákana til dáða, með
þetta tvennt saman getur ekkert
klikkað.
Gerum nú þennan heimavöll
okkar að alvöru gryfju, völl sem
lið óttast að koma á og gerum
það ógerlegt að fara í burtu með
einhver stig af viti!
Til að fylgjast betur með gangi
rnála hjá stuðningmönnum
Keflavíkur er hægt að benda
ykkur á síðurnar www.blog.
central.is/kef-fc og www.blog.
central.is/trommusveitin.
Svo gerum við okkur vonir um
að koma stórri og öflugri síðu í
loftið í sumar sem verður þá vel
auglýst þegar að því kemur.
Tökum svo vel á því í sumar
og eins og lagið góða segir: Við
ætlum á toppinn...
ÁFRAM KEFLAVÍK!
Fyrir hönd stuðningsmanna
Keflavíkur og Pumasveitar-
innar, Jóhann D. Albertsson
B4 VÍKIJRFRÉTTIR I (ÞRÓTTASiÐUR
VfKURFRÉTTIR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!