Víkurfréttir - 11.05.2006, Blaðsíða 14
pr
Bláa Lóniö - heilsulind
Spennandi atvinnutækifæri
Bláa Lónið - heilsulind er meðal fremstu heilsulinda heims
og einn vinsælasti áfangastaður erlendra ferðamanna
sem sækja Island heim. I boði eru atvinnutækifæri í
metnaðarfullu og alþjóðlegu umhverfi.
Við leitum eftir jákvæðum og duglegum einstaklingum
í framtíðar- og sumarstörf. Búseta í næsta nágrenni
við Bláa Lónið - heilsulind er kostur.
Um er að ræða fjölbreytt starf í góðu vinnuumhverfi
og kraftmiklum hóp.
Við leitum eftir áreiðanlegum einstaklingum með
góða þjónustulund, fágaða framkomu og áhuga
á mannlegum samskiptum. Starfið felst í gestamóttöku,
baðgæslu, öryggisgæslu og öðrum tengdum störfum.
Unnið er á vöktum.
Bláa Lónið er reyklaus vinnustaður.
Nánari upplýsingar veitir Hanna Guðlaugsdóttir, starfsmannastjóri,
á netfanginu hanna@bluelagoon.is. Rafrænar umsóknir má nálgast
á www.bluelagoon.is.
www.blueiag
oon.is
Á myndinni má sjá forsvarsmenn fyrirtækjanna ásamt Steinþóri Jónssyni frá
Fasteignafélagi Suöurnesja ehf. í opnunarhófi fyrirtækisins á dögunum.
Ný arkitektastofa í Reykjanesbæ
Ný arkitektastofa hefur tekið til starfa
í Reykjanesbæ en það eru THG arki-
tektar Reykjanesbæ ehf sem eru til húsa
að Brekkustíg 39. Húsnæðið leigja þeir frá Fast-
eignafélagi Suðurnesja ehf. Til að byrja með
verða þrír starfsmenn á stofunni en áform eru
uppi um að ráða fleiri. Allir starfsmenn eru bú-
settir í Reykjanesbæ.
Aðaleigandi stofunnar er Teiknistofa Halldórs
Guðmundssonar ehf. sem hefúr starfað í Reykja-
vík undanfarin 12 ár og er nú ein af stærri arki-
tektastofum landsins. Annar eigandi er Gunnar
K. Ottósson sem hefur rekið teiknistofuna GKO
arkitekt ehf. í Reykjanesbæ undanfarin 3 ár.
Teiknistofa Halldórs Guðmundssonar hefur unnið
við margvísleg verkefni í Reykjanesbæ á undan-
förnum árurn bæði við hönnun og verkefnastjórn
mannvirkja. Sýnt þótti að verkefnum stofunnar
ætti eftir að fjölga til muna á næstunni og því eðli-
legt að færa þjónustu fyrirtækisins til Reykjanes-
bæjar. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja það gert
til að hægt sé að vinna að þessum verkefnum af
þeirri alúð sem þeir hafi metnað til.
Að mati stofnenda fyrirtækisins eru mörg sóknar-
færi framundan í Reykjanesbæ og á Suðurnesjum
bæði hvað varðar hönnun nýrra mannvirkja,
endurbætur og stækkun eldri mannvirkja, áætl-
anagerða og verkefnastjórna. Þar sé um að ræða
stóran markað þar sem fjöldi tækifæra gefast og
nreð náinni samvinnu beggja fyrirtæka í Reykja-
nesbæ og Reykjavík er hægt að sækja á þennan
markað með festu og öryggi sem samanlagt hátt í
30 manna vinnustaður getur veitt.
Samstarf fyrirtækjanna tveggja styrkir bæði fé-
lögin en starfsfólk þeirra býr yfir mikilli reynslu
í hönnun og verkefnastjórnun stærri og smærri
mannvirkja.
Verkefnin eru og munu verða fjöibreytt og segja
forsvarsmenn að það verði metnaðarmál fyrirtæk-
isins að uppfylla óskir viðskiptavina á faglegan og
hagkvæman hátt.
Reykjanesbæjarlistinn
xrnb.is
Réttsýni - Nýsköpun - Breytingar
Hafnargötu 90 - Reykjanesbæ - Sími 421 7537 eða 865 3821
forstöMíiaður Bjargarinnar, ásamt ?
_ ' ___ii:”: A_____i-u.. ' 2
lagnheiðutSfGunnarMMn*, 1
Konráöi LuðvíVssynLtfátífetatýklúbbflum, Hjördísi Árnadóttur
pfélagsmálastjóra Reykjanesbæjar Óg fulltrúum gestanna frá i
Athvarf fyrirfólk með geðröskun:
Björgin gefur úr kynningarbækling
Björgin, athvarf fyrir
fólk með geðröskun,
sem staðsett er í Njarð-
vík fékk góða gesti þar sem
geðhjúkrunarteymi frá Reykja-
lundi kom við til að skoða að-
stöðuna.
Aukþessvarþarformlegafhend-
ing á nýútkomnum kynningar-
bæklingi um starfið í Björginni,
en Rótarýklúbbur Keflavíkur
styrkti útgáfu bæklingsins.
Rótarýklúbburinn hefur auk
þess stutt vel við starfið und-
anfarið og styrkti m.a. kaup á
ýmsum innanstokksmunum líkt
og veglegu hljómborði og fleiru.
Gjafirnar voru af því tilefni að
Rótarýhreyfingin á Islandi fagn-
aði 100 ára afmæli sínu á síðasta
ári.
Starfið í Björginni hefur verið í
örum vexti undanfarið en það
var opnað í febrúar 2005. Mark-
mið Bjargarinnar eru að rjúfa
félagslega einangrun þeirra sem
kljást við geðraskanir, efla sjálf-
stæði þess sem og að auka þekk-
ingu almennings á málefnum
geðsjúkra auk annars.
Allir eru velkomnir í Björgina,
en hún er opin alla virka daga
frá 10 til 16, en frekari upplýs-
ingar má sjá á heimasíðu Bjarg-
arinnar, www.reykjanesbaer.
is/bjorgin.
VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
10 I VfKURFRÉTTIR : 19. TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR