Víkurfréttir - 11.05.2006, Side 22
Sandgerði:
Sumarið er fyrir Iöngu síðan komið
í Gróðrastöðin Glitbrá í Sand-
gerði. Þar bíða garðplöntur og tré
í röðum eftir því að komast í garða Suð-
urnesjamanna sem eru óðum að byrja á
vorverkunum.
Gunnhildur Ása Sigurðardóttir segir stjúp-
urnar alltaf vinsælastar en þær setur hún
út nokkru fyrr en venjulega til þær verði
harðgerðari en fyrir vikið þola þær mun
betur þá veðráttu sem hér ríkir.
Nýlega var tekin í notkun nýr 320 fer-
metra gróðurskáli og hefur úrvalið í
plöntum og trjám verið stóraukið í kjöl-
farið, segir Gunnhildur, sem einnig býður
viðskiptavinum sínum forræktað grænmeti
og kryddplöntur.
Gunnhildur hefur starfrækt þessa einu
gróðrastöð Suðurnesja í 15 ár og segir
reksturinn ganga vel.
POR OG FJOR
Á LEIÐ í
DISKÓKEILU
Paraklúbburinn Pör og
tjör halda á sinn fyrsta
skipulega viðburð á
morgun föstudag þegar farið
verður í rútum í diskókeilu í
Reykjavík. Rúturnar munu
leggja af stað kl. 20:30.
Viðtökur fólks við klúbbnum
hafa verið frábærar að sögn
þeirra sem eru í forsvari fyrir
klúbbinn, en frá stofnun hans
fyrir nokkrum vikum hafa yfír
50 pör og hjón skráð sig. „Þetta
er eiginlega betra en við bjugg-
umst við,” sagði Steinunn Yr
Þorsteinsdóttir, varaformaður
klúbbsins í samtali við Víkur-
fréttir.
„Það er fólk alls staðar að af
Suðurnesjum og líka brottflutt
Suðurnesjafólk sem er komið í
hópinn.”
Starfið hefur hafist með miklum
krafti og er þegar búið að skipa
í nefndir til að skipuleggja aðra
viðburði og er t.d. áætlað að fara
í útilegu í júlí og halda árshátíð í
haust.
„Dagskráin hjá okkur er enn
í mótun,” bætir Steinunn við.
Hún vill að lokum hvetja hresst
fólk á öllum aldri sem hafa
áhuga á skemmtilegu starfi að
hafa samband. Upplýsingar má
finna á bloggsíðu klúbbsins,
blog.central.is/porogtjor.
22 VÍKURFRÉTTIR . 19.TÖLUBLAÐ 27.ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU •www.vf.is- IESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!