Víkurfréttir - 11.05.2006, Page 24
uuuu
Subway Keflavík
O
Óskum eftir fólki í vaktavinnu, breytilegar vaktir.
Leitum að jákvæðu og lífsglöðu fólki með mikla
þjónustulund. Hægt er að sækja um á subway.is
eða á staðnum.
Nánari upplýsingar gefur Durdja í síma 696 7075.
FRÉTTASÍMINN
SOUMHRINCSVAKT
8982222
Atvinna
Vínbúðinni Keflavík vantar fólk
í tímavinnu sem fyrst í áfyllingar
og lagerstörf.
Vinsamlegast hafið samband við Maríu
eða Ólaf í síma 421 5699.
VÍN^BÚE)
l)^ÞiA4A,r Lvj-P'{(1*444.
Starfsmaður óskast til sumarafleysinga í
Saltfisksetri íslands og Upplýsingamiðstöð
Grindavíkur að Hafnargötu 12 í Grindavík.
Ráðningartími er frá 15. maí til
15. september 2006. Umsækjendur þurfa
að hafa náð 18 ára aldri.
Nánari upplýsingar í
síma 420 1190
frákl. 09:00 - 18:00.
Viðtalstími 11. og 12. maí
frá kl. 13:00- 16:00
Minningarorð
SVANBERGINGI
RAGNARSSON
f. 07.01.92 d. 25.04.06
að var vor í lofti þriðjudaginn 25. apríl
þegar nemendur í 8. og 9. bekk Myllu-
bakkaskóla söfnuðust saman til að heyra
hvaða valgreinar stæðu þeim til boða næsta
vetur. Valið verður venju fremur fjölbreytt að
þessu sinni og var bjart yfir unga fólkinu þegar
það hélt aftur í sínar stofur. Þarna var Svanberg
með okkur broshýr og hress enda farinn að sjá
fyrir endann á baslinu með hækjurnar. En að
kvöldi dags hafði hann kvatt þetta líf og við
stöndum eftir orðlaus. Hvernig má það vera
að ungur maður sem átti allt lífið framundan
og var til þess líklegur að gera sig gildandi á
jákvæðan hátt í okkar samfélagi er skyndilega
allur.
Svanberg hafði fengið ýmislegt að kljást við í gegn
um tíðina. Við minnumst þess að hann átti til að
fá slæm höfuðverkjaköst. Stundum voru þau svo
slæm að hann fór heim. Þá var hann vís til að
birtast aftur eftir 2-3 tíma, búinn að jafna sig og
vildi ekki missa af meiru þann daginn. Bekkurinn
hans hefur alltaf reynst sterkur og sérstaklega sam-
heldinn. Það hefur líka hjálpað á þessum erfiðu
tímum.
Foreldrum, systrum og öðrum ættingjum vottum
við einlæga samúð. Minningin um góðan dreng
mun lifa.
Égþakka þau ár sem ég átti,
þá auðtiu að hafa þig hér.
Ogþað er svo margs að minnast,
svo margt sem um huga minnfer.
Þó þú sért liorfitm úr heimi,
ég hitti þig ekki utn hríð,
þtn minning er Ijós setn lifir
og lýsir uttt ókomna tíð.
(Þóruttn Sig.)
Hildur Ellertsdóttir
Kristinn Guðbrandsson
FISKIRÉTTAHLAÐBORÐ
Knattspyrnudeild Njarðvíkur heldur sitt árlega fiskiréttahlaö-
borð í Stapa þann 25. maí n.k. Þessi kvöld hafa notið mikilla
vinsælda meðal stuðningsmanna og annarra velunnara. Þarna
fer fram kynning á leikmönnum og þjálfurum meistaraflokks og
2. flokks. Meistarakokkarnir í Stapanum keppast við að hafa
fiskréttina sem fjölbreyttasta og hafa þeir bókstaflega galdrað
fram ómótstæðilega rétti. Á þessu kvöldi fer vel saman góður
matur og létt skemmtidagskrá, ásamt happdrætti. Skemmtunin
stendur frá kl. 19:30 til kl. 23:30. Verð miða er kr. 3000. Þeir
sem hafa áhuga og vilja tryggja sér miða í tíma, geta haft sam-
band við einhvern af leikmönnum mfl. og/eða hringt í Guðmund
(862-0360), Andrés (863-0751) eða Þórð (861-3266). Einnig er
hægt að senda tölvupóst á njardvikfc@umfn.is
+
Ástkær maðurinn minn, faðir, tengda-
faðir, sonur, bróðir, barnabarn og afi,
John Joseph Cramer,
Hæðargötu 10,
Njarðvík,
lést af slysförum þann 7. maí s.l.
Jarðarför auglýst síðar.
Ósk Sigmundsdóttir,
Halla M. Cramer, Marinó Heiðar Svavar,
Daníel J. Cramer,
Geirþrúður Ó. Geirsdóttir, Árni J. Hjörleifsson,
Halla Valrós Jónsdóttir Cramer, Joseph Cramer,
Robert M. Cramer, Tammy Cramer,
Mildred Cramer,
barnabörn og aðrir aöstandendur.
Bæjarstjóri
fundar með
íbúum
Arlegir íbúafundir
bæjarstjóra hófust
í gær 10. maí og
standa þeir til 18. maí.
Þar mun bæjarstjóri fjalla
um helstu verkefni í bænum
á sviði umhverfismála, gatna-
framkvæmda, skólamála, fé-
lagsþjónustu, ferðaþjónustu,
menningar-, íþrótta- og tóm-
stunda.
Þá verður farið yfir fram-
kvæmdir í hverfum og tekið
við ábendingum íbúa urn
það sem betur má fara.
Fyrsti fundurinn var hald-
inn í Innri Njarðvík í gær
en næstu fundur verður
haldinn í kvöld fyrir íbúa í
Njarðvík. Fundurinn hefst
kl. 20:00 og er haldinn í
Njarðvíkurskóla.
Næstu fundir eru:
íbúar í Höfnum mánudagur
15. maí í safnaðarheimilinu
í Höfnum
íbúar í Keflavík sunnan Að-
algötu þriðjudagur 16. maí í
Holtaskóla
Ibúar í Keflavík norðan Aðal-
götu miðvikudagur 17. maí í
Heiðarskóla
Að auki boðar bæjarstjóri til
íbúafundar með framhalds-
skólanemum í Iþróttaaka-
demíunni fimmtudaginn 18.
maí kl. 17:00.
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTiR DAGLEGA!
24 | VÍKURFRÉTTIR ! 19. TÖIUBLAÐ 27. ÁRGANGUR