Víkurfréttir - 11.05.2006, Síða 28
Árni Sigfússon skrifar:
Tími til að lifa og njóta
Guðbrandur Einarsson skrifar:
Þjónusta við fólkið
Kosningarnar sem framundan eru, munu
og eiga að snúast um þjónustu við fólkið
og hvaða verð þarf að greiða fyrir hana.
A- listinn hefur á undanförnum vikum mótað
sína málefnastefnu. Boðað hefur verið til op-
inna máefnafunda þar sem fjöldi fólks hefur lýst
skoðun sinni á atriðum sem því finnst skipta
máli. A-Iistinn hefur í framhaldinu lagt fram
skýr áhersluatriði sem munu hafa áhrif á kjör
allra íbúa.
Meðal þeirra eru:
* Þátttökukort íyrir grunnskólabörn kr. 25.000 á ári
* Ókeypis skólamáltíðir
* Lækkun leikskólagjalda um helming
* Aukin aðstoð eftir að fæðingarorloft lýkur
* Lækkun fasteignagjalda elli- og örorkulífeyrisþega
* Veruleg íjölgun hjúkrunarrýma í sveitarfélaginu
* Sólarhringsvakt á skurðstofu HSS og ný tekin í notkun
Það er ekki trúverðugt þegar flokkur sem stjórnað hefur sveitarfélag-
inu síðasta kjörtímabil, leggur nú til félagslegar úrbætur, eftir að hafa
staðið að auknum álögum á íbúa s.s. verulegri hækkun leikskóla- og
fasteignagjalda. Til A-listans er stofnað með það að markmiði að
auka og bæta þjónustuna við íbúana og beita til þess félagslegum
úrræðum. Með því að mekja X við A á kjördag munt þú stuðla að
því að það takist.
Guðbrandiir Einarsson
skipar 1. sœti A-listans í Reykjanesbœ
EinarJón Pálsson skrifar:
Lág byggingarleyfis-
gjöld í Garðinum
Margt af því sem fram-
boð til sveitarstjórna
í stærstu sveitarfé-
lögum lands-
ins hyggjast
framkvæma
á næsta kjör-
t í m a b i 1 i,
hefur þegar
verið gert af
nú verandi
meirihluta í
Reykjanesbæ.
Aukið lýðræði
Áhersla hefur verið lögð á
beint samband við íbúa, með
auðveldu aðgengi að bæja-
stjóra, árlegum íbúafundum
og rafrænni afgreiðslu mála,
sem hlotið hefur innlendar og
erlendar viðurkenningar. Af
einstaka verkefnum má nefna
hóflegt gjald fyrir máltíðir í
grunnskólum, Frístundaskóla
að loknum grunnskóladegi sem
innifelur íþrótta- og tómstunda-
starf þeirra og sér um að aka
börnum á milli áfangastaða,
ókeypis strætisvagnaþjónustu í
hænum, styrki til íþróttafélaga
til ráðningar menntaðra þjálfara
í yngri aldurshópum, fasta samn-
inga við íþrótta- tómstundar-
og menningarfélög, frítt í sund
fyrir grunnskólabörn og yngri
til að stuðla að hollri hreyfingu,
auk samræmdrar íjölskylduað-
stoðar allt frá mæðraskoðun hjá
Heilbrigðisstofnun og fram yfir
unglingsárin.
Þessi þjónusta verður styrkt í
sessi á næsta kjörtímabili, undir
forystu sjálfstæðismanna í
Reykjanesbæ.
Sérhver einstaklingur
skiptir máli
Hugmyndafræði okkar byggir á
að velferð sérhvers einstaklings
skipti máli til að heilu samfélagi
farnist vel. Velferð einstaklings-
ins hefst í móðurkviði og fyrstu
árin skipta gríðarlega miklu
máli fýrir mótun og þroska ein-
staklingsins til framtíðar. Við
viljum skapa samfélag sem um-
vefur þessar staðreyndir í verki.
í samræmi við þessa lífsskoðun
teljum við mikilvægt að gefa
foreldrum rýmri tækifæri á að
veita börnum sínum ást og hlýju
með því að sinna þeim lengur
eftir að fæðingarorlofi lýkur. Því
viljum við veita foreldrum 30
þúsund kr. umönnunarstyrk á
mánuði, strax að loknu fæðing-
arorlofi þar til barnið byrjar í
leikskóla. Við teljum ekki rétt að
skilyrða stuðning bæjarfélagsins
við að foreldri komi barninu frá
sér til annarra, eins og gilt hefur
í íslensku samfélagi hingað til.
Foreldrar hafa val. Þeir hafa því
aukið val til að sinna barninu að-
eins lengur sjálfir eftir að fæðing-
arorlofi lýkur, njóta umönnunar
dagforeldra og síðan vandaðrar
leikskólaþjónustu.
•Engir biðlistar eru eftir leikskóla-
plássi í Reykjanesbæ og áfram
verður miðað við að öllum
tveggja ára börnum bjóðist heils-
dagsvistun á leikskóla. Gjald
fyrir leikskóla lækkar til sam-
ræmis við það sem flest stærstu
sveitarfélögin bjóða á næsta kjör-
tímabili.
Aukinn systkinaafsláttur
Systkinaafsláttur millifærist að
fullu. Með þessari miklu breyt-
ingu að öll börn eigi rétt á um-
önnunarstyrk, eftir að fæðingar-
orlofi lýkur, óháð umönnunar-
vali foreldra, gildir eftirfarandi
regla: Barn sem er á leikskóla
en á systkini undir þeim aldri
heirna, hjá dagforeldri eða í leik-
skóla, fær metna lækkun á leik-
skóiagjaldi sem er 50%. Þriðja
systkini fær gjaldfrjálsa vistun
á leikskóla.
Nýr lífstíll í þágu
eldri borgara
Þá er að hefjast framkvæmd við
verkefni í þágu eldri borgara
sem boðar nýja samþætta sýn
á þjónustu. í samstarfi Reykja-
nesbæjar og einkaaðila verður
boðin samþætt þjónusta við
eldri borgara frá miðju bæjar-
ins þar sem verið er að hefja
byggingu félags- og þjónustu-
miðstöðvar eldri borgara, þjón-
ustuíbúðir, öryggisíbúðir og
hjúkrunaríbúðir ásamt útivistar-
svæðum.
Styrkar stoðir
atvinnulífsins
Áfram verður unnið eftir þeirri
stefnu að fjölga styrkum stoðum
í atvinnumálum. Alþjóðaflug-
völlur, iðnaðarsvæði í Helguvík,
orkuvinnsla, ferðaþjónusta og
íþrótta- og heilsutengd þjón-
usta, auk menningarverkefna,
s.s. tónlistar, verða undirstöður í
atvinnuþróun svæðisins.
Stjórnsýsla sem
skilar árangri
Öflug uppbygging Reykjanes-
bæjar á undanförnum árum
byggir á hugmyndafræði okkar
um samstarf opinberra aðila og
einkaaðila (PPP). Þannig er upp-
byggingakraftur samfélagsins
margafaldaður. Má þar nefna,
Nesvelli ehf., með uppbyggingu
í þágu eldri borgara og íþrótta-
svæði, Iþróttaakademíuna í
Reykjanesbæ, Fasteign hf. með
uppbyggingu mannvirkja, Hita-
veitu Suðurnesja hf. með sam-
starf urn ferðaþjónustuverkefni
og orkurannsóknir og Þrek ehf.
vegna nemendaíbúða.
Ég hvet alla bæjarbúa til þess að
kynna sér rækilega stefnumál
D-lista okkar sjálfstæðismanna
og vísa í því sambandi til ítar-
legs kynningarrits og framtíðar-
sýnar til ársins 2010.
X-D
Árni Sigfússon
bæjarstjóri ogframbjóðandi
Sjálfstœðisflokksins í komandi
bœjarstjórnarkosningum.
Undanfarin ár hefur
gjöldum á íbúa Garðs
verið stillt í hóf án þess
að það hafi
komið niður
á þjónustu við
íbúa Garðs.
Byggingar-
leyfisgjöld
eru með al
þess sem hafa
verið ódýr hér
í Garði og það gert með það að
leiðarljósi að tjölga hér íbúum
og gera fólki kleift að eignast
húsnæði á viðráðanlegu verði.
Þetta er eitt af því sem hefur
verið gagnrýnt og haft á orði að
bærinn sé að borga með hverri
lóð sem úthlutað er. Þetta
teljum við í F-listanum að muni
skila sér til baka og þess má geta
að það tekur aðeins örfá ár að
ná þessum kostnaði til baka í
gjöldum af húsnæðinu eftir að
flutt hefur verið inn í það og er
þá ekki tekið tillit til greiðslu út-
svars íbúanna til bæjarfélagsins.
Fulltrúi H-listans sá ástæðu til
að láta bóka athugasemd við
við afgreiðslu ársreikninga fýrir
2005 þess efnis að innheimt
byggingarleyfisgjöld væru lág
miðað við kostnað við gatna-
framkvæmdir og þetta bæri
að athuga. Er verið að boða
hækkun gjalda? Þess má geta
að engu að síður var álagninga-
skráin samþykkt af fulltrúa H-
listans!
Kæru Garðmenn, undir forustu
F-listans hefur okkur fjölgað
rnikið og áreiðanlega hafa lág
byggingarleyfisgjöld hjálpað þar
til. Við megum þó ekki gleyma
því að góð þjónusta verður að
vera til staðar fyrir íbúana, en
það sama á við um bæjarfélagið
okkar og buddu heimilisins að
það er ekki hægt að gera allt í
einu!
Garðmenn forðumst gylliboð og
verum raunsæ, veljum framfarir
til framtíðar, X-F.
Einar Jón Pálsson
Skipar2. sœti F-listans í Garði
Lagersaía
Lagersala Draumalands
er hafin á Ránni
mikið af nýrri vöru ■ Gerið góð kaup
Jft Blénmknd Jfl
Tjarnargötu 3 - Keflavík
sfmi 421 3855
FRCTTASIMINN
vHAmmcmin
8982222
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DACLEGA!
28 IVÍKURFRÉTTIR i 19.TÖLUBLAÐ : 27. ÁRGANGUR