Víkurfréttir - 11.05.2006, Síða 32
ÍÞRÓTTIR ÍBOÐI
LANDSBANKANS
GRV hrósar sigri í
deildarbikarnum
Konur í meistaraflokki
GRV, sameiginlegu Iiði
Grindavíkur, Reynis
og Víðis, hrósuðu um helg-
ina sigri í C-deild deildarbik-
arkeppninnar í knattspyrnu,
en þær unnu alla leiki sína í
keppninni. Sá síðasti var gegn
HK/Víkingi og lauk honum 3-
1.
Þetta er frábær árangur hjá lið-
unum sem hafa náið samstarf
upp alla kvennaflokka. Forsvars-
menn liðsins sjá í þessu mikil
tækifæri þar sem nú geti stúlkur
leikið með sínu liði alla leið upp
í meistarflokk og telja framtíð-
ina bjarta.
Hátíöarmessa veröur í Njarövíkurkirkju, Innri-Njarövík,
þann 14. maí kl. 14 í tilefni
120 ára vígsluafmælis kirkjunnar.
Sr. Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari
sem áður þjónaði Njarövíkurprestakalli predikar.
Baldur Rafn Sigurðsson sóknarprestur þjónar fyrir
altari og meðhjálpari er Kristjana Gísladóttir.
Dagmar Kunákova organisti stjórnar kór kirkjunnar
og leikur undir hjá börnum úr Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar og Guðmundi Sigurðssyni einsöngvara.
Börn úr Barnakór Akurskóla syngja undir stjórn
Elínar Halldórsdóttur.
Að messu lokinni bíður sóknarnefnd gestum að
þiggja veitingar í safnaðarheimili kirkjunnar og þar
mun formaður sóknarnefndar Sigmundur Eyþórsson
og Kristján Pálsson flytja ávörp.
Einnig mun Bergþór Pálsson syngja nokkur lög.
Allir hjartanlega velkomnir
32 VÍKURFRÉTTIR I IÞRÖTTASlÐUR
Knattspyrnufélagið
Víðir 70 ára
Knattspyrnufélagið Víðir
á 70 ára afmæli í dag
XI. maí. Um stofndag
Víðis er ekki vitað með vissu
en sagnir herma að það hafi
verið fyrsti sunnudagur eftir
lokadag árið 1936 þ.e.a.s.
sunnudagurinn 17. Á 60 ára af-
mæli félagsins var ákveðið að
haldið yrði uppá afmælisdag
félagins 11 mai.
Stjórn Víðis hefur ákveðið að
haldið verður uppá þennan við-
Lokið hefur verið við að
koma fyrir 1000 sætum
á leikvöll Keflavíkur við
Sunnubraut og rúmar völlur-
inn þá um 1100 manns í sæti.
Það voru starfsmenn Hjalta
Guðmundssonar sem tóku sér
ekki nema dagstund að ljúka
verkinu.
Á undanförnum tveimur árum
hefur Knattspyrnudeildin og
stuðningsmenn Keflavíkur gert
átak í allri umgjörð liðsins, er þá
átt við jafnt leikmenn og áhorf-
endur. Helstu verkefnin sem ráð-
ist hefur verið í er stofnun Fjöl-
skylduklúbbsins og Sportmanna
til viðbótar við K-Klúbbinn
sem lengi hefur verið ein helsta
stoð og stytta deildarinnar. Á
þessum tveimur árum hefur
áhorfendum fjölgað að meðal-
tali um rúm 25% á milli ára sem
er glæsilegt.
Þá var ráðist í það í samráði við
burð samhliða lokahófi í sept-
ember. Á afmælisárinu tekur
félagið í notkun nýja búninga
á alla flokka félagsins, þá mun
endurbætt stúka verða tekin í
notkun og einnig er stefnt að því
að taka viðbygginguna í notkun
á árinu.
Fyrsti leikur sumarsins er á laug-
ardaginn 13. mai kl. 17:00 þegar
Víðir tekur á móti Hvíta Riddar-
anum í Visa-bikarkeppni karla.
Reykjanesbæ að kaupa 1000
sæti af Laugardalsvelli þegar
breytingar fóru þar í gang á
haustmánuðum. Þessi breyting
mun gjörbreyta allri aðstöðu
áhorfenda á vellinum og auka
stemmninguna og nálægð
áhorfandans hvorn við annan
og stefnt er að því að meðal-
talsáhorf fari yfir 1000 manns
á leik í sumar. Ásýnd vallarins
hefur tekið algjörum stakka-
skiptum með tilkomu sætanna
og göngum við stoltari til leiks í
Landsbankadeildunum í surnar.
Þetta á ekki síður við um Evr-
ópukeppnina þar sem nú verður
leikið á heimavelli eftir að sætin
komu og verður fyrsti leikurinn
á móti Dungannon Swifts FC
17. júní kl. 17:00.
Knattspyrnudeildin vill færa
öllum sem lögðu hönd á plóg
við þetta verkefni sínar bestu
þakkir.
Páll og Páll áfram í
Grindavík
eir Páll Kristins-
son og Páll Axel
Vilbergsson verða
áfram í herbúðum Grind-
víkinga á næstu Ieiktíð, en
nokkrar vangaveltur höfðu
spunnist upp um framtíð
þeirra.
Önnur leikmannamál
munu skýrast á næstunni.
Ungur og efnilegur til
Keflavíkur
igurður Gunnar
Þorsteinsson og
körfuknattleiksdeild
Keflavíkur skrifuðu undir
tveggja ára samning fyrir
helgi.
Sigurður er 18 ára ísfirð-
ingur og á að baki 14 ung-
lingalandsleiki og hefur
spilað með meistaraflokki
KFÍ síðan tímabilið 2003-
2004. Hann er 203 cm mið-
herji og 111 kg og mun
stunda nám samhliða því að
æfa og spila með Keflavík.
Stjórn Keflavíkur fagnar
samningnum og telur að
það sé mikil fengur i að fá
Sigurð í liðið enda á ferð-
inni einn efnilegasti leik-
maður landsins.
Jóhann skoraði í
ósigri GAIS
FK Gautaborg, lið
Hjálmars Jónssonar,
sigraði lið Jóhanns B.
Guðmundssonar, GAIS í
nágrannaslag í sænsku
úrvaldeildinni í síðustu
viku. Lokatölur voru 2-
1. Hjálmar lék ekki með
Gautaborg sökum meiðsla
en Jóhann B. Guðmunds-
son var í byrjunarliði
GAIS og skoraði eina
mark Iiðsins á 52. mínútu
leiksins.
Tæplega 30 þúsund manns
voru á leiknum en liðin
hafa ekki mæst í úrvals-
deild síðan 2006. Jóhanni
var skipt út af á 78. mínútu
leiksins og náðu GAIS ekki
að nýta tímann til þess að
jafna metin. GAIS er nú í 6.
sæti deildarinnar með 8 stig
eftir 6 leiki.
Tveir sigrar í
æfingaleikjum
rindvíkingar
unnu tvo sigra
á grannaliðum
sínum fyrir skemmstu.
Um var að ræða æfingaleiki
í knattspyrnu.
Fyrir helgina unnu þeir
öruggan sigur á Njarðvík,
4-1 Þar sem Jóhann
Þórhallson skoraði m.a. 2
mörk.
Eftir helgi bættu þeir um
betur og lögðu Réyni, 6-0,
þar sem Óskar Hauksson
skoraði 2 mörk.
FH deildarbikarmeistari
.>
Islandsmeistarar FH urðu deildarmeistarar í knattspyrnu er
þeir lögðu Keflavík að velli 3-2 á Stjörnuvelli í Garðabæ í
síðustu viku.
FH hóf leikinn af krafti og var 3-0 yfir þegar blásið var til hálfleiks.
Keflvíkingar komu grimmir til síðari hálfleiks og minnkuðu mun-
inn í 3-2 en lengra komust þeir ekki. Hvassvirði og rigning settu
mark sitt á leikinn en FH spilaði með vindi í upphafi leiks en Kefla-
vík með vindi í síðari hálfleik.
Sigurvin Ólafsson slapp í gegn á 7. mínútu leiksins og skoraði fram
hjá Ómari í markinu. Á 39. mínútu leiksins var það varnarmaðurinn
Freyr Bjarnason sem kom FH í 2-0 með skallamarki og Tryggi Guð-
mundsson gerði þriðja mark FH á 45. mínútu.
1 síðari hálfleik minnkaði Símun Samuelsen muninn í 3-1 á 55. mín-
útu er hann vippaði boltanum yfir Róbert Óskarsson í marki FH.
Hólmar Örn Rúnarsson gerði annað mark Keflavíkur á 72. mínútu
en þar við sat og FH hafði betur 3-2 og eru því deildarmeistarar.
1100 sæti á Keflavíkurvöll
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORT.IÐ DAGLEGA!