Víkurfréttir - 29.06.2006, Qupperneq 2
Smábátahöfnin í Gróf:
Sægreifinn sökk
Mönnum tókst að
koma Sægreifanum,
litlum plastbát, á
land í Grófinni eftir að hann
sökk í höfnina um síðustu
helgi. Sægreifinn var sjósettur
þann 15. júní og sökk um helg-
ina af ókunnuin ástæðum.
Kafari vann við að lyfta bátnum
upp af hafnarbotninum og til
starfans notaðist hann við belgi
sem hann dældi lofti í og upp
mjakaðist báturinn hægt og ró-
lega. Frá bryggjunni var bátur-
inn svo dreginn að dráttarbraut-
inni.
Erfiðlega gekk að koma bátnum,
sem var fullur af sjó, í kerruna
en hópur vegfarenda kom eig-
andanum, Kristjáni Júlíussyni,
og kafaranum til aðstoðar. Að
lokum tókst að koma Sægreif-
anum á land en talið er að sjór
hafi komist inn um loku í bát-
unum við utanborðsmótorinn í
skuti bátsins.
Ekki er vitað hvernig sjórinn
komst í bátinn en líklegt þykir
að einhverjir hafi farið urn helg-
ina í leyfisleysi um borð í bátinn
og verið helst til of margir svo
báturinn fór að taka inn á sig
sjó.
Eigandinn Kristján Júlíusson
hafði nýverið keypt bátinn og
hugðist selja hann strax aftur en
Kristján hafði m.a. keypt nýjan
utanborðsmótor í bátinn sem
nú er ónýtur.
— — — — — — —
i Bláa Línan fer vel af stað
Reykjanesbær og Aðal-
bílar hafa hafið form-
lega samvinnu um
rekstur áætunarferða á milli
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
og Bláa Lónsins, en 3ja mán-
aða reynslusamningur þar að
lútandi var undirritaður í vik-
unni. Bílarnir koma einnig
við innan Reykjanesbæjar og
fara til Grindavíkur, en ferðin
kostar 500 kr.
Samningurinn, sem er hægt að
framlengja í 3 mánuði í viðbót,
er til reynslu og er tilgangur-
inn að meta þörfina á slíkum
ferðum og rekstrargrundvöll
fyrir þeim. Steinþór Jónsson,
bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ,
sagði í samtali við Víkurfréttir
að áhugi á ferðunum hafi verið
með ólíkindum og jafnvel hafi
þurft að bæta við bílum til að
anna eftirspurn. „Það er aug-
ljóst að það hefur verið vöntun
á þessari þjónustu. Þessi hug-
mynd hefur verið lengi að
gerjast hjá sveitarfélögum og
ferðaþjónustuaðilum á svæð-
inu en nú er hún loks komin í
framkvæmd og við getum þá
séð fyrir alvöru livaða tækifæri
leynast í þessu fyrirkomulagi.”
Steinþór leitaði fyrir hönd
Reykjanesbæjar til aðila hér
á svæðinu og buðu Aðalbílar
hagstæðasta tilboðið. Með
þessu er verið að stórbæta sam-
göngunet milli ferðaþjónustu-
staða á Reykjanesi sem hefur
ekki verið nægilega yfirgrips-
mikið. „Það hefur lengi verið
vandamál að komast á milli
staða, til dæmis úr Bláa Lón-
inu og í hvalaskoðun. Þetta
gæti verið upphafið á mikilli
bragarbót í þessum efnum og
þéttingu samgöngunetsins sem
mun ekki síður koma sér vel
fyrir íbúa Suðurnesja. Þeim
stendur auðvitað líka til boða
að nota þjónustuna, til dæmis
til að komast í Bláa Lónið. Þá
er jafnvel möguleiki á því að
bæjarbúar geti hringt í upplýs-
ingasíma Aðalbíla, 421 1515,
og fengið bíl til að sækja sig
heirn að dyrum. Þetta er ann-
ars aukin þjónusta fyrir alla og
það verður spennandi að sjá
hvernig Bláa Línan gengur og
hvort þetta sé það sem koma
skal,” sagði Steinþór að lokum.
MUNDI
Gott á meðan þetta var ekki
þjóðarskútan sem sökkl
Starfsmennirnir sem lögðu niður vinnu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um síðustu helgi fá um 22 þúsund
króna hækkun samkvæmt samkomulagi SA og ASÍ. Starfsmenn IGS telja launahækkunina ekki nægjan-
lega og búist er við öðru setuverkfalli um næstu helgi verði ekki komin lausn á málinu fyrir þann tíma.
Sagnir hafa verið um að erlendum starfsmönnum hafi verið hótað tækju þeir þátt í verkfallinu en þaö hefur
ekki verið staðfest.
Opna glæsilega
billjardstofu í
Reykjanesbæ
Nýjung er að bætast í
flóru afþreyingar í
Reykjanesbæ þegar ný
billjardstofa, Pool@Bar, opnar
við Framnesveg á morgun,
föstudag.
Eigendur staðarins, Jens Bein-
ing Jia og Arnar Steinn Svein-
björnsson, hafa unnið hörðum
höndum undanfarna mánuði að
því að standsetja þennan glæsi-
lega stað og hefur í engu verið
til sparað.
„Við vorum ákveðnir í því að
hafa staðinn eins flottan og
við gátum. Við erum með sex
keppnisborð sem við keyptum
frá Þýskalandi, flatskjái þar sem
má fylgjast með fótboltanum,
þægilega sófa og margt fleira,”
sagði Jens í samtali við Víkur-
fréttir.
Á staðnum er einnig hægt að
spila skák og pílu, en þeir félagar
leggja áherslu á létt og þægilegt
andrúmsloft, laust við sígarett-
ureyk, þar sem fólk getur komið
saman og á góða stund.
„Svo verðum við með „Hot
Wings” og samlokur og þess
háttar á barnum þannig að við
verðum með allt til alls.”
Þeir félagar eru með ýmsar upp-
ákornur á döfinni en í haust
verður hrundið af stað fyrir-
tækjakeppni í pool svo eitthvað
sé nefnt.
Staðsetningin er ansi sérstök, en
Pool@Bar er í portinu fyrir aftan
Hótel Keflavík. Þar er búið að
koma upp sólpalli, en gagngerar
endurbætur hafa verið gerðar á
húsnæðinu sem áður hýsti bíla-
verkstæði og fiskvinnslu. Þeir
Jens og Arnar eru þess þó full-
vissir að staðurinn muni vekja
lukku. „Þetta verður afþreying-
arstaður, en ekki skemmtistaður
þar sem fólk getur komið saman
alla daga vikunnar og tekið í
leik, fengið sér einn kaldan og
spjallað saman. Svo verðum við
líka með þjónustu fyrir fyrir-
tæki og hópa sem geta fengið
salinn leigðan fyrir fundi eða
samkomur.”
Formleg opnun verður, eins og
fyrr segir, á morgun, en eftir kl.
22 verður Pool@Bar opnaður
fyrir almenna gesti og verður
ýmislegt í boði, t.d. tilboð á
barnum. Aldurstakmark eftir kl.
20 að kvöldi verður 20 ár og eru
allir velkomnir á þennan nýjasta
samkomustað í Reykjanesbæ.
Jens og Arnar með kjuða í hönd.
2 IVÍKURFRÉTTIR i 26. TÖIUBLAÐ 27. ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!