Víkurfréttir - 29.06.2006, Qupperneq 4
Verslun og þjónusta:
Festa, lífeyrissjóður:
Með höfuðstöðvar í Reykjanesbæ
Astofnfundi sameinaðs
sjóðs Lífeyrissjóðs
Suðurlands og Lífeyris-
sjóðs Vesturlands, sem haldinn
var 19. júní, var samþykkt að
sjóðurinn hlyti nafnið Festa líf-
þegarþér hentar
10-11 er framsækíð fyrirtækl ( örum
vexti. 10-11 erfremstaþægindaverslun
landsins með 21 verslun. Velgengni
sína þakkar fyrirtaekið fyrst og fremst
starfsfólki sínu. Því er ætíð lögð áhersla
á að gott fólk veljist til starfa.
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
og við Hafnargötu í Keflavík.
10-11 óskar eftir að ráða fólk til starfa í
verslunum okkar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
og við Hafnargötu í Keflavík.
Um erað ræða bæði fullt starf og hlutastarf.
Leitað er eftir áreiðanlegum, duglegum og
samviskusömum einstaklingum. Æskilegur
aldur umsækjenda er 20 ára og eldri.
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila á
skrifstofu 10-11, Lyngási 17, 210Garðabæ
eða á www.10-1 l.is.
eyrissjóður. Sjóðurinn verður
meðal tíu stærstu sjóða lands-
ins. Ársfundir beggja sjóða
höfðu áður samþykkt samning
um samruna þeirra.
Samrunasamningur sjóðanna
kveður á um að eignir og skuld-
bindingar þeirra renni saraan
frá og með 1. janúar 2006. Við
sameininguna munu réttindi
sjóðfélaga Lífeyrissjóðs Vestur-
lands verða aukin um 4,4% til
að jafna stöðu sjóðanna. Heild-
areignir sameinaðs sjóðs eru
áætlaðar um 43 milljarðar og
eru greiðandi sjóðafélagar tæp-
lega níu þúsund.
Aðalskrifstofa sjóðsins verður
í Reykjanesbæ, en starfstöðvar
á Akranesi og Selfossi munu
starfa áfram að þjónustu við
sjóðfélaga og launagreiðendur.
I stjórn Festu lífeyrissjóðs voru
kosnir: Kristján Gunnarsson, for-
maður, Bergþór Guðmundsson,
varaformaður, Ragna Larsen,
Bergþór Baldvinsson, Þórarinn
Helgason og Sigrún Helga Ein-
arsdóttir.
Gylfi Jónasson, sem verið hefur
framkvæmdastjóri Lífeyris-
sjóðs Vesturlands og síðar Líf-
eyrissjóðs Suðurlands, verður
framkvæmdastjóri Festu lífeyr-
issjóðs.
AAeistaraflokkur Grindavíkur
safnar fyrir dreng með hvítblæði
Leikmenn og aðstandendur meistaraflokks Grindavíkur
í knattspyrnu karla stóðu fyrir söfnun í tengslum við
heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu, til styrktar hinum
unga félaga sínum Frank Brynjarssyni, sem á næstunni fer til
Svíþjóðar í aðgerð eftir að hafa greinst með hvítblæði. Söfnunin
skilaði tæplega hundrað þúsund krónum, sem vonandi eiga eftir
að nýtast Frank og fjölskyldu hans vel á næstunni. Leikmenn og
aðstandendur Grindavíkurliðsins senda Frank og fjölskyldu alla
sína hlýjustu strauma og vona innilega að ferðin til Svíþjóðar
gangi sem best, segir í tilkynningu frá meistaraflokki.
Atvinna í boði
Vogar
• Póstberar óskast til framtíðarstarfa.
Um er að ræða 70% stöðu, föst mánaðarlaun.
• Starfsmaður óskast til almennra afgreiðslustarfa
Vaktavinna frá kl. 17:00 - 22:00.
• Starfsmenn óskast til afgreiðslustarfa og á grill.
Vaktavinna, vinnutími samkomulag.
Upplýsingar gefur Kristín í síma 892 7755.
Bláa lónið opnar nýja verslun
Ný Blue Lagoon verslun
opnaði Iaugardaginn
17. júní að Laugavegi
15. Bláa Lónið leggur mikla
áherslu á hönnun umhverfis
og mannvirkja og var hönnun
verslunarinnar í höndurn
ítalska hönnunarfyrirtækis-
ins Design Group Italia www.
designgroupitaIia.com.
Sigurður Þorsteinsson, iðnhönn-
uður og einn eigenda Design
Group, hafði yfirumsjón með
hönnun verslunarinnar og var
áhersla lögð á að skapa tengingu
við einstakt umhverfi og mann-
virki Bláa Lónsins.
„Bláa Lónið er dæmi um ein-
stakt samspil orku, náttúru
og vísinda. I versluninni upp-
lifa gestir þessa sömu þætti en
hraun, stál og gler er áberandi
í versluninni,“ segir Sigurður.
Bláa Lónið leggur mikinn
metnað í hönnnun og eru versl-
anirnar engin undantekning.“
Blue Lagoon húðvörurnar eru
fáanlegar í hinni nýju verslun.
Hátt í 30 vörur sem allar inni-
halda virk efni Bláa lónsins:
steinefni, kísil og þörunga eru
fáanlegar. Vörunum er skipt í
þrjá meginflokka þ.e. vörur sem
hreinsa, veita orku og næra húð-
ina.
VÍKURFRÉTTIR I 26. TÖLUBLAÐ i 27. ÁRCANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU • www.vf.is • IESTU NÝJUSTU FRÉTTIR ÐAGLEGA!