Fréttablaðið - 09.08.2017, Síða 14

Fréttablaðið - 09.08.2017, Síða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365. is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Herbergi Nóels, eldri sonar hjónanna. Fallegt IKEA-rúmið fann Elín á bland.is. Svefnherbergi hjónanna er mjög einfalt og án alls óþarfa. Fallega brjóstaplöntupottinn selur húna á www.lauuf. Á skenknum í forstofunni er samansafn hluta sem hjónin halda upp á. Föndur- og teikniaðstaða bræðranna er í stofuhorninu. Verkið á veggnum er eftir Þránd Þórarinsson. Gluggarnir á Kvisthaganum eru fallegir og hleypa mikilli birtu inn. Rifblöðkuna keypti Elín stuttu áður en þau fluttu inn. „Til að skapa fallegt og hlýlegt heimili þarf að muna að halda í per- sónulega stílinn og hafa þá hluti uppi við sem manni þykir vænt um og veita manni ánægju,“ segir Elín Bríta Sigvaldadóttir vöruhönnuður. MYNDIR/EYÞÓR Vöruhönnuðurinn Elín Bríta Sigvaldadóttir heldur mikið upp á tekk húsgögn og ber heimili þeirra hjóna, sem er í vesturbæ Reykjavíkur, skýr merki þess. „Mér finnst gaman að blanda saman eldri húsgögnum við klass- íska hönnunarvöru og auðvitað dass af IKEA. Stíll heimilisins er frekar afslappaður og hlýlegur. Ég vil hafa frekar bjart í kringum mig og þykir óþægilegt þegar það er of mikið dót út um allt, allir hlutir eiga að eiga sinn stað á heimilinu að mínu mati.“ Persónulegur stíll skiptir miklu máli þegar hönnun heimilisins er höfð í huga. „Til að skapa fallegt og hlýlegt heimili þarf að muna að halda í persónulega stílinn og hafa þá hluti uppi við sem manni þykir vænt um og veita manni ánægju, sama hvernig þeir líta út.“ Sjálf heldur hún mest upp á flest verkin sem eru á veggjum heimilisins. „Við reynum að kaupa mikið af vinum og kunningjum sem eru myndlistarmenn. Einnig er ég mjög hrifin af stofuborðinu okkar sem ég keypti á flóamarkaði í Brooklyn og við fluttum með okkur heim. Nýverið keyptum við okkur líka nýtt sjónvarp, Samsung Serif, sem ég elska og er klárlega fallegasta sjónvarp sem ég hef séð!“ Frekari breytingar Hjónin eiga tvo drengi, þriggja ára og eins mánaðar, en einungis tvö svefnherbergi eru í íbúðinni. „Á næstu 2-3 árum er því planið að breyta annaðhvort núverandi eld- húsi í annað svefnherbergi og færa þá eldhúsið í sjónvarpsstofuna eða þá að flytja, þ.e. ef við finnum réttu eignina. Einnig ætlum við að breyta svefnherberginu okkar á næstu vikum, klára að mála, setja upp hillur og snaga og fá okkur stærra rúm.“ Elín Bríta útskrifaðist með BA-gráðu í vöruhönnun frá Lista- háskóla Íslands árið 2013. Eftir námið hefur hún að mestu starfað sjálfstætt og m.a. unnið verkefni með Studiobility og verkefni tengd innanhússhönnun. „Síðastliðið ár höfum við fjölskyldan verið búsett í New York þar sem ég starfaði sem nemi hjá skartgripamerkinu Metalepsis Projects. Við fluttum svo aftur heim til Íslands í mars og í kjölfarið opnaði ég vefverslunina LAUUF (www.lauuf.com) sem selur valdar hönnunarvörur frá Bandaríkjunum.“. Starri Freyr Jónsson starri@365.is com. Elín Bríta útskrif- aðist með BA- gráðu í vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2013. Eftir námið hefur hún að mestu starfað sjálfstætt og m.a. unnið verkefni með Studiobility og verkefni tengd innanhússhönn- un. NÝ SENDING AF BUXUM 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . ág ú S t 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R 0 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 1 F B 0 3 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 1 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 7 0 -2 6 1 0 1 D 7 0 -2 4 D 4 1 D 7 0 -2 3 9 8 1 D 7 0 -2 2 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 3 2 s _ 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.