Fréttablaðið - 25.09.2017, Qupperneq 9
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Straumhvörf
Audi A3 e-tron sameinar tvo heima
50 kílómetra drægni* á raforkunni einni saman dugar í flestar ferðir
en með skilvirkri samþættingu rafdrifs og sparneytinnar bensínvélar
er samanlögð heildardrægni Audi A3 e-tron allt að 940 km.
Hann var valinn besti rafbíll ársins 2015 af What Car? og er með
fimm stjörnur í árekstrar- og öryggisprófunum hjá Euro NCAP.
Nú á frábæru verði frá
4.190.000 kr.
*S
kv
. N
ED
C
st
að
lin
um
Í dag
Guðmundur
Andri Thorsson
Umfram allt felst vandi Sjálf-
stæðismanna í rótgrónum
hugsunarhætti þess sem
hugsar út frá leyndinni,
tekur sér stöðu þar og telur
leynd alltaf vera hinn nátt-
úrulega og eðlilega kostAuðvitað mátti Sigríður Andersen sýna Bjarna Benediktssyni að faðir hans
hefði skrifað upp á það að barna-
níðingur fengi uppreist æru; held
að við séum öll sammála umboðs-
manni alþingis um það. Hún mátti
líka sýna Bergi Þór Ingólfssyni nöfn
þeirra sem mæltu með uppreist
æru fyrir árásarmann dóttur hans.
Hún mátti meira að segja sýna
fjölmiðlamönnum þetta – raunar
hverjum sem eftir því leitaði. Það
blasir við að slíkar uppáskriftir eru
ekki og eiga ekki að vera leyndar-
mál.
Er þetta ekki enn að renna upp
fyrir Sjálfstæðismönnum?
Geheimrat Níelsson
Frá því að Leyndarmálin upp-
hófust og sprengdu ríkisstjórnina
á endanum hefur aðeins einn tals-
maður Sjálfstæðisflokksins talað
eins og maður um þau – talað eins
og hann skilji um hvað þetta snýst
allt saman. Það er Páll Magnússon.
Hann er ekki lögfræðingur heldur
stjórnmálafræðingur að mennt
og hefur alið mestallan sinn aldur
í fjölmiðlum. Hin öll tala eins og
kerfisvélmenni. Framganga þeirra
hefur verið með nokkrum ólík-
indum, alveg frá því að þau gengu
öll af fundi til að þurfa ekki að sjá
gögnin, sem mann grunar að þau
hafi vitað hvað höfðu að geyma.
Með lagaþvargi og vífilengjum
hefur þessu löglærða fólki ekki
bara tekist að búa til leyndarmál
úr gögnum sem ættu að liggja fyrir
heldur af sérstakri ráðsnilli tengt
málstað barnaníðinga beinlínis
við Sjálfstæðisflokkinn, mjög að
ósekju að sjálfsögðu.
Mistökin fólust meðal annars í
því að treysta Brynjari Níelssyni
fyrir umsýslu málsins; gera hann
að einhvers konar leyndarráði
flokksins, Geheimrat Níelsson.
Brynjar kann að vera ýmsum
kostum búinn en hann hefur sem
sé um árabil starfað sem verjandi
glæpamanna. Þeir verða að sjálf-
sögðu að njóta þeirra réttinda að
fá hæfa menn til að verja sig, en
það hvarflar samt að manni að
enn eimi eftir af hugsunarhætti
verjandans hjá Brynjari í störfum
hans; fyrsta viðbragðið sé jafnan
að gæta að hagsmunum glæpa-
mannsins eða þess sem telur sig
hafa eitthvað að fela en síður hirt
um hagsmuni þeirra sem orðið
hafa fyrir barðinu á glæpunum,
eða hreinlega almennings.
Umfram allt felst vandi Sjálf-
stæðismanna í rótgrónum
hugsunarhætti þess sem hugsar
út frá leyndinni, tekur sér stöðu
þar og telur leynd alltaf vera hinn
náttúrulega og eðlilega kost, lítur
á vitneskju sem takmarkaða auð-
lind handa útvöldum; maður starfi
út frá þeirri meginforsendu að
einungis sé upplýst um það sem
úrskurður liggur fyrir um að maður
neyðist til að upplýsa; maður segi
aðeins frá tilneyddur og alls ekki
fleiru en því sem krafist er hverju
sinni, hitt hafi maður fyrir sig og
sína.
Í heilbrigðri stjórnsýslu myndi
þessu vera akkúrat öfugt farið: að
maður taki sér stöðu í upplýsing-
unni, segi frá öllu sem spurt sé um
en leyni einungis einhverju þegar
ástæða sé til.
Stjórnfestan
Þessi uppreistaræru-þvæla öll
er afbragðs gott dæmi um fyrir-
komulag sem gleymst hefur inni
í kerfinu og er þarna eins og hver
annar þornaður ostur í ísskápnum
með bláum myglublettum, í stað
þess að vera kominn á öskuhaug-
inn með hólmgöngum, fimmtar-
dómi og lýriti. Þegar maður hefur
afplánað dóm sinn þá hefur
viðkomandi greitt skuld sína við
samfélagið og endurheimtir ýmis
réttindi sín – en hann hefur að
sjálfsögðu ekki náð að friðþægja
fyrir brot sín gagnvart þeim sem
þau þoldu eða náð að hreinsa nafn
sitt í augum samborgara, hvað sem
vitnisburði „valinkunnra manna“
kann að líða. Þetta eru leifar af
þeim hugsunarhætti að tilteknir
góðborgarar hafi svo gott nafn að
þeir geti veitt afnot af því góða
nafni næstum hvaða labbakútum
sem er, svona eins og leigubílstjóri
lánar bílinn sinn.
Leyndarmálin núna gefa okkur
óvænta innsýn í hulið og gamalt
valdakerfi, fullt af köngulóarvef og
skápaskúmi, þar sem leyndarráðin
standa útundir vegg og talast við í
hálfum hljóðum um ný og gömul
Leyndarmál.
Og við tengjum þetta valdakerfi
einkum við Sjálfstæðisflokkinn,
flokk reglu, já flokk stjórn-
festunnar, sem ekkert má síast út
um. Þar er gott fólk upp til hópa,
alls konar fólk, almenningur sem
kýs Sjálfstæðisflokkinn af alls
konar ástæðum, sumt af því að
það heldur að völdum flokksins
fylgi nauðsynleg kyrrð til að byggja
upp heilbrigt efnahagslíf og annað
vegna þess að það er eiginlega að
kjósa sunnudagsútgáfu af lífi sínu
þar sem sólin skín og allt blómstr-
ar í nýslegnum garðinum. Alls
konar ástæður: munum að milli
tuttugu og þrjátíu prósent þeirra
sem á vegi okkar verða í dagsins
önn eru eða hafa verið kjósendur
Sjálfstæðisflokksins, frændur og
frænkur, vinir og kunningjar, og
fráleitt að tengja það við glæpi og
Hrun og alls konar viðurstyggð.
En Sjálfstæðisflokkurinn er ekki
bara draumurinn um kyrrð og
eilífan sunnudag: hann er flokkur
kerfisins, flokkur stjórnsýslunnar –
já stjórnfestu – ráðstjórnarflokkur-
inn, flokkur þeirra sem læra lögin
og túlka þau; eiga þau; það er ekki
tilviljun að úr þeim ranni hefur
verið rammasta andstaðan við
umbætur á stjórnarskránni: þeir
vilja hafa hana óskýrt plagg þar
sem hægt er að raða lagakrókum
sem útúrsnúningunum er svo
vafið upp á af fimi sem tekið hefur
aldir að þjálfa upp. Og þjóðfélagið
spólar á meðan í stjórnfestu.
Leyndarmálin
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 9M Á n u d a g u R 2 5 . S e p T e M B e R 2 0 1 7
2
5
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
3
-6
1
8
0
1
D
D
3
-6
0
4
4
1
D
D
3
-5
F
0
8
1
D
D
3
-5
D
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K