Fréttablaðið - 25.09.2017, Page 13
Kynningarblað
Heimili
M
Á
n
U
D
a
g
U
r
2
5.
s
ep
te
m
be
r
20
17
Fallegt einbýli með sundlaug.
Draumaeignin á Spáni
Fasteignaþjónustan spánarheimili aðstoðar Íslendinga við fasteignakaup á
spáni og tenerife. bjarni sigurðsson segir fasteignaverð ytra afar hagstætt. ➛2
Marga dreymir um sumar-hús í sólinni, sérstaklega í ljósi þess að flugsam-
göngur eru orðnar mjög góðar.
Til Alicanteborgar er flogið allt að
níu sinnum í viku og allt að fjórum
sinnum í viku til Tenerife. Flugið
er einnig að verða ódýrara og fólk
sem á eignir á Spáni skellir sér
jafnvel yfir langa helgi,“ segir Bjarni
Sigurðsson, framkvæmdastjóri fast-
eignaþjónustunnar Spánarheimila.
Spánarheimili aðstoða Íslend-
inga sem hafa hug á að kaupa
fasteign á Spáni, á Tenerife og á
Costa Blanca-svæðinu. Bjarni segir
fasteignaverð ytra afar hagstætt.
„Fasteignaverð lækkaði um 50
til 60 prósent í hruninu á Spáni
og hefur ekki hækkað aftur nema
um fimm til sjö prósent á síðustu
tveimur árum. Fjögurra herbergja
íbúð í nýju raðhúsi getur kostað
á bilinu 18 til 22 milljónir. Það er
mun lægra verð en borga þarf fyrir
kjallaraíbúð í Reykjavík til dæmis,“
segir Bjarni.
„Byggingarstíllinn í hverfunum
hefur einnig breyst síðustu ár og
nú er verið að byggja í norðurevr-
ópskum eða skandinavískum stíl,
hvítar stílhreinar byggingar sem
falla vel í kramið hjá Íslendingum,
með einangrun í veggjum, hita í
gólfi og tvöföldu gleri í gluggum.
Hjá okkur starfar hópur Íslend-
inga í samvinnu við spænskan lög-
fræðing og við rekum skrifstofur
bæði á Íslandi og á Spáni. Kaup-
ferlið getur verið Íslendingum
framandi en við leiðum fólk í
gegnum ferlið frá A til Ö.“
Ævintýrið hefst með ókeypis
skoðunarferð
„Við bjóðum upp á sérsniðnar
og persónulegar 4-6 daga skoð-
unarferðir fyrir áhugasama
viðskiptavini og erum því ekki
að hópa saman fólki sem er með
ólíkar óskir. Skoðunarferðin kostar
59.900 á mann miðað við flug og
gistingu og er að fullu endurgreidd
fyrir allt að tvo ef af kaupum
verður. Starfsmaður okkar tekur á
móti fólki á flugvellinum og næstu
fjóra til sex daga er farið í skoð-
unarferðir. Við sýnum allt svæðið
frá A til Ö, allt nærumhverfi,
golfsvæðin, strandsvæðin allt eftir
því hverju fólk er að leita eftir. Þá
eru skoðaðar eignir sem falla að
óskum og þörfum hvers og eins.
Fólk fær beint í æð hvað er í boði
og ef draumaeignin finnst er næsta
skref að festa sér hana. Við fylgjum
fólki í viðtal í banka til að skoða
mögulega fjármögnun, hjálpum
FYRIR OKKUR
Sérvalið fyrir íslenskar aðstæður.
Kynntu þér úrvalið á gulimidinn.is
2
5
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
3
-6
6
7
0
1
D
D
3
-6
5
3
4
1
D
D
3
-6
3
F
8
1
D
D
3
-6
2
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K