Fréttablaðið - 25.09.2017, Síða 38

Fréttablaðið - 25.09.2017, Síða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði DORMA KYNNIR Eftir áralanga þróun og prófanir höfum við náð markmiði okkar. Við höfum búið til eina þróuðustu dýnu heims Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri samsetningu 2500 keilulaga gorma og móttækilegs minnissvamps. Fáðu betri svefn – sama hvert svefnmynstur þitt er. 90 x 200 cm 74.990 kr. 120 x 200 cm 89.990 kr. 140 x 200 cm 99.900 kr. 160 x 200 cm 114.990 kr. 180 x 200 cm 129.900 kr. Simba dýnurnar eru fáan­ legar í eftirtöldum stærðum Komdu og kynntu þér Simba í næstu Dormaverslun eða á www.simba.is Í raun er ég búinn að vera að yrkja þessa bók í 40 ár. Ég er af seinustu kynslóð manna og kvenna sem ferðuðust um Ísland í margar aldir, úr ver-stöð í verstöð, til að vinna í fiski. Í dag er þessi heimur horfinn og margt fólk veit ekki að þetta hafi verið til. Og kannski er ég að reisa einhvers konar minnisvarða um þennan heim – um fólkið sem lifði þennan heim,“ segir Bubbi Morthens spurður út í ljóðabók sína Hreistur sem fjallar að miklu leyti um ver- búðalífið. „Þessi ljóðabók inniheldur brot frá þessum tíma sem ég lifði sem farandverkamaður og sjómaður sem ferðaðist úr þorpi í þorp.“ Bubbi byrjaði ungur að vinna í fiski sem hafði mikil áhrif á hann. „Ég er líka að segja ákveðna þroska- sögu. Ég er ekki nema 16 ára þegar ég er kominn vestur á firði, og er farinn að búa á verbúð innan um fullorðið fólk. Og þegar maður er 16 ára þá er maður bara lítill strákur, maður saknar mömmu og allt það. En maður er kominn inn í heim sem er mjög hrár og harður. Og ég lifi þessu lífi þangað til ég geri Ísbjarnarblús og gerist atvinnumaður í tónlist.“ Bubbi kveðst vera óendanlega þakklátur fyrir þessa upplifun þó að hún hafi verið krefjandi. „Ég væri ekki þar sem ég er í dag ef ég hefði ekki upplifað þetta. En ég meina, 16 ára krakkar eiga ekki að þurfa að horfa upp á nauðgun, 16 ára krakkar eiga ekki að þurfa að slást á böllum dauðadrukknir og allt þetta. En þetta var partur af þessum heimi. Þegar maður er kominn upp á verbúð, þar sem 56 manneskjur eru saman komnar þá ægir öllu saman. Svo um helgar, ef það var ekki unnið, þá fór helmingurinn á glórulaust fyllerí. Þetta var bara brjálæði. En engu að síður var þetta dásamlegt og fallegt.“ Ungt fólk tengir við ljóðformið Bubbi segist hafa fengið góðar við- tökur við ljóðabókinni og fólk á öllum aldri hefur sýnt henni áhuga. „Ég var að spila á tónleikum í fyrra- dag og las upp úr bókinni á milli laga. Og fólk á aldrinum 20-30 ára var í meirihluta þeirra sem keyptu bók- ina, það finnst mér alveg geggjað.“ Spurður út í hvernig ljóðaupp- lesturinn og tónlistin fari saman á tónleikum segir Bubbi: „Þetta er bara eins og ástfangin maður og kona um nótt.“ Bubbi verður var við að ungt fólk eigi auðvelt við að tengja við ljóð- formið. „Ég held að ljóð eigi greiðan aðgang að unga fólkinu í dag, vegna þess að það þekkir þetta knappa form sem einkennir ljóð. Þetta er eins og Twitter, Snapchat og Insta- gram, þetta eru allt gríðarlega knöpp form. Þú þarft í raun að saman- þjappa löngu máli í nokkur orð. Og þetta þekkja þau vel.“ Bubbi er sjálfur virkur á sam- félagsmiðlum og hefur öðlast nýjan aðdáendahóp í gegnum það form. „Margir af mínum fylgjendum á samfélagsmiðlum eru krakkar. Um daginn hitti ég ungt par sem var að kaupa af mér ljóðabókina. Og þau sögðu mér að þau hefðu byrjað að fylgja mér á Twitter og Snapchat og svo síðar uppgötvað að ég væri tón- listarmaður, það er alveg dásamlegt,“ segir hann og hlær. gudnyhronn@365.is Í bókinni Hreistur fjallar Bubbi meðal annars um lífið og tilveruna í verbúðum . FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Bubbi Morthens gaf nýverið út bókina Hreistur sem inni- heldur ljóð um tímann þegar hann starfaði í verðbúðum og umhverfið sem mótaði hann. Verbúðalífið var bæði brjálað & dásamlegt 2 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m Á N U D A G U r22 l í f i ð ∙ f r É t t A b l A ð i ð 2 5 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D D 3 -5 C 9 0 1 D D 3 -5 B 5 4 1 D D 3 -5 A 1 8 1 D D 3 -5 8 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 2 4 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.