Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Síða 10
10 Helgarblað 29. september 2017fréttir andi bílaumboði. Benda má á að hægt er að fá aðgang að þjón- ustusögu viðkomandi bíla hjá umboðinu, þar sem upplýsingar um mælaskiptin koma fram,“ segir Hjálmar enn fremur. KK9 ehf. vissi um raunverulega aksturstölu Hann segir að þegar bílar séu seldir frá ALP sé það gert á tvo máta. „Við seljum annaðhvort beint til einkaaðila eða endur- söluaðila. Í öllum tilvikum er þess gætt af hálfu AVIS að upp- lýsingar um mælaskipti séu skráð í akstursögu viðkomandi bíla og skráðar á afsal ásamt upplýsing- um um heildaraksturtölu,“ seg- ir Hjálmar og staðfestir að þetta verklag hafi átt við um þessa bíla sem hér um ræðir. Kaupandi hafi verið upplýstur um sögu bílsins og söluverðið hafi eðlilega mið- ast við heildaraksturtöluna. Varðandi bifreiðina sem Guðmundur keypti þá upplýs- ir Hjálmar að í afsali til Stóru bílasölunnar hafi heildar- aksturstalan verið 124.000 kíló- metrar. Þá hafi fyrir tækið verið í samskiptum við fyrirtækið og fengið staðfest að þessi heildar- aksturstala hafi einnig kom- ið fram í afsali þegar bíllinn var seldur frá Stóru bílasölunni til KK9 ehf. Að endingu seg- ir Hjálmar: „ALP höndlar með mikinn fjölda bíla ár hvert og tekur ábyrgð sína alvarlega við endursölu bílaleigubíla. Því leggjum við mikla áherslu á að upplýsingar varðandi ástand bíla sem seldir eru frá fyrir tækinu séu ætíð réttar og kynntar kaupanda. Sú regla var í hávegum höfð við sölu þessara bíla frá ALP rétt eins og við sölu allra annarra bíla frá fyrirtækinu.“ Ætlar að endurgreiða bílana „Það er ekki ætlunin að hafa neitt af neinum. Það stendur ekki á mér að taka við bílunum aftur og endurgreiða þá,“ segir Þórodd- ur Stefánsson, eigandi KK9 ehf., í samtali við DV. Hann tekur fram að hann sé vissulega eigandi fyrir tækisins en að þar til nýlega hafi annar aðili séð um rekstur fyrirtækisins. Hann kannaðist við mál Guðmundar en kom af fjöllum hvað varðar hin málin. Þóroddur segir að fyrirtæki sitt sýsli með gríðarlega marga bíla á hverju ári og erfitt sé að vita sögu allra bílanna. „Ég frétti af þessu máli og bauð viðkomandi að skila bíln- um og fá hann endurgreiddan. Það var margítrekað að óvissa ríkti um raunverulegan akstur bílsins,“ segir Þóroddur og full- yrðir að viðkomandi bílasali hafi vitað af málinu. Hann staðfestir að Guðmundur hafi óskað eftir því að fjárfesting hans í bílnum verði endurgreidd en telur kröfuna ósanngjarna. „Þetta eru aðallega felgur og dekk sem ég á nóg af. Hann sagðist þá ætla með þetta í blöðin og ég sagði að þá myndi ég bara ræða við blaðamenn,“ segir Þóroddur. Bílasalarnir höfðu ekki hugmynd Bílarnir þrír sem KK9 ehf. seldi voru seldir á tveimur bílasölum. Í samtali við DV fullyrða báðir bílasalarnir að þeir hafi ekki haft hugmynd um að bílarnir hafi verið meira keyrðir en mælarn- ir gáfu til kynna. „Ég mun kalla Þórodd á minn fund ásamt lög- fræðingi í fyrramálið og fá það uppáskrifað,“ segir annar þeirra. Þriðji bíllinn var seldur beint til einstaklings af KK9. „Ég hitti ekki einu sinni eiganda bílsins. Kunningi minn benti mér á að þessir bílar væru til sölu. Ég fór og fékk að prófa hann og síð- an voru pappírarnir sendir til mín,“ segir núverandi eigandi bílsins. Hann hyggst setja bílinn í ástandsskoðun og síðan taka ákvörðun um hvort að hann óski eftir endurgreiðslu að hluta eða að fullu. n „Það er ekki ætl- unin að hafa neitt af neinum. Það stendur ekki á mér að taka við bílunum aftur og endur- greiða þá. Nissan Patrol GR Skipt var um mælaborð í tuttugu og þremur slíkum bifreiðum í eigu AVIS-bílaleigunnar. Þar með þurrkaðist akstur þeirra út og þegar bílarnir fóru í endursölu sátu einstaklingar uppi með köttinn í sekknum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.