Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Page 20
20 sport Helgarblað 29. september 2017
Lið ársins í Pepsi-deild karla
Þjálfari ársins
Ólafur Jóhannesson
(Valur)
Þjálfaraferill Ólafs
hefur verið langur
og farsæll en hann
hófst árið 1982
þegar hann stýrði
Einherja. Síðan þá
hefur Ólafur farið
víða, hann hefur
í þrígang þjálfað
Skallagrím og þá hefur
hann í tvígang stýrt FH og
Haukum. Hjá FH voru hans bestu ár en hann
þjálfaði liðið frá 2003 til 2007 og vann
fyrsta Íslandsmeistaratitil í sögu félagsins
árið 2004. Ólafur tók síðan við landsliðinu
árið 2007 og stýrði því þangað til undir lok
árs 2011. Ólafur var svo í tvö ár hjá Haukum
eftir það og tók svo við Val fyrir tímabilið
2015 og hefur unnið þrjá stóra titla á þremur
árum. Fyrstu tvö árin undir stjórn Ólafs varð
liðið bikarmeistari og í ár var komið að því
að vinna þann stóra.
Besti leikmaðurinn
og varnarmaðurinn
Eiður Aron
Sigurbjörnsson (Valur)
Varnarmaðurinn kom
heim í Pepsi-
deildina í upp-
hafi sumars
og hefur
gjörsam-
lega slegið
í gegn. Hann
er ein stærsta
ástæða þess að
Valur vann Pepsi-
deildina. Eiður hefur
gert alla í varnarlínu Vals
betri og hefur hann hjálpað markverðinum,
Antoni Ara Einarssyni, mikið. Hann stjórnar
leiknum vel, er ótrúlega öflugur í loftinu og
gerir sjaldan eða aldrei mistök. Tími hans í
atvinnumennsku var ekki dans á rósum en
hann kom ekki heim með hangandi haus,
hann steig upp og gerði besta lið landsins
enn betra.
Besti markvörðurinn
Anton Ari Einarsson
(Valur)
Ótrúlegar framfarir
á einu ári sem
Anton hefur
sýnt, aðeins einn
leikur í sumar
þar sem Anton
getur hafa
talist slakur.
Hann hefur sýnt
mikinn stöðugleika
og varið frábærlega á
ögurstundu fyrir Val. Anton er fæddur árið
1994 og er því mjög ungur þegar talað er um
markverði. Hann hefur líkamlegan styrk og
er afar öflugur í fótunum, sem hjálpar liði
hans mikið. Þá hefur hann bætt sig mikið
í teignum þegar fyrirgjafir og hornspyrnur
koma inn. Anton ætti að geta stigið skrefið í
atvinnumennsku á næstu árum.
Besti miðjumaðurinn
Haukur Páll
Sigurðsson
(Valur)
Haukur Páll
hefur stimplað
sig inn sem einn
öflugasti miðju-
maður deildarinn-
ar. Hann er leiðtogi
Vals og á mjög
stóran þátt í því að
liðið vann sinn fyrsta
Íslandsmeistara titil í
tíu ár. Haukur gerir allt til þess
að lið hans nái árangri, hann fórnar sér í
alla bolta. Harka hans innan vallar vill oft
skyggja á það hversu góður knattspyrnu-
maður hann er í raun og veru, það er því
meira í leik Hauks en bara harkan sem flest-
ir ræða um þegar leikur Hauks er ræddur.
Besti sóknarmaðurinn
Andri Rúnar Bjarnason
(Grindavík)
Slær hann
markametið
í efstu deild
karla?
Andri Rúnar
Bjarnason
hefur skorað
18 mörk þegar
einn leikur er
eftir, Andra vantar
því eitt mark til að jafna
metið, sem eru 19 mörk á einu tímabili, og
tvö mörk til þess að slá metið. Andri Rúnar
og félagar hans í Grindavík mæta Fjölni
á morgun, laugardag, í síðustu umferð
deildarinnar. Saga Andra er í raun mögnuð,
27 ára gamall er hann í fyrsta sinn að setja
mark sitt á efstu deild. Hann hafði áður
verið öflugur í neðri deildum, en hefur verið
magnaður í sumar.
Besti erlendi leikmaðurinn
Steven Lennon (FH)
Lennon hefur
verið hreint
magnaður
í sumar
og hefur
stimplað sig
inn sem einn
allra besti
leikmaður
deildarinnar,
þrátt fyrir að
FH hafi spilað undir
getu. Hann hefur bætt við fleiri mörkum
við leik sinn og dregið FH að landi þegar
illa hefur gengið. Líklega hæfileikaríkasti
leikmaður deildarinnar og þegar hann er í
gírnum eiga varnarmenn annara liða ekki
séns.
Efnilegasti leikmaðurinn
Orri Sigurður Ómarsson
(Valur)
Varnarmaðurinn
hefur tekið
framförum og
það miklum
á síðustu
árum. Hann
er klár í at-
vinnumennsku
og ef allt er eðli-
legt þá fer hann út
í vetur. Orri hefur bætt
sig ár frá ári og er nú að verða fullmótaður
knattspyrnumaður; gríðarlega öruggur á
boltann og sterkari varnarlega. Hann er
orðinn líkamlega sterkari og er byrjaður að
lesa leikinn betur. Hann hefur átt frábært
ár og stóru verðlaunin gætu komið á næstu
vikum að utan.
P
epsi-deild karla lýkur um
helgina en keppni í deildinni
hefur verið skemmtileg þótt
mæting á vellina hafi ekki
verið góð. Valur stóð uppi sem
sigurvegari í deildinni en FH og
Stjarnan tryggðu sér sæti í Evrópu-
keppni um síðustu helgi. Ljóst er
að ÍA er fallið úr deildinni en um
helgina kemur í ljós hvort Víkingur
Ólafsvík eða ÍBV fari niður í 1. deild
með Skagamönnum.
Keppnin í deildinni var afar
skemmtileg í ár og nú er komið að
því að gera upp deildina, velja bestu
leikmennina og velja lið ársins. DV
í samstarfi við 433.is hefur skoðað
hlutina og hér má sjá stóra dóm í
þessu máli. n
n Leikmaður og þjálfari ársins koma frá Val n Keppni lýkur um helgina
Anton Ari
Einarsson (Valur)
Orri Sigurður
Ómarsson (Valur)
Eiður Aron
Sigurbjörnsson (Valur)
Jóhann Laxdal
(Stjarnan)
Bjarni Ólafur
Eiríksson (Valur)
Haukur Páll
Sigurðsson (Valur)
Alex Freyr Hilmarsson
(Víkingur R.)
Hilmar Árni Halldórsson
(Stjarnan)
Hólmbert Aron
Friðjónsson (Stjarnan)
Steven
Lennon (FH)
Andri Rúnar
Bjarnason
(Grindavík)
Lið ársins (4-3-3)
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Staðan í Pepsi-deild karla
FÉLAG L U J T MÖRK NET STIG
1 Valur 21 14 5 2 39 - 17 22 47
2 Stjarnan 21 9 8 4 45 - 25 20 35
3 FH 21 9 8 4 33 - 24 9 35
4 KR 21 8 7 6 31 - 28 3 31
5 KA 21 7 8 6 37 - 28 9 29
6 Grindavík 21 8 4 9 29 - 38 -9 28
7 Breiðablik 21 8 3 10 33 - 35 -2 27
8 Víkingur R. 21 7 6 8 29 - 32 -3 27
9 Fjölnir 21 6 7 8 31 - 38 -7 25
10 ÍBV 21 6 4 11 29 - 38 -9 22
11 Víkingur Ó. 21 6 3 12 24 - 44 -20 21
12 ÍA 21 3 7 11 28 - 41 -13 16
M
y
N
d
b
R
A
N
d
U
R
J