Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Síða 20
20 sport Helgarblað 29. september 2017 Lið ársins í Pepsi-deild karla Þjálfari ársins Ólafur Jóhannesson (Valur) Þjálfaraferill Ólafs hefur verið langur og farsæll en hann hófst árið 1982 þegar hann stýrði Einherja. Síðan þá hefur Ólafur farið víða, hann hefur í þrígang þjálfað Skallagrím og þá hefur hann í tvígang stýrt FH og Haukum. Hjá FH voru hans bestu ár en hann þjálfaði liðið frá 2003 til 2007 og vann fyrsta Íslandsmeistaratitil í sögu félagsins árið 2004. Ólafur tók síðan við landsliðinu árið 2007 og stýrði því þangað til undir lok árs 2011. Ólafur var svo í tvö ár hjá Haukum eftir það og tók svo við Val fyrir tímabilið 2015 og hefur unnið þrjá stóra titla á þremur árum. Fyrstu tvö árin undir stjórn Ólafs varð liðið bikarmeistari og í ár var komið að því að vinna þann stóra. Besti leikmaðurinn og varnarmaðurinn Eiður Aron Sigurbjörnsson (Valur) Varnarmaðurinn kom heim í Pepsi- deildina í upp- hafi sumars og hefur gjörsam- lega slegið í gegn. Hann er ein stærsta ástæða þess að Valur vann Pepsi- deildina. Eiður hefur gert alla í varnarlínu Vals betri og hefur hann hjálpað markverðinum, Antoni Ara Einarssyni, mikið. Hann stjórnar leiknum vel, er ótrúlega öflugur í loftinu og gerir sjaldan eða aldrei mistök. Tími hans í atvinnumennsku var ekki dans á rósum en hann kom ekki heim með hangandi haus, hann steig upp og gerði besta lið landsins enn betra. Besti markvörðurinn Anton Ari Einarsson (Valur) Ótrúlegar framfarir á einu ári sem Anton hefur sýnt, aðeins einn leikur í sumar þar sem Anton getur hafa talist slakur. Hann hefur sýnt mikinn stöðugleika og varið frábærlega á ögurstundu fyrir Val. Anton er fæddur árið 1994 og er því mjög ungur þegar talað er um markverði. Hann hefur líkamlegan styrk og er afar öflugur í fótunum, sem hjálpar liði hans mikið. Þá hefur hann bætt sig mikið í teignum þegar fyrirgjafir og hornspyrnur koma inn. Anton ætti að geta stigið skrefið í atvinnumennsku á næstu árum. Besti miðjumaðurinn Haukur Páll Sigurðsson (Valur) Haukur Páll hefur stimplað sig inn sem einn öflugasti miðju- maður deildarinn- ar. Hann er leiðtogi Vals og á mjög stóran þátt í því að liðið vann sinn fyrsta Íslandsmeistara titil í tíu ár. Haukur gerir allt til þess að lið hans nái árangri, hann fórnar sér í alla bolta. Harka hans innan vallar vill oft skyggja á það hversu góður knattspyrnu- maður hann er í raun og veru, það er því meira í leik Hauks en bara harkan sem flest- ir ræða um þegar leikur Hauks er ræddur. Besti sóknarmaðurinn Andri Rúnar Bjarnason (Grindavík) Slær hann markametið í efstu deild karla? Andri Rúnar Bjarnason hefur skorað 18 mörk þegar einn leikur er eftir, Andra vantar því eitt mark til að jafna metið, sem eru 19 mörk á einu tímabili, og tvö mörk til þess að slá metið. Andri Rúnar og félagar hans í Grindavík mæta Fjölni á morgun, laugardag, í síðustu umferð deildarinnar. Saga Andra er í raun mögnuð, 27 ára gamall er hann í fyrsta sinn að setja mark sitt á efstu deild. Hann hafði áður verið öflugur í neðri deildum, en hefur verið magnaður í sumar. Besti erlendi leikmaðurinn Steven Lennon (FH) Lennon hefur verið hreint magnaður í sumar og hefur stimplað sig inn sem einn allra besti leikmaður deildarinnar, þrátt fyrir að FH hafi spilað undir getu. Hann hefur bætt við fleiri mörkum við leik sinn og dregið FH að landi þegar illa hefur gengið. Líklega hæfileikaríkasti leikmaður deildarinnar og þegar hann er í gírnum eiga varnarmenn annara liða ekki séns. Efnilegasti leikmaðurinn Orri Sigurður Ómarsson (Valur) Varnarmaðurinn hefur tekið framförum og það miklum á síðustu árum. Hann er klár í at- vinnumennsku og ef allt er eðli- legt þá fer hann út í vetur. Orri hefur bætt sig ár frá ári og er nú að verða fullmótaður knattspyrnumaður; gríðarlega öruggur á boltann og sterkari varnarlega. Hann er orðinn líkamlega sterkari og er byrjaður að lesa leikinn betur. Hann hefur átt frábært ár og stóru verðlaunin gætu komið á næstu vikum að utan. P epsi-deild karla lýkur um helgina en keppni í deildinni hefur verið skemmtileg þótt mæting á vellina hafi ekki verið góð. Valur stóð uppi sem sigurvegari í deildinni en FH og Stjarnan tryggðu sér sæti í Evrópu- keppni um síðustu helgi. Ljóst er að ÍA er fallið úr deildinni en um helgina kemur í ljós hvort Víkingur Ólafsvík eða ÍBV fari niður í 1. deild með Skagamönnum. Keppnin í deildinni var afar skemmtileg í ár og nú er komið að því að gera upp deildina, velja bestu leikmennina og velja lið ársins. DV í samstarfi við 433.is hefur skoðað hlutina og hér má sjá stóra dóm í þessu máli. n n Leikmaður og þjálfari ársins koma frá Val n Keppni lýkur um helgina Anton Ari Einarsson (Valur) Orri Sigurður Ómarsson (Valur) Eiður Aron Sigurbjörnsson (Valur) Jóhann Laxdal (Stjarnan) Bjarni Ólafur Eiríksson (Valur) Haukur Páll Sigurðsson (Valur) Alex Freyr Hilmarsson (Víkingur R.) Hilmar Árni Halldórsson (Stjarnan) Hólmbert Aron Friðjónsson (Stjarnan) Steven Lennon (FH) Andri Rúnar Bjarnason (Grindavík) Lið ársins (4-3-3) Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Staðan í Pepsi-deild karla FÉLAG L U J T MÖRK NET STIG 1 Valur 21 14 5 2 39 - 17 22 47 2 Stjarnan 21 9 8 4 45 - 25 20 35 3 FH 21 9 8 4 33 - 24 9 35 4 KR 21 8 7 6 31 - 28 3 31 5 KA 21 7 8 6 37 - 28 9 29 6 Grindavík 21 8 4 9 29 - 38 -9 28 7 Breiðablik 21 8 3 10 33 - 35 -2 27 8 Víkingur R. 21 7 6 8 29 - 32 -3 27 9 Fjölnir 21 6 7 8 31 - 38 -7 25 10 ÍBV 21 6 4 11 29 - 38 -9 22 11 Víkingur Ó. 21 6 3 12 24 - 44 -20 21 12 ÍA 21 3 7 11 28 - 41 -13 16 M y N d b R A N d U R J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.