Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Side 27
JÓhanna Svala „Borðið er úr IKEA en stólarnir koma frá Epal. Vasinn á skenknum er erfðagripur úr innbúi ömmu, hannaður af Lydíu Pálsdóttur, eiginkonu Guðmundar frá Miðdal.“ Eldgamlir iKEa-StÓlar „Þessir stólar eru eldgamlir og eru úr IKEA. Vinkona mín átti svona stóla, ég elskaði þá og lagði mikið á mig til að finna eins stóla, en það var eiginlga ekki hægt, alveg sama hvað ég leitaði á netinu og annars staðar. Svo fundust þessir allt í einu niðri í kjallara á vinnustað eiginmannsins. Þar lágu þeir og voru á leið á haugana þegar hann fékk að hirða þá. Við löppuðum upp á þá og höfum notið þeirra síðan enda passa þeir svo vel við húsið í þessum sixtís fíling. Ísbjörninn Glói kemur frá ömmu og er eflaust úr postulínsbúðinni hans langafa og tekkborðið er líka frá ömmu.“ innlit Stærð: Íbúðin á efri hæð er 210 fm en allt húsið er 320 fm Íbúar: Jóhanna Svala Rafnsdóttir, 39 ára, Ísak Winther, 49 ára, Rabbi 15 ára, Róbert 12 ára, Sónata 9 ára. Hundur- inn Diddi, kötturinn Blossi og páfagaukurinn Dísa. Á jarðhæð: Amma Dísa og Afi Ragnar Áhugamál: Hönnun, myndlist, jóga og ferðalög. Stofan: Var áður samkomusalur Fyrri eigendur: Kaþólska kirkjan og Jón Steinar Gunnlaugsson amma og Pavarotti „Amma mín, Svala Nielsen, var óperusöng- kona og þetta plakat gerði ég henni til heiðurs. Á ofninum eru svo eyrnalokk- arnir sem hún er með á myndinni í sérstöku skríni. Mér líka finnst skemmtilegt að hafa Pavarotti þarna við hlið ömmu því hann var uppáhalds- söngvarinn okkar beggja.“ Safnar noStalgíuStElli „Þetta stell var alltaf á heimili mínu þegar ég var að alast upp og því er þetta gríðarleg nostalgía fyrir mig að eiga þetta. Það heitir Acapulco, ke mur frá Villeroy og Boch og innblásturinn er sóttur til Mexíkó. Ef einh ver sem les þetta þarf að losna við gripi úr þessu stelli þá vil ég endi lega kaupa.“ diddi og BloSSi Þessir tveir búa í sátt og samlyndi á heimilnu sem áður hýsti kaþólskar nunnur, hæstaréttardómara og fjölskyldu hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.