Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Page 29
Rétt lýsing á heimili eða vinnustað getur gerbreytt andrúmslofti og upplifun
með tiltölulega litlum kostnaði en
undanfarin ár hafa miklar tækni-
framfarir orðið í þessum geira.
Lýsing & Hönnun er fjölskyldu-
fyrirtæki sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu varðandi allt
sem viðkemur lýsingu, í stórum
sem smáum verkefnum. Eigendur
þess eru hjónin Erla Heimisdóttir
viðskiptafræðingur og Heimir
Jónasson rafmagnsiðnfræðingur,
en þau stofnuðu fyrirtækið árið
2007. Líkt og nafnið gefur til kynna
er starfsemi Lýsingar & Hönnunar
tvíþætt. Annars vegar bjóða þau
verkfræðiþjónustu í raflagnateikn-
ingum og lýsingarhönnun og hins
vegar er Lýsing & Hönnun vönduð
verslun þar sem aðaláhersla er lögð
á að bjóða gott úrval ljósa fyrir
bæði heimili og fyrirtæki.
Lýsingarhönnun fylgir
með að kostnaðarlausu
„Við vitum að það er í mörg horn
að líta þegar verið er að byggja eða
breyta og þá hjálpar að geta fengið
allt sem snýr að rafmagnshlutanum
á einum stað,“ segir Erla og bætir
því við að hjá fyrirtækinu starfi
einvala lið sérfræðinga á sviði
lýsingarhönnunar.
„Til dæmis hefur Heimir, mað-
urinn minn, mjög mikla reynslu í
raflagna- og lýsingarhönnun. Heið-
dís er með menntun í „Retail and
Space Design“ og Róbert Hjaltason,
rafvirki og rafmagnsiðnfræðingur,
hefur góða reynslu í raflagna-
hönnun. Okkur finnst mikilvægt
að geta boðið viðskiptavinum upp
á alhliða ráðgjöf á þessu sviði, allt
frá hugmynd til lokaútkomu. Við
veitum til dæmis sérfræðiráðgjöf í
lýsingarhönnun fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Þá mæta sérfræðingar
okkar á staðinn, taka út húsnæðið
og ráðleggja svo varðandi raf-
lagnir og uppsetningu á lýsingu.
Lýsingarhönnunin fylgir með að
kostnaðarlausu ef ljósin eru keypt
hjá okkur,“ segir Erla.
„Það er alltaf betra að fá aðstoð-
ina heim svo að fagmennirnir fái til-
finningu fyrir rýminu. Ef það er ekki
valkostur þá reynum við að mæta
þörfum viðskiptavina, til dæmis
með því að meta aðstæðurnar út frá
ljósmyndum og teikningum.“
Ljós eru ekki bara ljós og
LED er ekki bara LED
„Lýsingin skiptir miklu máli og
getur gert ótrúlega mikið fyrir
stemninguna í hverju rými. Ljós
eru ekki bara ljós, þetta er líka
oft spurning um ljósaperuna.
Það hefur orðið mikil bylting í
möguleikum með LED-lýsingu
og LED ekki bara LED. Úrvalið er
orðið mikið, og ótrúlegt hvað eitt
ljós getur breytt miklu fyrir rými ef
rétta ljósið er valið. Við aðstoðum
viðskiptavini við val og útfærslu,“
segir Erla og nefnir í því samhengi
HDL ljósa- og hitastýrikerfin sem
hafa slegið í gegn hjá viðskiptavin-
um fyrirtækisins.
„Með HDL kerfinu er meðal
annars hægt að stjórna ljósum og
hita með spjaldtölvum en þannig
má breyta stemningu á afar ein-
faldan og þægilegan hátt. Einnig er
hægt að stýra hita og ljósum með
einum rofa sem myndar heildstætt
kerfi,“ segir hún að lokum.
Greinin
er unnin í
samstarfi
við LýsinGu
& hönnun
Rétt lýsing getur gerbreytt rýminu
Lýsing & Hönnun
er í Skipholti 35
Opnunartími:
Mán–Fös 10.00–17.00
Miðvikudaga 10.00–18.00
„við veitum
til dæmis
sérfræðiráðgjöf
í lýsingarhönnun
fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Þá
mæta sérfræðingar
okkar á staðinn,
taka út húsnæðið
og ráðleggja svo
varðandi raflagnir
og uppsetningu á
lýsingu.
Erla Heimisdóttir rekur verslunina Lýsingu & Hönnun
Ljósin skipta máLi
Erla Heimisdóttir við-
skiptafræðingur í verslun
sinni í Skipholti 35.
Mynd Heida dis Bjarnadottir
Öðruvísi stEmning í ELdHúsinu
Stundum getur verið sniðugt að nota stór ljós
í litlu rými eins og sjá má á þessari mynd.
Brauð í faLLEgri Birtu
Rétt lýsing skiptir miklu máli í
verslunum og á veitingastöðum.