Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Qupperneq 30
HRÚTUR 21. mars–19. apríl
Mikill fjölbreytileiki leikur um
hrútinn og jafnframt einhver dulúð.
Kærleikurinn er í fyrirrúmi og
mikil frjósemi. Ný tækifæri eru á
leiðinni, ekki efast í eina mínútu. Að
hika er það sama og að tapa.
NAUT 20. apríl–20. maí
Jafnvægi er lykilatriði fyrir nautið.
Eitt tímabil er nú að enda og nýtt
upphaf tekur við. Mikill undirbún-
ingur hefur átt sér stað en forsjónin
sér um sína. Erfitt getur reynst með
athafnasemina ef hnökrar eru hjá
stjórnsýslu eða stofnunum. Treysta
og trúa á sín markmið. Þolinmæði
er heilun.
TVÍBURAR 21. maí–20. júní
Góðar fréttir berast af erfiðri
stöðu fjármála. Fortíðin kvödd og
nýir tímar taka við. Töfrar í lofti,
árangur í starfi og tvíburar tilbúnir
að taka við. Nýta vel hæfileika sína.
Tortryggni á að leysa með hæfni,
eins og þegar hnútur er leystur.
Treysta innsæi sínu og markmið-
um. Næmni og kærleikur er heilun.
KRABBI 21. júní–22. júlí
Tilfinninganæmni krabba er í há-
vegum. Hvíld er góð. Fréttir berast
sem hafa áhrif. Miklar breytingar
framundan. Hagstæð tækifæri.
Góðar fréttir eftir mikið erfiði. Lagt
er upp í ný ævintýri. Passa vel upp á
sitt. Fjölskylda, vinir eru heilun.
LJÓN 23. júlí–22. ágúst
Forsjónin er hliðholl ljóni. Hvatn-
ing frá vinum og lausnir finnast á
langvarandi vandamálum. Ólga rík-
ir. Nærð settum markmiðum. Fjár-
hagslegt tilfinningalegt öryggi ríkir.
Stjórnkænska. Gæfa að gleðjast í
vinnu sinni. Samvinna, samræmi,
samþjöppun og þjónustulund er
lykill. Ástríki, mannkærleikur er
heilun.
MEYJA 23. ágúst–22. sept.
Meyjunni berast góðar fréttir
og hún mun finna lausn á erfiðu
verkefni. Andrúmsloftið er hlaðið
töfrum og réttlætið nær fram að
ganga. Einhver ólga er ríkjandi en
þolinmæðin þrautir vinnur allar.
Umönnun og kærleikur er heilun.
VOG 23. sept.–22. okt.
Samvinna, samþjöppun og sam-
ræmi er lykill. Fortíðin skýtur upp
kollinum og hefur jákvæð áhrif á
framtíðina. Heilsan er dýrmætust
allra eigna. Breytingar gætu orðið
á húsnæðismálum en bjartir tímar
eru framundan hjá fjölskyldunni.
Góðar fréttir berast frá útlöndum.
Varkárni og gætni er heilun.
SPORÐDREKI 23. okt.–21. nóv.
Tímamót eru hjá dreka, endurnýjun
og endurreisn. Nú er gott að nýta
vel sína hæfileika. Sporðdrekinn
er tilbúinn til að takast á við erfið
verkefni í vikunni. Lífið verður
fjörugt og líflegt. Eldmóður, seigla
og þolinmæði eru lykilatriði. Töfrar
ríkja. Samvinna og samræming er
heilun.
BOGMAÐUR 22. nóv.–21. des.
Allt snýst um fjármál og afkomu hjá
bogmanninum. Ný verkefni og fjár-
hagslegt öryggi framundan. Góðar
fréttir berast og miklar breytingar
eru í vændum. Spenna. Uppskera.
Vandamál leysast. Passa vel upp á
sig og sína. Birta, öryggi er heilun.
STEINGEIT 22. des.–19. jan.
Fréttir hafa mikla þýðingu þessa
dagana fyrir steingeitina. Gott að
hafa góða ráðgjafa og passa vel upp
á alla pappíra. Góðar fréttir berast
eftir mikið erfiði. Stinga togstreitu
í geymslu eða leysa strax eins og
erfiðan hnút. Góðar fréttir berast af
fjármálum eftir erfiðleika. Fjár-
hagslegt og tilfinningalegt öryggi er
framundan. Hamingja er heilun.
VATNSBERI 20. jan.–18. feb.
Vatnsberi á von á góðum tíðindum.
Hann býr svo vel að vera vinmarg-
ur og þaðan munu berast góð og
dýrmæt ráð. Eftir þónokkuð strit
mun vatnsberinn uppskera ríku-
lega. Fjármál munu taka jákvæðum
breytingum. Vinátta er heilun.
FISKAR 19. feb.–20. mars
Jafnvægi er lykill. Fullkomleiki og
mannkærleikur er allt um kring.
Fiskurinn þarf að treysta innsæi
sínu því fjárhaglegt og tilfinninga-
legt öryggi er framundan. Hamingj-
an er rétt handan við hornið. Að
elska er heilun.
STJÖRNUSPÁ
29.–6. októberSpá fyrir ÍslandFjölbreytileiki, mikil tign er yfir landinu þessa dagana. Sköpun, orka, vald, frumleiki og eldmóður. Góðar fréttir berast af efnislegum
gæðum og eignum. Ísland er á réttri leið.