Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Qupperneq 44
Vel mælt Afmælisbörn vikunnar
Um almenningsálitið
„Háskinn byrjar ekki fyrr en
margir eru orðnir sammála. Bófa-
flokkar eru því aðeins hættulegir að
meðlimir þeirra séu nógu samhent-
ir. Almenningsálitið er háskalegra
en þúsund vopnaðir stigamanna-
hópar. Einkum fyrir það málefni,
sem almenningsálitið hyllir.“
Þorgeir Þorgeirson, rithöfundur,
þýðandi og kvikmyndagerðarmaður.
(30. apríl 1933–30. október 2003)
Högni egilsson, söngvari og tónlistarmaður. Fæddur 30. október 1985.
64
ára
tolli morthens, listmálari. Fæddur 3. október
1953
lilja Alfreðsdóttir, stjórnmálakona. Fædd
4. október 1973.
32
ára
44
ára
Hún er mild í skapi
Úr íslensku orðabókinni
MILDI
• KVK 1
• blíða, blíðleikur 2
• náð, miskunnsemi, lán það var mildi að þú meiddir þig ekki 3
• gjafmildi, örlæti
Samheiti
blíða, blíðleiki, blíðleikur, góðleikur, góðlyndi, kærleikur, linkind, líkn, mann-
gæska, mennska, mildleikur, miskunn, miskunnsemi,mýkt, náð, umburðar-
lyndi, vægð, þýðleiki
Orðið sem við spáum í að þessu sinni er „mildi“.
Fallegt íslenskt orð sem hægt er að nota í víðtæku
samhengi. Í fréttum heyrum við gjarna talað um að
dómar séu mildaðir en orðið mildi tengist meðal
annars kærleikanum. Samheiti yfir þetta orð eru
meðal annars manngæska, mennska og miskunn
og oft er talað um að það sé guðs mildi að ekki
hafi farið verr þegar óhapp á sér stað. Þá er hægt
að lýsa veðri, bragði og fólki sem mildu en mildar
manneskjur eru gjarna vingjarnlegar, jafnstilltar og
rólegar í fasi.
Orðabanki Birtu