Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Qupperneq 50
26 fólk - viðtal Helgarblað 29. september 2017
Hjarðir á þingi
Það hlýtur að vera á ábyrgð stjórn-
málamanna að breyta hlutum til
betri vegar.
„Ég hef stundum talað um það
í gríni að það ætti að setja viðurlög
við kosningasvikum, allt að sex
ára fangelsi. Það er lítið sem ger
ist í íslenskum stjórnmálum. Á Al
þingi er meirihluti og minnihluti
sem eru hjarðir sem fylgja fyrir
fram ákveðinni línu. Mér finnst
Alþingi vera óvirkur vinnustað
ur. Þar festist allt og læsist inni
í nefndum og þingmenn eru of
fastir í einhverjum liðum. Góð mál
eru oft þynnt út vegna þess að ekki
er hægt að komast að samkomu
lagi, iðulega vegna þess að hags
munaaðilar hafa allt of mikil ítök
í íslenskum stjórnmálum. Við
erum að fara í kosningar og það er
útlit fyrir að það komi ekkert úr út
þeim. Það munu ekki verða raun
verulegar kerfisbreytingar.“
Eigum við kannski ekki nægi-
lega öfluga stjórnmálamenn?
„Ég þekki mjög hæfa og öfluga
einstaklinga sem eiga virkilegt er
indi á Alþingi. Þeir hafa einfald
lega ekki áhuga á að vinna á þeim
vinnustað. Með fullri virðingu
fyrir þeim sem þar vinna.“
Kaupmáttarreiknivél VR
Nú verða kjarasamningar lausir
á næstu misserum. Sérðu stefna í
harðar kjaradeilur?
„Það gæti allt farið á hliðina
í kjarasamningum. Þarna hefur
ákvörðun kjararáðs um allt að
45 prósenta hækkun handa
embættis mannaelítunni mjög
mikið að segja. Á sama tíma er al
mennu launafólki sagt að sýna
hófsemd og tilkynnt að svigrúm
til launahækkana sé einungis um
þrjú prósent. Þetta var eitt af því
sem felldi forvera minn í starfi,
hann hækkaði laun sín um 45
prósent en var síðan að krefja fé
lagsmenn VR um hófsemi. Það er
ekki nóg að tala fjálglega um stöð
ugleika, ef þeir sem þannig tala
eru ekki tilbúnir til að leggja sitt af
mörkum til að viðhalda honum.
Það getur ekki gengið að þeir sem
hafa minnst til skiptanna þurfi að
taka á sig mestu byrðarnar. Það
verður ekki lengur sátt um það.
Reikningsheilar stjórnmál
anna og hagsmunaaðila kerfisins
geta reiknað sig niður á hvaða vit
leysu sem er. Alveg eins er með
kaupmáttinn sem á að vera for
dæmalaus. En við vitum að það
eru ekki allir sem eru að fá auk
inn kaupmátt í þessu landi. Fólk
á leigumarkaði er í mínus og við
í VR getum sýnt fram á það. Við
höfum lagt gríðarlega vinnu í að
búa til kaupmáttarreiknivél sem
verður tilbúin eftir mánuð. Þar
getur fólk sett inn launin sín, leig
una og fleira og reiknað útkom
una. Við vitum að dæmið er von
laust hjá stórum hópi fólks.
Ég hef lagt til að persónu
afsláttur yrði hækkaður þannig
að lægstu laun séu skattfrjáls.
Það eru bestu kjarabæturnar fyr
ir þá verst settu og sömuleiðis
barnafjölskyldur. Sá sem er með
tvær milljónir í laun hefur hins
vegar ekkert með persónuafslátt
að gera. Eins og staðan er í dag
er útilokað að sá sem er á lægstu
laununum nái endum saman.
Um það má ekki tala. Það er tabú
innan verkalýðshreyfingarinnar
að tala um framfærslu viðmið.
Þetta eru tillögur okkar sem
erum í forystu í VR. Við erum að
kanna undirtektir hjá þeim félög
um sem eru með lausa samninga
og hvort hægt sé að ná víðtækri
sátt innan hreyfingarinnar um
þetta. Þetta mun ýta undir stöðug
leika og stórauka ráðstöfunartekj
ur barnafjölskyldna og þeirra sem
eru í lægri launastiganum. Þetta
mun koma sér gríðarlega vel fyrir
opinbera starfsmenn og draga úr
spennu vegna launahækkana. Við
vitum að ef við hækkum laun um
45 prósent mun það koma í bak
ið á okkur að einhverju leyti, fer
út í vöruverð og skilar sér í hærri
sköttum. Þetta er okkar útspil í að
halda víðtækri sátt og koma með
hugmyndir, ekki bara gagnrýna.“
Heldurðu í alvöru að þær
breytingar sem þú vilt sjá og hef-
ur talað um í þessu viðtali muni
verða að veruleika?
„Það hafa orðið breytingar. Hér
áður fyrr var tabú að ræða um líf
eyrissjóðina, nema það væri verið
að mæra þá. Það voru möntrur
eins og: „Besta lífeyrissjóðskerfi í
heimi“ og „Löndin í kringum okk
ur eru græn af öfund yfir þessu
kerfi okkar.“ Fáir trúa þessu lengur.
Ef ekkert mun breytast í sam
félagi okkar til hins betra þá get
ég allavega sagt að ég hafi reynt.
Það að reyna kemur mér fram úr
á morgnana og heldur mér rétt
um megin við andlega strikið. En
ég geri þetta ekki einn. Formaður
VR gengur ekki inn og breytir
lífeyris sjóðakerfinu en hann get
ur haft áhrif. Það að vera kominn
í þessa stöðu hækkar röddina í
mér um nokkur desíbel.“
Veit að það verður farið gegn mér
Þú ert alls ekki óumdeildur.
Finnur þú fyrir andstöðu innan
einhverra hópa innan VR?
„Ég er búinn að segja frá því í
viðtalinu hvernig farið var kerfis
bundið á móti Kristni Erni og
síðan, einnig kerfisbundið, á
móti Stefáni Einari. Ég væri kjáni
ef ég héldi að það sama ætti ekki
við um mig. Ég veit að það verð
ur farið gegn mér, en mér er alveg
sama.
Ég er með tveggja ára ráðn
ingarsamning við félagsmenn
mína. Það er draumastarf að fá
að vinna við hugsjónir sínar. Ég
lifi fyrir þetta. Ef það er eftirspurn
eftir mér í þessari stöðu mun ég
örugglega halda áfram ef ekki
mun ég kveðja sáttur.
Sama hvaða formaður er við
völd í VR þá geta félagsmenn
andað rólega því starfsmenn fé
lagsins halda daglegum rekstri
áfram hvað sem á dynur í verka
lýðspólitíkinni og það er mikill
sómi að þeim mannauð.
Það er fólksins að ákveða
hvaða áherslur það vill. Ef fólk
er sátt við kerfið eins og það er
og ánægt með verkalýðshreyf
inguna og aðgerðaleysi hennar
og þá pólitík sem hún stundar þá
er það bara þannig. Ég mun taka
því eins og maður.
Ég hef mínar skoðanir og mun
reyna að hafa áhrif á pólitíkina
með skrifum og hugmyndum.
Á einhverjum tímapunkti mun
eitthvað breytast. Ef ég hefði ekki
trú á því þá gæti ég ekki stað
ið í þessu. Það sem skiptir mig
mestu máli er að geta sagt við
börnin mín: Ég gerði mitt allra
besta.“ n
„Það er
ekki nóg
að tala fjálglega
um stöðugleika,
ef þeir sem
þannig tala eru
ekki tilbúnir til
að leggja sitt af
mörkum til að
viðhalda honum.
Baráttumaður
„Ég hef mínar skoð-
anir og mun reyna
að hafa áhrif á póli-
tíkina með skrifum
og hugmyndum.“