Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Qupperneq 52
28 sakamál Helgarblað 29. september 2017
A
ð kvöldi 13. apríl, 1989, tók
Ramon nokkur Salcido,
frá Sonoma-sýslu í Kali-
forníu, vel á því í drykkju
og kókaínneyslu, enda verulega
niðurdreginn vegna yfirvofandi
atvinnumissis og skilnaðar.
Salcido fékk þá flugu í höf-
uðið að hann hefði staðið í upp-
eldi þriggja stúlkna sem hann átti
ekkert í og varð sannfærður um að
eiginkona hans hefði verið honum
ótrú með yfirmanni hans, Tracy
Toovey, vínkaupmanni í Sonoma.
Að morgni næsta dags hafði
Salcido ákveðið hvað gera skyldi,
sá dagur varð verulega sorglegur.
Fleygt á sorphauga
Þennan morgun setti Salcido
dætur sínar þrjár; Sophiu, fjögurra
ára, Carminu, þriggja ára, og
Teresu, eins árs, í fjölskyldubílinn
og voru þær aðeins íklæddar nátt-
fötunum. Síðan hóf hann leit að
Angelu, eiginkonu sinni, en sú leit
bar ekki árangur.
Salcido ók sem leið lá að sorp-
haugum skammt frá Petaluma-
borg og skar þar dætur sínar á háls
og henti þeim á haugana.
Kominn á bragðið
Salcido hugðist ekki láta þar
við sitja og lagði sennilega
höfuðið í bleyti. Niðurstaðan
varð sú að kanna hvort Angela
kynni að vera hjá móður sinni
og þangað ók hann.
En Angela var ekki hjá
móður sinni, en Salcido lét
engu að síður hendur standa
fram úr ermum. Hann byrjaði
á að berja tengdamóður sína,
Marion Richards, til bana en
síðan færðist ofbeldið upp á
nýtt og óhugnanlegra stig.
Allir skulu deyja
Síðar kom í ljós að Salcido
hugðist fyrirkoma öllum ætt-
ingjum eiginkonu sinnar. Því
fór það svo að þegar hann var
búinn að berja tengdamóður
sína til ólífis sneri hann sér
að tveimur yngstu dætrum
hennar, fleiri voru ekki
heima.
Ruth, tólf ára, og Marie, átta
ára, áttu ekki möguleika gegn
sturluðum manninum. Hann skar
þær báðar á háls og misþyrmdi
þeim kynferðislega.
Leitaði langt yfir skammt
En Angela var enn ófundin og
Salcido ekki reiðubúinn til að
láta staðar numið. Þegar upp var
staðið kom í ljós að hann hafði
leitað langt yfir skammt,
því hann fann eigin-
konu sína heima. Hún
hafði ekki hugmynd um
þær hörmungar sem átt
höfðu sér stað og átti sér
einskis ills von.
Hvort Angela fékk
nokkru sinni að vita um
afdrif fjölskyldu sinnar
skal ósagt látið, en Salcido
skaut hana til bana á
heimili þeirra.
Ekki allt búið enn
Salcido ku hafa teygað
kampavín þegar hann ók
frá heimili sínu, en síðar var
ljóst að honum fannst enn
vanta punktinn yfir i-ið.
Áðurnefndur vínkaup-
maður, Toovey, átti og rak
Grand Cru-víngerðina í
Sonoma. Salcido var þess
fullviss að Toovey hefði gert
sér dælt við Angelu, og gott
betur. Án efa hefur honum
því þótt viðeigandi að ljúka þess-
um blóðuga degi á víngerðinni,
sem hann og gerði og dagar hins
meinta ástmanns voru taldir.
Handtekinn í Mexíkó
Að þessu öllu loknu ók Salcido
til Los Mochis í Mexíkó, heim
til mömmu sinnar. Þar var hann
handtekinn og síðar framseldur
til Kaliforníu til að svara til saka
fyrir ódæði sín.
Ramon Salcido var dæmdur
til dauða 17. desember 1990, og
bíður víst enn örlaga sinna. Að
sögn hefur hann síðan snúið sér
til kristinnar trúar og í yfirlýsingu
sem hann skrifaði, Saga mín,
segir hann: „Þetta var hræðilegur
harmleikur […]. Það eina sem
mig langaði var að deyja því ég
hafði glatað öllum sem ég hafði
nokkru sinni elskað. Þá skildi
maður Biblíuna eftir í klefanum
mínum […].
Ljósið í myrkrinu
Um einum og hálfum sólarhring
eftir að Salcido fleygði dætrum
sínum á haugana við Petaluma
fannst Carmina þar á lífi, liggj-
andi við hlið látinna systra sinna.
Carmen var síðar ættleidd af
fjölskyldu í Missouri og árið 2009
skrifaði hún bók um reynslu sína;
Not Lost Forever. n
n Salcido grunaði eiginkonu sína um ótryggð n Allir ættingjar hennar skyldu deyja
Ramon Salcido
Lagði upp í blóðuga
vegferð dag einn í
apríl 1989.
Við leiði
systra sinna
og móður
Carmina skrifaði
síðar bók um
lífsreynslu sína.
Sjö morð
í So om