Fréttablaðið - 26.10.2017, Blaðsíða 2
Veður
Vaxandi suðvestanátt í dag, víða
kaldi síðdegis en allhvass vindur
norðvestanlands. Skýjað um landið
vestanvert, en bjartviðri austan til.
Gengur í suðvestan hvassviðri eða
storm norðan til í kvöld.
sjá síðu 30
Grænar greinar á Skólavörðustíg
Starfsmenn Reykjavíkurborgar voru í óðaönn að hengja upp jólaskraut þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði á Skólavörðustíg í gær. Ekki
seinna vænna, enda styttist nú til jóla. Í dag eru aðeins 58 dagar þangað til hátíðin gengur í garð. Blessunarlega bíða galvaskir vinnumenn eins og
þessir átekta þegar hátíðarnar nálgast og hjálpa okkur að finna jólaandann, enda lætur hann oft bíða eftir sér. Fréttablaðið/anton brink
ÞÓR HF
ÞÓR HF
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
HITABLÁSARAR
Þessir einu sönnu gæða hitablásarar.
Bjóðum úrval alvöru hitablásara bæði fyrir
gas og diesel/steinolíu.
Eigum líka hitastilla fyrir MASTER hitablásara.
Viðurkennd viðgerða- og varahlutaþjónusta.
Menntun Prófgögn í námi til lög-
gildingar fasteigna- og skipasala
við Háskóla Íslands, sem týndust í
pósti í maí á leiðinni til Austurríkis,
eru komin í leitirnar. Nemendur í
áfanganum Fasteignakaupréttur og
viðskiptabréfareglur hafa því fengið
einkunn í áfanganum rúmum fimm
mánuðum eftir að þeir þreyttu loka-
próf.
Fréttablaðið fjallaði um málið í lok
júní og kom þá fram að gögnin hefðu
ekki borist kennara námskeiðsins
sem búsettur er í Austurríki. Þau
voru ekki send sem rekjanlegur
ábyrgðarpóstur og því ekki hægt að
leggja mat á árangur nemenda og til-
kynna um einkunnir í áfanganum.
Nemendur sem blaðið ræddi við
þá við töldu skólann hafa tekið sér of
langan tíma til að komast til botns í
málinu. Þeim hefði verið send stunda-
skrá fyrir haustönn þó svo að ekki
væri ljóst hvort þeir uppfylltu kröfu
um fullnægjandi meðaleinkunn.
Þeim var svo sendur tölvupóstur
í gær um að prófin hefðu komið
í leitirnar og kennarinn farið yfir
þau. Hafa þeir nú val um hvort þeir
vilji láta einkunn standa eða halda
lokaeinkunninni „staðið“ sem þeir
fengu þegar ekki hafði tekist að finna
gögnin. – hg
Prófin komin í leitirnar eftir klúður
Bandaríkin Forsetaframboð Hill-
ary Clinton og miðstjórn Demó-
krata fjármögnuðu að hluta rann-
sókn á tengslum Donalds Trump
Bandaríkjaforseta við rússnesk
yfirvöld.
Afrakstur rannsóknarinnar varð
umdeild skýrsla sem fylgismenn
forsetans hafa kallað skáldskap en
í henni er meðal annars fjallað um
kynlíf forsetans með rússneskum
vændiskonum.
Demókratar réðu lögfræðistofuna
Perkins Coie sem síðan réð rann-
sóknarfyrirtækið Fusion GPS til
þess að grafa upp upplýsingar sem
gætu komið sér illa fyrir Trump.
Fusion GPS réð Christopher
Steele til þess að grafa upp upplýs-
ingarnar. Áður hafði Steele unnið
að því að grafa upp sambærilegar
upplýsingar fyrir ónefndan Repúbl-
ikana. – þea
Fjármögnuðu
Rússaskýrsluna
dóMsMál Aðstandendur Arnars
Jónssonar Aspar hafa kært til ríkis-
saksóknara þá ákvörðun héraðs-
saksóknara að fella niður rannsókn
á hendur samferðamönnum Sveins
Gests Tryggvasonar í heimsókn á
Æsustaði í Mosfellsdal þann 7. júní
síðastliðinn þar sem Arnar lést.
Sveinn Gestur var einn ákærður
fyrir alvarlega líkamsárás sem talin
er hafa átt þátt í dauða Arnars en
héraðssaksóknari felldi mál annarra
sem fengu stöðu sakborninga í mál-
inu niður 1. september síðastliðinn.
Meðal þeirra sem fengu stöðu
sakborninga í málinu auk Sveins
Gests voru Jón Trausti Lúthersson
og bræðurnir Marcin Wieslaw og
Rafal Marek Nabakowski.
„Það er verið að kæra þessa
ákvörðun héraðssaksóknara og
óska eftir því að ríkissaksóknari
endurskoði hana,“ segir Þórhallur
Haukur Þorvaldsson, hæstaréttar-
lögmaður og réttargæslumaður
ættingja Arnars.
„Það hlýtur að blasa við að sá sem
einn er ákærður hlýtur að byggja
vörn sína meðal annars á þeim
grundvelli að einhverjir aðrir hafi
átt hlut að máli. Þess vegna töldum
við mikilvægt að setja þessa kæru
fram og láta á þetta reyna,“ segir
Þórhallur aðspurður um ástæður
þess að kæran er lögð fram.
Í kærunni eru færð rök fyrir því
að fleiri en Sveinn Gestur hafi gerst
sekir um brot sem geti flokkast
undir samverknað eða hlutdeild í
þeirri líkamsárás sem Sveinn Gestur
hefur verið ákærður fyrir og talin
er hafa leitt Arnar til dauða. Sam-
kvæmt ákvæðum almennra hegn-
ingarlaga er það metið mönnum
til refsiþyngingar hafi fleiri en einn
framið refsivert brot í sameiningu.
Hlutdeildarbrot getur einnig varðað
sömu refsingu og aðalbrotið. Hafi
hlutdeildin verið smávægileg má þó
dæma vægari refsingu en lögð er við
aðalbrotinu.
Kæran var lögð fram 28. sept-
ember síðastliðinn og ríkissak-
sóknari hefur þrjá mánuði til að
taka afstöðu í málinu. Niðurstaða
hans getur orðið á þrjá vegu. Hann
getur komist að þeirri niðurstöðu
að málið hafi ekki verið rannsakað
nægilega og fellt ákvörðun héraðs-
saksóknara úr gildi á þeim forsend-
um. Hann getur staðfest ákvörðun
héraðssaksóknara og hann getur
fellt ákvörðun héraðssaksóknara
úr gildi og lagt fyrir hann að gefa út
ákæru í málinu.
Sjaldgæft er að hinu síðastnefnda
sé beitt en dæmin eru þó til. Í júlí
síðastliðnum fól ríkissaksóknari
héraðssaksóknara að gefa út ákæru
í nauðgunarmáli sem héraðssak-
sóknari hafði áður fellt niður.
adalheidur@frettabladid.is
Fleiri ákærur vegna dauða
Arnars Aspar mögulegar
Ríkissaksóknari hefur til skoðunar ákvörðun héraðssaksóknara um að ákæra
ekki aðra sakborninga en Svein Gest Tryggvason vegna dauða Arnars Aspar.
Kæra réttargæslumanns ættingja Arnars er grundvöllur endurskoðunarinnar.
Jón trausti er einn þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna málsins. ríkissak-
sóknari skoðar ákvörðun um að ákæra ekki fleiri. Fréttablaðið/Eyþór
Prófin týndust fyrir fimm mánuðum
þegar þau voru send til austurríki.
Fréttablaðið/Eyþór
Viljum tryggja að
málsmeðferðin
brotni ekki á því að Sveinn
Gestur hafi ekki
verið einn að
verki.
Þórhallur Haukur
Þorvaldsson,
hæstaréttar-
lögmaður
2 6 . o k t ó B e r 2 0 1 7 F i M M t u d a G u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
1
0
-D
8
1
4
1
E
1
0
-D
6
D
8
1
E
1
0
-D
5
9
C
1
E
1
0
-D
4
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K